Ástin sem sigrar að leiðarlokum

Jakob S. Jónsson fjallar um Óbyrjur tímans eftir Guðbrand Gíslason.

Bókakápa Óbyrja tímans
Bókakápa Óbyrja tím­ans Mynd: Aðsend mynd

Guðbrandur Gíslason: Óbyrjur tímans. Um afskipti dauðans af ástinni.

Bóka­útgáfan Brandur. Reykjavík 2019.

Sumar bækur nálgast mann hógværlega, næstum eins og þær væru feimnar, of hlédrægar og hógværar til að trana sér fram, vekja athygli, krefjast þess að vera lesnar. Það eru bækur sem segja sögur sasm hefur tekið tíma að setja á blað, kostað orku, jafnvel angist, sem á endanum óttast dóm lesandans, óttast að lesandinn þekki sig ekki í atvikum sögunnar, umhverfinu og kringum­stæðum.

Óbyrjur tímans. Um afskipti dauðans af ástinni er slík bók, hefur slíka sögu að geyma. Þessi saga er ekki búin til, ekki sköpuð. Hún hefur einfald­lega gerst, hún segir sköp persóna sinna, eða skyldi maður segja ósköp, í merkingunni örlög. Hún segir bókstaf­lega frá afskiptum dauðans af ástinni og það mætti þess vegna kenna hana við sagnalist grimmdarinnar, á svipaðan hátt og talað er um leikhús grimmdarinnar miðað við kenningar franska leikhús­lista­mannsins Artaud, en grimmdin á hér fylgju sem kallast lífs­játning. Ást.

Guðbrandur Gíslason er gamal­reyndur blaða­maður með próf í málvísindum og bókmennta­fræði frá Þýska­landi í farangrinum og hefur auk þess að skrifa ljóð og sögur í ýmis tímarit fengist við störf tengd menningu og leiðsögn. Hann skrifar ljóðrænan, á köflum dulúðugan stíl, sem hæfir efninu; sagan byrjar á harmleik sem er skelfilegri en orð fá lýst, sögumaður er þá lítill drengur í foreldra­húsum á Óðins­götunni í Reykjavík og harm­leikurinn á eftir að fylgja honum það sem eftir lifir æfinnar – sem í sögunni er þegar hann er kominn á fullorðinsár og hefur snúið aftur á bernsku­slóðirnar, í húsið við Óðinsgötu.

Sagan er byggð eins og röð smásagna, sem vel má lesa hverja fyrir sig, en best fer á að lesa þær í það minnsta fyrst í stað í þeirri röð sem þær eru birtar; samhengið milli sagnanna er á stundum skýrt, á stundum eilítið þoku­kenndara, en þó er eins og aldrei slitni þráðurinn á milli þeirra, jafnvel þótt höfundur bregði á leik með sjónar­horn og sögumann. Á stundum er eins og höfundur mæti sjálfum sér, sjái sjálfan sig utanfrá og ögrar lesandanum með því að láta þessa tviskiptu persónu renna saman og verða að einni og skiptir henni svo aftur í tvennt. Engin saga er einstigi, það eru ávallt fleiri leiðir að sögulökum og þótt það sé ögrun í því fólgin að henda reiður á margræðum sannleika er jafnframt fólginn léttir í því að ekkert er bara eins og það virðist, hvert atvik á sér einhvers konar mótvægi og þannig flæðir frásögnin áfram í líðandi straumi sem brotnar á flúðum til þess eins og halda áfram fyrir tilstilli þyngdar­aflsins, náttúru­lögmálsins.

Þannig er þessi saga, Óbyrjur tímans. Um afskipti dauðans af ástinni. Á endanum er það ástin sem sigrar, en það er önnur ást en sú sem lagði af stað í leiðangurinn, óumflýjanlegur, grimmur og andstyggilegur dauðinn hefur mótað ferða­lagið. Mótað það, en hvergi tekið stjórnina, hvergi ráðið för. Þökk sé ástinni.

Það er óskandi að þessi saga rati til lesenda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár