Miðlar jaðarsettum röddum með Gargi

Garg er ný bókabúð í miðbænum sem deilir rými með keramik-stúdíóinu Klei Atelier á Baldurs­götu 36. Grafíski hönnuðurinn Helga Dögg rekur verslunina, en hún lauk við meistara­gráðu í faginu í Eistlandi nú í vor og vinnur að því að stækka úrvalið af bókum í Reykjavík.

Helga hefur starfað við grafíska hönnun síðastliðinn áratug en á þeim tíma hefur áhugasvið hennar stækkað, ekki síst vegna starfa hennar við útgáfu bóka og annars prent­efnis.

Undir­rituð hitti Helgu í bóka­búðinni á dögunum. Rýmið er lítið en hver bók fær sitt pláss. Því eru bækurnar ekki margar en úrvalið er handvalið af Helgu. Við ræddum um persónulegt samband Helgu við bækur, námið í Eistlandi og þá iðju að veita öðrum pláss.

Hönnuður gerist bóksali

Helga hefur hannað bækur og annað prentefni í 10 ár. Fagstjórinn í BA-námi hennar við Lista­háskóla Íslands var bóka­hönnuðurinn Birna Geirfinns­dóttir, sem hafði mikil áhrif á Helgu. Bóka­hönnun krefst mikillar nákvæmni en Helga hefur sínar efasemdir um kröfuna að allt þurfi að vera fullkomið. Henni þykir skemmtilegast að setja upp texta, enda fær hún þannig að lesa á meðan hún vinnur.

 Áhugi Helgu á bókum hefur alltaf verið til staðar …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár