Árni Páll hættur við að bjóða sig fram til formanns

Árni Páll Árnason, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, er hættur við að bjóða sig fram til for­manns á nýjan leik. Þetta kemur fram í tölvu­pósti sem hann sendi til flokks­manna Sam­fylk­ing­ar­innar rétt í þessu.

Í póst­inum segir Árni Páll að hann geti ekki horft fram­hjá því að um hans per­sónu og sýn sé ekki ein­ing og atburða­rásin á og frá síð­asta lands­fundi flokks­ins veki honum efa­semdir um að ein­ing geti skap­ast með hann sem for­mann. „Mín byði því erfið bar­átta, innan flokks sem er í sárum, sem eng­inn veit hverju myndi skila.“

Hann segir að staða flokks­ins sé óásætt­an­leg. „Sem fyrr vara ég flokks­fólk við að halda að á henni séu ein­faldar lausnir. En hug­sjónir jafn­að­ar­manna þurfa sam­hentan og skyn­saman flokk sem ber þær fram og per­sónur geta ekki staðið þeim framar. Ég hef því ákveðið að bjóða mig ekki fram til end­ur­kjörs sem for­maður flokks­ins.“

Hann seg­ist óend­an­lega þakk­látur öllu stuðn­ings­fólki sínu um land allt fyrir stuðn­ing og hvatn­ingu. „Þjóðin á skilið að eiga öfl­ugan jafn­að­ar­flokk, sem styður þann for­mann sem flokks­menn velja til for­ystu í alls­herj­ar­at­kvæða­greiðslu. Ég mun gera mitt til að svo verði. Vonandi birt­ist sá flokkur þjóð­inni 4. júní næst­kom­andi og sýnir sig til­bú­inn til verka.​“

Árni Páll til­kynnti í síð­ustu viku að hann myndi sækj­ast eftir end­ur­kjöri sem for­maður flokks­ins.

Þetta þýðir að fjórir fram­bjóð­endur munu berj­ast um for­manns­stól­inn í Sam­fylk­ing­unni í byrjun júní. Helgi Hjörvar, Oddný Harð­ar­dóttir, Magnús Orri Schram og Guð­mundur Ari Sig­ur­jóns­son eru öll búin að lýsa yfir fram­boði til for­manns.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár