Hafið yfir allan skynsamlegan vafa að „Óli“ sé Ólafur Ólafsson

Í nið­ur­stöðu end­ur­upp­töku­nefndar vegna beiðni Ólafs Ólafs­sonar um end­ur­upp­töku Al Thani-máls­ins segir að það sé „hafið yfir allan skyn­sam­legan vafa“ að sá „Óli“ sem talað er um í sím­tali milli tveggja lög­manna, og var hluti gagna í mál­inu, sé Ólafur Ólafsson. Ólafur byggði end­ur­upp­töku­beiðni sína á því að svo væri ekki heldur að verið væri að ræða annan „Óla“.

Ólafur fór einnig fram á að málið yrði end­ur­upp­tekið vegna þess að tveir dóm­arar í Hæsta­rétti sem dæmdu í Al Thani-mál­inu, þeirra Árna Kol­beins­sonar og Þorgeirs Örlygs­sonar, hefðu verið van­hæfir til að fella dóm­inn vegna þess að synir þeirra hefðu starfað hjá slita­stjórn Kauþings. Þessari ástæðu var einnig hafnað af end­ur­upp­töku­nefnd.

Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrrum for­stjóri Kaup­þings, og Sigurður Ein­ars­son, fyrrum stjórn­ar­for­maður Kaup­þings, fóru líka fram á end­ur­upp­töku Al Thani máls­ins vegna tengsla dóm­ara við syni sína og vegna þess að sönn­un­ar­gögn hefðu verið metin rangt. Þeirra beiðnum var einnig hafnað.

Menn­irnir þrír voru allir dæmdir sekir í Hæsta­rétti í mál­inu í febr­úar 2015. Þar hlaut Hreiðar Már fimm og hálfs árs fang­elsi, Sigurður fjögur ár, og Ólafur fjögur og hálft ár. Magnús Guð­munds­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings í Lúx­em­borg, var líka dæmdur í fjög­urra og hálfs árs fang­elsi í mál­inu.

Nokkuð er síðan að úrskurður end­ur­upp­töku­nefndar var kveð­inn upp, en það gerð­ist 26. jan­úar 2016. Upp­lýs­ingar um nið­ur­stöð­una urðu hins vegar ekki opin­berar fyrr en almanna­tengsla­fyr­ir­tækið KOM, sem starfar fyrir Ólaf Ólafsson, sendi frá sér frétta­til­kynn­ingu um hana fyrr í dag. Í frétta­til­kynn­ing­unni var gert grein fyrir von­brigðum Ólafs og sjón­ar­miðum hans vegna úrskurðar end­ur­upp­töku­nefndar. Úrskurð­ur­inn sjálfur fylgdi hins vegar ekki með. Kjarninn hefur síðan fengið úrskurð end­ur­upp­töku­nefndar vegna beiðni Ólafs Ólafs­sonar í hendur. Hann má lesa hér.

Í nefnd­inni sátu Elín Blöndal, sem var for­maður hennar, Berglind Svav­ars­dóttir og Krist­björg Steph­en­sen.

Tvær ástæður fyrir endurupptöku að mati Ólafs

Ólafur óskaði form­lega eftir því í maí 2015 við end­ur­upp­töku­nefnd að Al Thani-málið yrði tekið upp að nýju. Ástæðan var sú að hann taldi að í dómi Hæsta­réttar væru sönn­un­ar­gögn í mál­inu rangt metin.

Þar vísar hann sér­stak­lega í sím­tal sem átti sér stað 17. sept­em­ber 2008 milli lög­manns­ins Bjarn­freðar Ólafs­sonar og Eggert Hilm­ars­sonar, sem hafi verið fram­kvæmda­stjóri lög­fræðis­viðs Kaup­þings í Lúx­em­borg. Í sím­tal­inu var talað um „Óla“ og vildi Ólafur Ólafsson meina að hann hafi verið sak­fellur ein­vörð­ungu á grunni þessa sím­tals. Hann vildi hins vegar einnig meina að umræddur „Óli“ hefði ekki verið hann, heldur Ólafur Arin­björn Sig­urðs­son, lög­maður.

Hin ástæðan sem Ólafur lagði fyrir end­ur­upp­töku­nefnd, og krafð­ist end­ur­upp­töku máls síns vegna, var sú að tveir synir dóm­ara við Hæsta­rétt sem kveðið hafi upp dóm yfir honum í Al Thani-mál­inu hefðu unnið hjá slita­stjórn Kaup­þings og hefðu beinan fjár­hags­legan ávinn­ing af því að sak­fell­ing hefði feng­ist í mál­inu.

Afar ótrúverðugur framburður Bjarnfreðs fyrir dómi

Rík­is­sak­sókn­ari skil­aði umsögn í mál­inu og sagði aug­ljóst að í sím­tal­inu sem átti sér stað 17. sept­em­ber 2008 hafi verið rætt um Ólaf Ólafsson. Þar er meðal ann­ars nefnt að í sím­tal­inu hafi verið talað um mann sem hafi verið „inni í Eglu“, en Egla er félag sem var í eigu Ólafs og hélt á eign­ar­hlut hans í Kaup­þingi. Í grein­ar­gerð hans segir einnig að í fram­hald­inu hafi Eggert og Bjarn­freður rætt að ,,hann megi ekki flagga, upp­leggið sé að aðeins Quatarinn flaggi en að Ólafur þurfi nátt­úru­lega að fá sinn part í kök­unni". Þar sé ljóst að verið sé að ræða Ólaf Ólafsson, eða Quatarinn í þessu sam­hengi er Sjeik Al Thani.

Bjarn­freður, sem var um tíma til rann­sóknar í Al Thani-mál­inu, var skatta­ráð­gjafi Ólafs Ólafs­sonar og stjórn­ar­maður í Kaup­þingi fyrir hrun, sagði fyrir dómi að hann hefði ekki rætt upp­lag Al Thani-við­skipt­anna við Ólaf Ólafs­sonar. Rík­is­sak­sókn­ari segir að taka þurfi til­lit til þess að Bjarn­freður hafi gefið „afar ótrú­verð­ugan og óstöðugan fram­burð fyrir dómi, sem hafi vikið að veru­legu leyti frá fram­burði hans hjá lög­reglu. Hafi raunar verið fjallað sér­stak­lega um það af Hæsta­rétti og þá stað­reynd að sumir ákærðu hafi virst vita af því að BÓ[Bjarn­freður] hygð­ist breyta fram­burði sínum fyrir dómi. Sé því ljóst að ekki sé mikið byggj­andi á því sem fram hafi komið hjá BÓ fyrir dómi um stað­reyndir máls­ins. Öðru máli gegni um sím­töl hans við EH [Eggert Hilm­ars­son], sem fyrir hafi legið í mál­inu, enda þar um að ræða sam­tíma­gögn.“

Því taldi rík­is­sakskón­ari ljóst að þau sönn­un­ar­gögn sem Ólafur vís­aði í hafi ekki verið rangt metin í dómi Hæsta­réttar. Þvert â móti liggi fyrir að Hæsti­réttur hafi tekið þau til sér­stakrar skoð­unar og kom­ist síðan að „rök­studdri og réttri nið­ur­stöðu um þau“. Jafnvel þótt umrædd gögn hefðu verið rangt metin hafi það engu skipt um nið­ur­stöðu dóms­ins, enda fjöl­mörg önnur atriði sem hafi rök­stutt sak­fell­ingu.

Hafið yfir allan skynsamlegan vafa

Í nið­ur­stöðu end­ur­upp­töku­nefndar er rök­semdum Ólafs Ólafs­sonar fyrir end­ur­upp­töku Al Thani-máls­ins hafnað afger­andi. Þar segir að það fái ekki stað­ist „sú rök­semd end­ur­upp­töku­beið­anda að í sím­tal­inu hinn 17. sept­em­ber hafi Bjarn­freður rætt um Ólaf Arin­björn sem „Óla“. Breytir yfir­lýs­ing Bjarn­freðs sem lögð var fram fyrir end­ur­upp­töku­nefnd ekki þeirri nið­ur­stöðu. Á grund­velli fram­an­greinds er að mati end­ur­upp­töku­nefndar hafið yfir allan skyn­sam­legan vafa að sá „Óli“ sem Bjarn­freður kallar svo í sím­tal­inu frá 17. Sept­em­ber 2008 og Eggert kallar „Ólaf“ er end­ur­upp­töku­beið­andi Ólafur Ólafsson.“

Því fellst nefndin ekki á að veru­legar líkur hafi verið leiddar að því að sönn­un­ar­gögn, sem færð voru fram í Al Thani-mál­inu, hefðu verið rangt metin þannig að þau hafi haft áhrif á nið­ur­stöðu Hæsta­réttar í mál­inu.

Hvorugur dómaranna vanhæfir til að fara með málið

Ólafur fór einnig fram á að málið yrði end­ur­upp­tekið vegna þess að tveir dóm­arar í Hæsta­rétti sem dæmdu í Al Thani-mál­inu, þeirra Árna Kol­beins­sonar og Þorgeirs Örlygs­sonar, hefðu verið van­hæfir til að fella dóm­inn. Ástæðan væri sú að slitabú Kaup­þings hefði höfðað bóta­mál á hendur Ólafi og Hreiðari Má Sig­urðs­syni og krafið þá um 12,9 millj­arða króna í skaða­bætur vegna lán­veit­ingar sem er hluti af Al Thani-mál­inu.

Synir dóm­ar­anna, Þeir Kolbeinn Árnason og Þórarinn Þor­geirs­son, hafi báðir starfað fyrir Kaupþing og vildi Ólafur meina að báðir hefðu „mikla hags­muni af því að sak­fellt yrði í mál­inu“. Þar vís­aði hann sér­stak­lega í frétt sem birt­ist í DV í lok maí 2015 þar sem full­yrt var að núver­andi og fyrr­ver­andi starfs­menn slita­bús Kaup­þings eigi í vændum háar fjár­hæðir í kaupauka vegna nauða­samn­inga við kröfu­hafa.

Nið­ur­staða end­ur­upp­töku­nefndar er hins vegar skýr. Þar segir að ekki sé „unnt að fall­ast á að hags­munir Kolbeins og Þórarins verði lagðir að jöfnu við mögu­lega fjár­hags­lega hags­muni slita­bús Kaup­þings hf. af nið­ur­stöðu í [Al Thani-mál­inu] vegna starfa þeira ein­göngu, heldur verður að líta til þess hvort þeir hafi eða muni hafa ein­herra þeirra sér­stöku hags­muna að gæta af úrlausn hæsta­rétt­ar­máls­ins að valdið geti van­hæfi dóm­ara.“

Í nið­ur­stöð­unni er rakið að Kolbeinn Árnason hafi starfað sem fram­kvæmda­stjóri lög­fræðis­viðs slita­bús Kaup­þings á árunum 2008 til 2013, en hafi látið að störfum sextán mán­uðum áður en faðir hans tók sæti í Al Thani-mál­inu. Þórarinn hafi síðan verið eft­ir­maður Kolbeins í starfi. Í nið­ur­stöðu end­ur­upp­töku­nefndar segir að „hvorki Kolbeinn né Þórarinn sitja, eða hafa setið, í slita­stjórn Kaup­þings hf. og hvor­ugur þeirra hefur rekið bóta­málið sem höfðað var af Kaup­þingi gagna­vart end­ur­upp­töku­beið­anda og Hreiðari Má Sig­urðs­syni[...]Þá hefur ekki verið sýnt fram á að Kolbeinn eða Þórarinn hafi notið eða muni njóta hags­muna, fjár­hags­legra eða ann­arra, af nið­ur­stöðu í [Al Thani-mál­inu].“ Því hafi hvorki Árni né Þorgeir verið van­hæfir til að fara með Al Thani-málið.

Þar af leið­andi var beiðni Ólafs hafnað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár