Gunnar Bragi: Sýndi mikið dómgreindarleysi

Tveir þing­menn Mið­flokks­ins taka sér leyfi frá þing­störfum.

Gunnar Bragi Sveins­son, þing­maður Mið­flokks­ins, hefur ákveðið að taka sér leyfi frá þing­störfum og ásamt Bergþóri Ólasyni, þing­manni sama flokks.

Ástæðan er fundur sex þing­manna Mið­flokks­ins og Flokks fólks­ins á Klaustur bar, 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn, en upp­tökur náð­ust af sam­tali þing­mann­anna þar sem þeir töl­uðu meðal ann­ars með niðr­andi hætti um sam­starfs­fólk sitt á þingi, ekki síst konur.

Karl Gauti Hjalta­son og Ólafur Ísleifs­son hafa þegar verið reknir úr Flokki fólks­ins, en þeir munu sitja áfram sem þing­menn, þrátt fyrir það, og segj­ast hvor­ugur ætla að segja af sér.

Hið sama gerði Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, í bréfi til flokks­manna Mið­flokks­ins í dag, en hann sagð­ist í bréf­inu sjá eftir að hafa ekki stoppað þessar umræður af.

Í yfir­lýs­ingu frá Gunnari Braga kemur fram að hann hafi gert mikil mis­tök, og að hann ætli sér nú að reyna að vinna úr þeim.

„Fyrir tíu dögum sýndi ég mikið dóm­greind­ar­leysi og hafði uppi orð sem eru engum sæm­andi. Það var mér mikið áfall að sjá hvaða orð­færi ég við­hafði og mun taka mig tíma að vinna úr því með vinum og fjöl­skyldu. Ég harma að hafa sært sam­starfs­fé­laga mína og fleiri og tek ábyrgð á hegðun minni. Vil ég þó segja að mis­tök gerum við mann­eskj­urnar víst og er öllu jafna auð­veld­ara að dæma en að fyr­ir­gefa. „Sá yðar er synd­laus er kasti fyrsta stein­inum“ Ég mun hafa það í huga hér eftir og hvet ykkur til þess sama. Ég vona að hlut­að­eig­andi fyr­ir­gefi mér þessa hegðun en vegna hennar hef ég ákveðið að taka mér leyfi frá þing­störfum,“ segir Gunnar Bragi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár