Topp 5 - Mennirnir sem spiluðu með Barcelona og Real Madrid

Það er ekki stór hópur leik­manna sem hefur spilað bæði með Barcelona og Real Madrid. En hverjir eru þeir bestu úr þeim fámenna hópi?

Nú er nýtt keppn­is­tíma­bil í stærstu deildum heims­ins í fót­bolt­anum farið af stað, og kast­ljósið bein­ist nú sem fyrr að stærstu knatt­spyrnu­fé­lögum heims­ins. Þar eru spænsku stór­veldin Barcelona og Real Madrid fremst meðal jafn­ingja þegar kemur að stjörnum prýddum leik­manna­hópum.

Í gegnum tíð­ina hefur það oft verið leik­mönnum erfitt að færa sig á milli þess­ara rót­grónu erki­fj­enda í heims­fót­bolt­anum. En það eru und­an­tekn­ingar. Fyrir sumum leik­mönnum er enn þá borin mikil virð­ing hjá báðum félögum.

Barcelona var stofnað 26. nóv­em­ber 1899 og er því tæp­lega 117 ára gam­alt, á meðan Real Madrid var stofnað 6. mars 1902. Allt frá þessum tíma, í meira en heila öld, hafa þessi stór­veldi dregið til sín marga af bestu fót­bolta­mönnum heims­ins á hverjum tíma og barist um öll þau verð­laun sem í boði eru bæði á Spáni og í Evrópu.

Á síð­ustu árum hafa fimm leik­menn alveg sér­stak­lega slegið í gegnum hjá báðum liðum, og jafn­framt tek­ist að mynda sterkt sam­band við aðdá­endur beggja liða.

Kjarninn tók saman topp 5 lista yfir leik­menn sem hafa spilað með bæði Barcelona og Real Madrid.

5. Núver­andi þjálf­ari Barcelona, Luis Enrique, lék með Real Madrid á árunum 1991 til 1996, sam­tals 157 leiki. Hann var lyk­il­maður á miðj­unni og lék oft­ast sem hægri væng­maður í sterku liði Real Madrid. Aðdá­endur liðs­ins urðu æfir þegar hann fór til Barcelona eftir að samn­ingur hans rann út. Þar hitti hann fyrir stjörnur Kata­lón­íustór­velds­ins og lék með lið­inu 200 deild­ar­leiki á átta ára tíma­bili, frá 1996 til 2004. Enrique var þekktur fyrir að vera skap­bráður, og upp­stökkur en líka dug­legur og snjall leik­maður.

4. Daninn Michael Laudrup er af flestum álit­inn besti leik­maður sem komið hefur frá Norð­ur­lönd­unum. Hann átti stór­kost­legan feril, bæði með félags­liðum og danska lands­lið­inu. Hann sló í gegn með Lazio á Ítalíu á árunum 1983 til 1985 og þótti þá einn hæfi­leik­a­rík­asti leik­maður í ítölskum fót­bolta. Juventus keypti hann árið 1985 og lék hann við góðan orðstír með lið­inu fram til árs­ins 1989 þegar stór­veldið Barcelona keypti hann. Laudrup var stór­kost­legur með Barcelona, og þótti bera af öllum leik­mönnum á Spáni á þessum tíma. Þegar hann var sem bestur, komst Danmörk óvænt inn á EM í Svíþjóð, árið 1992, þar sem Balkanskaga­stríðið kom í veg fyrir að Júgóslavía gæti sent til leiks. Laudrup var í fýlu við þjálf­ar­ann og fór ekki, en bróðir hans, Brian, blómstr­aði í stað­inn ásamt öðrum leik­mönnum danska liðs­ins. Þeir stóðu óvænt uppi sem Evr­ópu­meist­arar og það án helstu stjörn­unnar. 

Michael Laudrup hélt áfram að leika frá­bær­lega á Spáni og fór til Real Madrid árið 1994 þar sem hann lék fram til árs­ins 1996. Aðdá­endur Barcelona urðu æfir af reiði við vista­skiptin, en í seinni tíð hafa þeir fyr­ir­gefið honum enda átti hann frá­bæran tíma hjá félag­inu, og stjórn­aði leik liðs­ins eins og töfra­maður oft á tíðum.

3. Króatinn Robert Prosinecki var einkum frægur fyrir tvennt á sínum ferli. Annars vegar fyrir mikla hæfi­leika og bolta­tækni, og hins vegar fyrir að reykja tvo pakka af Marlboro sígar­ettum alla daga. Prosinecki skaust upp á stjörnu­him­in­inn árið 1989 með Rauðu Stjörn­unni frá Belgrad en hann var leik­stjórn­andi liðs­ins þegar það varð óvænt Evr­ópu­meist­ari Meist­ara­liða í Evrópu, sem var for­veri Meist­ara­deildar Evrópu nú. Prosinecki lék sér oft af and­stæð­ingum sínum með því að draga bolt­ann til og frá, áður en hann gaf góða send­ingu eða skaut að marki. Real Madrid keypi hann árið 1991 og sýndi hann fljótt góð til­þrif. Hann var lát­inn fara til Oviedo 1994, þar sem hann gerð­ist sekur um aga­brot sem Real Madrid félagið sætti sig ekki við. Hjá Oviedo sýndi hann allar sýnar bestu hliðar og ákvað Barcelona að kaupa hann, með von um að hann héldi sig á mott­unni og tæk­ist að sýna sitt rétta and­lit sem fót­bolta­maður. Það tókst honum vel í fyrstu, en hann þótti ekki nægi­lega góð fyr­ir­mynd og var lát­inn fara áður en Bobby Robson, breska goð­sögnin, tók við stjórn­ar­taumunum sem knatt­spyrnu­stjóri.

Prosinecki kom óvænt til Portsmouth árið 2001, þegar Harry Redknapp var þar yfir­maður knatt­spyrnu­mála. Hann var gjör­sam­lega form­laus eftir mikil meiðsli, en sýndi hæfi­leika sína af og til, aðdá­endum á Fratton Park, heima­velli Portsmouth, til mik­illar gleði. Peter Crouch, sem þá var að ung­lingur í fram­línu Portsmouth, skor­aði ófá mörkin eftir send­ingar frá Prosinecki. Í ævi­sögu sinni, Walking Tall, segir Crouch að Prosinecki hafi verið stór­kost­legur leik­maður (Fantastic player), og í það minnsta jafn hæfi­leik­a­ríkur Steven Gerrard og Paul Scholes, sem hann lék með hjá enska lands­lið­inu. Hjá Portsmouth hafi hann hann í raun ekk­ert geta hlaupið (He didn't do much runn­ing – he couldn't run really) en það hafi ekki skipt öllu máli. Snilldin var í tánum, og hafði áhrif á alla leik­menn í kringum hann.

2. Portú­gal­inn Luis Figo kom til Barcelona árið 1995 og var hluti af miklum sókn­ar­her Kata­lón­íuliðs­ins. Tíma­bilið 1996 til 1997 varð hann að stór­stjörnu þar sem hann rað­aði inn mörkum og gaf fjölda stoðsend­inga. Sér­stak­lega naut tví­tugur piltur í fram­lín­unni hjá Barcelona, Ronaldo að nafni, góðs af góðum fyr­ir­gjöfum Figo. Mörkin urðu 36 í 37 leikjum hjá Ronaldo og var Figo oft mað­ur­inn á bak við und­ir­bún­ing markanna.

Figo varð að leið­toga félags­ins, innan sem utan vallar, og var horft til hans sem virtasta leik­manns félags­ins eftir að fyr­ir­lið­inn Josep Guardi­ola fór frá félag­inu. Figo var hins vegar pirr­aður á því að lið­inu tæk­ist ekki að halda Ronaldo og síðan fleiri stór­stjörnum eftir því sem leið á, auk þess sem varn­ar­leikur liðs­ins var ekki upp á marga fiska. Figo hót­aði að fara á 100 ára afmæl­is­ári félags­ins, árið 1999, en það tókst að róa hann niður með lang­tíma­samn­ingi við þáver­andi besta leik­mann heims, Rivaldo. En árið 2000 gerð­ist samt hið ómögu­lega. Figo fór til Real Madrid og var þá þegar kom­inn í skammar­krók­inn fyrir lífs­tíð hjá aðdá­endum Barcelona. Hann mun lík­lega aldrei kom­ast úr þeim skammar­krók. Figo var frá­bær hjá Real Madrid lék með lið­inu á árunum 2000 til 2005, með stór­stjörnum Evr­ópu­bolt­ans. Figo lauk svo ferli sínum hjá Inter eftir að hafa leikið með lið­inu í fjögur ár, frá 2005 til 2009.

1. Ronaldo hinn brasil­íski kom til Barcelona árið 1996 eftir að hafa slegið í gegn með PSV í Hollandi. Þar héldu honum engin bönd. Bobby Robson keypti hann fyrir metfé, og strax í fyrstu leikj­unum varð ljóst að þarna var sér­stakur leik­maður á ferð­inni. Hraði, lík­am­legur styrkur, tækni og fram­úr­skar­andi hæfi­leikar til að klára færi, gerðu hann að eins manns her í sókn­ar­leik Barcelona. Hann varð fljótt umtal­aður sem besti leik­maður sinnar kyn­slóðar í heim­inum, og einn sá allra besti í sög­unni. Robson sjálfur lýsti honum sem allra besta leik­manni sem hann hefði nokkurn tím­ann séð. Því miður fyrir Barcelona þá fór Ronaldo til Inter eftir aðeins eitt tíma­bil hjá þeim spænsku, þrátt fyrir að hafa verið kos­inn besti leik­maður heims þegar hann lék þar. Ronaldo var stór­kost­legur hjá Inter fyrsta tíma­bilið, og var aftur kos­inn besti leik­maður heims. Síðan tók við erf­iður tími þar sem hné­meiðsli gerðu honum lífið leitt. Í meira en tvö ár spil­aði hann aðeins sex mín­útur af alvöru fót­bolta, en hann sleit í tvígang lið­bönd í hné.

Hann setti stefn­una á að koma til baka fyrir HM árið 2002, og tókst það. Þar kom hann sá og sigr­aði. Varð marka­hæstur með átta mörk, heims­meist­ari og leik­maður keppn­innar. Ronaldo var mættur aftur og Real Madrid kveikti strax á per­unni. Ronaldo var keyptur til Real Madrid og sló strax í gegn, með tveimur mörkum í fyrsta leik. Hann lék með lið­inu í fimm ár, og skor­aði 83 deild­ar­mörk í 127 leikjum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár