Hreiðar og Sigurður vilja endurupptöku Al Thani-málsins - segja dómara vanhæfan

Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og Sigurður Ein­ars­son, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður bank­ans, hafa farið fram á að Al Thani-málið verði end­ur­upp­tekið. Ólafur Ólafsson hefur einnig farið fram á það. Þetta kemur fram í Við­skipta­blað­inu í dag. Hreiðar afplánar nú fimm og hálfs árs dóm í mál­inu en Sigurður fjög­urra ára dóm.

End­ur­upp­töku­beiðni Hreiðars og Sigurðar bygg­ist ann­ars vegar á því að Árni Kol­beins­son, einn dóm­enda máls­ins í Hæsta­rétti, hafi verið van­hæfur og hins vegar á því að sönn­un­ar­gögn hafi verið metin rangt. Við­skipta­blaðið hefur end­ur­upp­töku­beiðn­ina undir höndum.

Árni Kol­beins­son var skip­aður vara­dóm­ari í mál­inu að því er fram kemur þar. Mál­flytj­endum hafi verið til­kynnt í des­em­ber í fyrra að eig­in­kona hans, Sigríður Thorlacius, hafi setið í stjórn Fjár­mála­eft­ir­lits­ins fram í jan­úar 2009. Fjár­mála­eft­ir­litið var með Al Thani-málið til rann­sóknar á þeim tíma. Þá var óskað eftir því að mál­flytj­endur gerðu athuga­semdir við setu Árna ef þeir hefðu þær, en svo var ekki gert.

Nú segja Hreiðar og Sigurður hins vegar að eftir að dómur var geng­inn í mal­inu hafi komið fram upp­lýs­ingar um að sonur Árna hefði starfað sem for­stöðu­maður lög­fræðis­viðs slita­stjórnar Kaup­þings frá 2008 og 2013. Þetta hafi verið nýjar upp­lýs­ingar sem ekki hafi verið upp­lýst um. Hags­munir slita­stjórnar Kaup­þings af sak­fell­ingu þeirra í mál­inu hafi verið aug­ljósir.

„Svo virð­ist sem sonur dóm­ar­ans hafi sinnt störfum fyrir slita­stjórn Kaup­þings þegar dóm­ar­inn tók sæti í mál­inu og dæmdi það. Líklegt er að son­ur­inn hafi tekið þátt í ákvörð­unum um að stefna Hreiðari Má og Ólafi til greiðslu skaða­bóta en sú ákvörðun hefur verið byggð á sömu atvikum og fjallað var um í hæsta­rétt­ar­mál­inu. Hafði hann, ásamt slita­stjórn Kaup­þings, því hags­muna að gæta af nið­ur­stöðu máls­ins. Kunna þeir hags­munir að vera fjár­hags­legir og umtals­verðir í ljósi ofan­greinds um mögu­legar kaupauka­greiðslur til hans,“ segir í end­ur­upp­töku­beiðn­inni. Þetta sé til þess fallið að vekja upp rétt­mætar efa­semdir um óhlut­drægni Árna.

Taka undir Óla-ruglinginn


Þá taka Hreiðar og Sigurður undir það sem Ólafur Ólafsson hefur sagt og heldur fram í sinni end­ur­upp­töku­beiðni, sem er að Hæsti­réttur hafi rugl­ast á Ólafi og Ólafi Arin­birni Sig­urðs­syni við skoðun á máls­gögnum. Þeir segja að þessi „mis­tök Hæsta­réttar“ hafi haft veru­leg áhrif við ákvörðun refs­ingar.

Björn Þor­valds­son, sem sótti Al Thani-málið fyrir hönd emb­ættis sér­staks sak­sókn­ara, hefur hins vegar sagt það mis­skiln­ing að Ólafur hafi verið dæmdur í fang­elsi á grund­velli mis­skiln­ings.

Það sé alveg skýrt að í því sím­tali þar sem rætt hafi verið um „Óla“ sem Hæsti­réttur fjallar um sé verið að ræða Ólaf Ólafsson, ekki lög­fræð­ing með sama for­nafni sem sé sér­fræð­ingur í kaup­hall­ar­við­skiptum. „Bæði í ljósi þess sem fram kemur í sím­tal­inu og sam­heng­is­ins þá er í fyrsta lagi alveg klárt mál að það er verið að tala um Ólaf Ólafsson í þessu sím­tali. Í öðru lagi, sem kemur í ljós fyrir öllum sem lesa dóm­inn, þá eru fullt af öðrum gögnum, tölvu­póstar og fram­burðir og annað, sem benda til aðkomu Ólafs. Þannig að ef þessu sím­tali yrði kippt út yrði hann sak­felldur eftir sem áður,“ sagði Björn í sam­tali við Kjarnann í vor.

Þrír þegar vikið úr endurupptökunefnd


Tveir aðal­menn og einn vara­maður í end­ur­upp­töku­nefnd hafa þegar vikið sæti vegna van­hæfis í mál­inu eftir að Ólafur lagði inn sína end­ur­upp­töku­beiðni í maí. Á meðal þeirra sem vikið hafa sæti er Björn L. Bergsson, for­maður nefnd­ar­innar. Auk hans hafa vikið Þórdís Inga­dóttir og Sigurður Tómas Magn­ús­son, vara­maður Þórdísar í nefnd­inni. Lögmaður Ólafs hefur einnig farið fram á að Krist­björg Steph­en­sen, borg­ar­lög­maður og vara­maður Björns í nefnd­inni, víki sæti.

Í Við­skipta­blað­inu í dag kemur fram að Krist­björg muni ekki víkja sæti, sam­kvæmt nið­ur­stöðu nefnd­ar­innar sem tók málið fyrir. Því sé komið á hreint að Krist­björg muni eiga sæti í nefnd­inni ásamt Elínu Blöndal, lög­fræð­ingi hjá Háskóla Íslands, og Berg­lindi Svav­ars­dóttur hæsta­rétt­ar­lög­manni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár