Metro undir Eyrarsund til Malmö

Fyrir níu árum sagði yfir­borg­ar­stjóri Kaup­manna­hafnar að hann sæi fyrir sér að Metro lest­ar­kerfið í Kaup­manna­höfn næði yfir Eyr­ar­sund til Malmö innan fárra ára­tuga. Fáir voru trú­aðir á þessa fram­tíð­ar­sýn. Nú er komið annað hljóð í strokk­inn.

Metro kerfið í Kaupmannahöfn hefur notið fádæma vinsælda. Og nú er stefnt að því að láta það teygja sig til Svíþjóðar.
Metro kerfið í Kaup­manna­höfn hefur notið fádæma vin­sælda. Og nú er stefnt að því að láta það teygja sig til Sví­þjóðar. Mynd: EPA

Frank Jensen, þáver­andi yfir­borg­ar­stjóri Kaup­manna­hafnar, lét ofan­greind orð falla á fundi með frétta­mönnum árið 2012. Tilefni fund­ar­ins var und­ir­ritun sam­komu­lags borg­ar­stjórna Kaup­manna­hafnar og Malmö um að ráð­ast í könnun á hugs­an­legri Metro teng­ingu yfir Eyr­ar­sund. Frank Jensen hafði þá verið yfir­borg­ar­stjóri (borg­ar­stjór­arnir eru sjö) í tvö ár. Hann var áhuga­samur um skipu­lags­mál og beitti sér mjög í þeim efnum. Á borg­ar­stjóra­árum hans urðu miklar breyt­ingar á Kaup­manna­höfn, ekki síst á gömlu hafn­ar­svæð­unum, Norður- og Suð­ur­höfn­inni. Frank Jensen hafði sömu­leiðis mik­inn áhuga á auk­inni sam­vinnu við borg­ar­yf­ir­völd í Malmö og lagði mikla áherslu á sam­vinnu „yfir sundið“ eins og hann komst gjarna að orði.

Á áður­nefndum frétta­manna­fundi sagði yfir­borg­ar­stjór­inn að Metro lest­ar­kerfið væri frá­bær sam­göngu­bót. En „þetta væri bara byrj­unin“ sagði yfir­borg­ar­stjór­inn. Þetta var löngu áður en lín­urnar M3 „hring­línan“ og M4, sem liggur í Norð­ur­höfn­ina, voru teknar í notkun. Á hring­lín­unni eru 17 stöðvar, þar á meðal Ráð­hús­torgið og Aðal- járn­braut­ar­stöðin (Hoved­banegår­den). Á M4 lín­unni eru nú 8 stöðvar en árið 2024 bæt­ast 5 nýjar stöðvar við.

Ekki ofmælt

Frank Jensen yfir­borg­ar­stjóri tók ekki of djúpt í árinni þegar hann hældi Metro í hástert. Kerfið hefur reynst vel, ferð­irnar eru mjög tíðar, á hánna­tíma ein­ungis 90 sek­úndur á milli lesta, ann­ars oft­ast ein­ungis 2-3 mín­útur, leiða­kerfið auð­skilið og greiðslu­kerfið ein­falt. Þær ganga allan sól­ar­hring­inn, ferðir eru strjálli á nótt­inni. Metro lest­irnar byrj­uðu að renna eftir tein­unum 19. októ­ber árið 2002, og slógu strax í gegn ef svo mætti að orði kom­ast.

Daglega ferð­ast að jafn­aði hátt í 200 þús­und manns með lest­unum og fjölgar sífellt. Metro hefur margoft verið valið besta borg­ar­lesta­kerfi í heimi og víða um lönd er bent á það sem fyr­ir­mynd í þessum efnum. Mörgum, sem ekki þekkja til, þykir ein­kenni­legt að sjá lest­ina bruna inn á stöð­ina og eng­inn lest­ar­stjóri sjá­an­legur. Skýr­ingin er ein­föld: það er eng­inn stjóri og ekk­ert stýri, allt tölvu­stýrt.

Hugsuðu ekki nógu stórt

Þegar skipu­lagn­ing og und­ir­bún­ingur Metro lest­ar­kerf­is­ins byrj­aði á síð­asta ára­tug lið­innar aldar var í mörg horn að líta. Þar á meðal var spurn­ingin um lengd lest­anna og þá jafn­framt braut­ar­pall­anna á stöðv­unum. Um þetta atriði voru skoð­anir skiptar. Á end­anum var ákveðið að í hverri lest yrðu þrír vagnar, sam­tals 39 metrar á lengd (2.65 metrar á breidd) og lengd braut­ar­pall­anna í sam­ræmi við það.

[adspot]

Hámarks­fjöldi í hverri lest er 306, 234 stæði og 72 sæti. Í upp­hafi voru hug­myndir uppi um að hafa lest­irnar og braut­ar­pall­ana lengri en það hefði þýtt auk­inn kostnað, sem var ærinn.

Ekki voru liðin mörg ár, frá því að lest­irnar voru teknar í notkun, þegar stjórn­endur Metro (og margir aðrir) fóru að velta fyrir sér hvernig hægt yrði að bregð­ast við síauknum far­þega­fjölda. Mjög erfitt er að lengja braut­ar­pall­ana og fjölga þannig vögnum í hverri lest. Nýir vagnar sem keyptir hafa verið eru þannig að sætin eru langs í vögn­unum, en ekki þversum, þannig nýt­ist plássið betur. Önnur leið til að mæta fjölgun far­þega er að auka ferða­tíðn­ina. Nú klóra stjórn­endur og stjórn­mála­menn sér í koll­inum yfir að hafa ekki verið fram­sýnni á sínum tíma. „Horfðum meira í pen­ing­ana en á fram­tíð­ina“ sagði einn stjórn­enda Metro.

Fáir trúðu á framtíðarsýnina

Eins og fyrr var getið voru fáir trú­aðir á fram­tíð­ar­sýn Frank Jensen yfir­borg­ar­stjóra um Metro til Malmö þegar hann, árið 2012, kynnti fyr­ir­hug­aða könnun á mögu­leika og hag­kvæmni slíkrar teng­ingar. Mikil vinna var lögð í þessa könnun og í síð­ustu viku lá skýrsla starfs­hóps­ins fyrir, eftir 9 ára vinnu. Þegar Frank Jensen hafði séð fyrstu drög að skýrsl­unni árið 2018 sagði hann að sú sýn sem sig hefði dreymt um árið 2012, liti nú út fyrir að geta ræst. Frank Jensen sá fyrir sér að Kaup­manna­hafn­ar­svæðið og Suður-Skánn yrðu eitt atvinnu­svæði.

Bæjar- og sveit­ar­stjórn­ar­mönnum Sví­þjóð­ar­megin sunds­ins leist mörgum vel á hug­myndir yfir­borg­ar­stjór­ans en síður á þá hug­mynd að kalla svæðið „Greater Copenhagen“. Svíarnir vildu tengja nafnið Eyr­ar­sundi með ein­hverjum hætti. Frank Jensen sagði hins­vegar að allir þekki Kaup­manna­höfn en margir hafi ekki hug­mynd um „þetta Eyr­ar­sund“ eins og hann orð­aði það. Það kom ekki í hans hlut að kynna skýrsl­una því hann sagði af sér, sem yfir­borg­ar­stjóri og vara­for­maður danskra sós­í­alista í októ­ber á síð­asta ári vegna ásak­ana um kyn­ferð­is­lega áreitni.[links]

Allt mælir með Metro til Malmö

Í skýrsl­unni, sem er mjög yfir­grips­mikil, er farið nákvæm­lega yfir kosti þess að leggja Metro milli borg­anna tveggja, Kaup­manna­hafnar og Malmö.

Því starfs­fólki sem býr á svæð­inu, og gæti kom­ist frá heim­ili til vinnu á innan við klukku­stund, myndi fjölga um að minnsta kosti hálfa milljón frá því sem nú er og verða að minnsta kosti 1,3 millj­ónir.

Ferða­tím­inn milli Kaup­manna­hafnar og Malmö stytt­ist úr 40 mín­útum í 23 mín­útur og það sem skiptir meira máli í þessu sam­hengi er að ferða­tíðnin verður miklu meiri. Gert er ráð fyrir að Metro lest bruni af stað með 90 sek­úndna milli­bili, í báðar áttir.

Femern teng­ingin, yfir sam­nefnt sund milli Dan­merkur og Þýska­lands, verður, ef áætl­anir stand­ast, tekin í notkun árið 2029. Hún styttir ferða­tím­ann til Mið- og Suður Evrópu og það hefur í för með sér aukna fragt­flutn­inga frá Noregi og Svíþjóð um Danmörku. Fyrirséð er að „flösku­háls“ muni, að óbreyttu, mynd­ast við Eyr­ar­sunds­brúna, milli Dan­merkur og Sví­þjóðar, hún er nefni­lega brátt komin að þol­mörkum, hvað lest­irnar varðar.

Í þessu sam­bandi er rétt að nefna að sam­kvæmt mark­miðum Evr­ópu­sam­bands­ins eiga 30% af öllum vörum sem fluttar eru lengri vega­lengd en 300 kíló­metra að fara fram með lestum, eða skipum.

Með til­komu Metro teng­ingar yfir sundið myndi ferðum „hefð­bund­inna“ lesta yfir sundið fækka og það minnkar álagið á járn­braut­ar­tein­ana á Eyr­ar­sunds­brúnni.

Metrogöng undir sundið

Gert er ráð fyrir að gerð verði göng undir Eyr­ar­sund fyrir Metro lest­irnar. Þau verða fyrir norðan Eyr­ar­sunds­brúna, um það bil 22 kíló­metra löng frá strönd til strandar og eiga að liggja frá norð­ur­hluta Amager til aðal­járn­braut­ar­stöðv­ar­innar í Malmö.

Kostn­að­ar­á­ætlun þess­arar miklu fram­kvæmdar hljóðar upp á 30 millj­arða danskra króna (591 millj­arð íslenskra króna). Gert er ráð fyrir því í skýrslu starfs­hóps­ins að verkið verði fjár­magnað með lang­tíma­lánum sem greidd verði með far­gjöldum not­end­anna. Enn­fremur er gert ráð fyrir sér­stökum styrkjum úr fram­kvæmda­sjóðum Evr­ópu­sam­bands­ins.

Hvenær?

Skýrslan áður­nefnda er ein­ungis fyrsta, en jafn­framt mik­il­vægt, skref í hugs­an­legri Metro teng­ingu yfir Eyr­ar­sund. Ef sam­komu­lag tekst um að ráð­ast í fram­kvæmd­ina og ljúka forms­at­riðum eigi síðar en árið 2025, gætu fram­kvæmdir haf­ist árið 2029. Þær gætu tekið sex ár og lokið árið 2035.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár