Lagt til munnlega að fjölga virkjanakostum

Meiri­hluti atvinnu­vega­nefndar Alþingis lagði fram breyt­inga­til­lögu á þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um Hvamms­virkjun á fundi í morgun. Lagt var til að fjórir virkj­ana­kostir til við­bótar við Hvamms­virkjun yrðu sendir í umsagn­ar­ferli, en þetta var gert munn­lega og málið var ekki á dag­skrá nefnd­ar­innar í morgun.

Lilja Rafney Magn­ús­dóttir þing­kona Vinstri grænna vakti athygli á þessu í upp­hafi þing­fundar í morgun, og skap­að­ist tals­verð umræða um málið í kjöl­farið. Stjórn­ar­and­stæð­ingar kröfð­ust þess að hlé yrði gert á þing­fundi og þing­flokks­for­menn og for­sætis­nefnd myndu funda um málið. Var Jón Gunn­ars­son, for­maður atvinnu­vega­nefndar, sak­aður um lög­brot með því að leggja málið fram. Hann vís­aði gagn­rýni á bug á þing­fund­inum. Jón olli upp­námi á þing­inu í nóv­em­ber með því að leggja þá til við nefnd­inar að átta virkj­un­ar­kostum yrði bætt við þings­á­lykt­un­ar­til­lög­una.


Einar K. Guð­finns­son, for­seti Alþingis, sam­þykkti að halda fund um málið í hádeg­is­hléi þing­fundar. Fjörutíu mín­útum eftir að þing­fundur hófst er enn verið að ræða málið undir liðnum fund­ar­stjórn for­seta.


Virkj­an­irnar sem um er að ræða eru Hvamms­virkjun, Holta­virkjun og Urriða­foss­virkjun í Þjórsá og svo Haga­vatns­virkjun, sam­kvæmt því sem kom fram á Alþingi í morgun. Ekki er búið að leggja fram neina skrif­lega til­lögu um málið.


Verk­efn­is­stjórn áætl­unar um vernd og orku­nýt­ingu land­svæða lagði aðeins til að Hvamms­virkjun yrði flutt úr bið­flokki í orku­nýt­ing­ar­flokk í til­lögum sínum til ráð­herra. Hún gerði ekki til­lögur um að breyta röð virkj­un­ar­kosta sem fram koma í núgild­andi verndar- og orku­nýt­ing­ar­á­ætlun, sem var sam­þykkt á Alþingi 14. jan­úar 2013.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár