Markmiðin útiloka ekki takmark SÞ um 2°C hlýnun

Sam­ein­uðu þjóð­irnar eru bjart­sýnar fyrir lofts­lags­ráð­stefn­una í París. Tak­markið um aðeins tveggja gráðu hlýnun er enn mögu­legt.

Christiana Figueres er framkvæmdastjóri loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna. Hún segist enn bjartsýn um að hægt sé að ná markmiðum SÞ.
Christiana Figueres er fram­kvæmda­stjóri lofts­lags­ráð­stefnu Sam­ein­uðu þjóð­anna. Hún seg­ist enn bjart­sýn um að hægt sé að ná mark­miðum SÞ. Mynd: EPA

Eftir að hafa farið yfir lofts­lags­mark­mið 146 ríkja heims­ins hafa Sam­ein­uðu þjóð­irnar (SÞ) kom­ist að nið­ur­stöðu um að það sé ekki úti­lokað að halda hlýnun jarðar undir tveimur gráðum árið 2100. Stefnu­mót­un­ar­mark­mið ríkj­anna eru til 15 ára; til 2030. Samkvæmt spám verður mann­kynið búið að nýta meira en helm­ing „útblást­urs­heim­ilda“ sinna áður en þessi 15 ár eru liðin.

Skrif­stofa lofts­lags­breyt­inga hjá SÞ segir mann­kynið þurfa að taka enn stærri skref árið 2030 til að koma í veg fyrir alvar­leg áhrif á loft­sag jarðar. Ekki verður hægt að koma í veg fyrir eða snúa þeirri þróun við.

„Í fyrsta sinn hefur alheims­á­tak átt sér stað í bar­átt­unni gegn lofts­lags­breyt­ingum. Það styrkir trú okkar á því að hægt verði að ná mark­mið­inu um hlýnun undir 2°C,“ segir í skýrslu um stefnu­mót­un­ar­mark­miðin. „Framlög þjóð­anna gefa okkur nýja von um að við getum skilið okkur frá hinu versta.“

Í til­kynn­ingu frá lofts­lags­ráð­stefnu Sam­ein­uðu þjóð­anna segir einnig að þeim mun lengur sem beðið er með að grípa til aðgerða verði erf­ið­ara að grípa inn í. Áætlanir þess­ara 146 ríkja munu hafa áhrif á 86 pró­sent útblást­urs gróð­ur­húsa­loft­teg­unda í heim­inum. Kýótó-bók­unin náði aðeins utan um fjórð­ung þess sem nú verður rætt á lofts­lags­ráð­stefn­unni í París í des­em­ber.

„Mark­miðin geta tak­markað hlýnun jarðar árið 2100 í 2,7 gráður, gangi spár eftir. Það er alls ekki nóg en mun lægra en því sem spáð er án þess­ara mark­miða,“ er haft eftir Christiana Figueres, fram­kvæmda­stjóri lofts­lags­ráð­stefnu SÞ, í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár