Hetja sem berst fyrir lítilmagnann

Jakob S. Jónsson fjallar um Aisha eftir Jesper Stein.

Jesper Stein kvaddi sér hljóðs á dönskum krimma- og lögreglu­sagna­markaði með bókinni Órói árið 2012 en fyrir hana fékk hann verðlaun Dönsku sakamála­akademíunnar fyrir bestu frumraun. Ári síðar kom önnur bókin í flokknum, Bye, bye, blackbird, og þvínæst sú þriðja, Akrash, árið 2014. Fjórða bókin er svo Aisha, sem kom út á frum­málinu – sem er sú fyrsta sem ratar fyrir augu íslenskra lesenda – en á eftir Aishu komu Papa (2017) og Solo (2018). Fari svo að Aisha öðlist vinsældir íslenskra lesenda þarf ekki að hafa áhyggjur af því að Jesper Stein lumi ekki á fleiri spennu­sögum í pokahorni sínu.

Í sögum sínum teflir Stein fram lögreglu­manninum Axel Steen sem á sér þegar komið er að Aishu nokkra forsögu innan lögreglunnar. Fyrir nokkrum árum horfðist hann í augu við dauðann þegar hann tók þátt í meiriháttar leyni­aðgerð lögreglunnar, hann er skaddaður á líkama og sál eftir þá reynslu og dóttir hans óttast um líf hans. Hann hefur auk þess neyðst til að flýja heimili sitt og á hann sækja alls kyns draugar fortíðar þegar hann fær nú í hendur stórfenglegt morðmál sem leynir verulega á sér.

Fórnar­lambið í morðmáli er fyrr­verandi leyni­þjónustu­maður í hryðjuverka­deild leyni­þjónustu dönsku lögreglunnar – og auk þess sann­kallaður kvenna­bósi. Axel vinnur að lausn málsins undir stjórn nýs yfirmanns, sem leggur fæð á hann auk þess sem hann hefur fengið nýjan samstarfs­mann innan lögreglunnar, en hvorugt verður til að auðvelda Axel að vinna að lausn málsins. Hann vill auk þess fara nokkuð óhefðbundna leið að lausninni, sem vekur litla hrifningu þeirra sem næst honum standa og verður bæði til að valda Axel skaða – en reynist líka lykillinn að lausninni. Sú lausn er reyndar hættuleg vissum samfélags­öflum og Axel karlinn þarf að berjast á mörgum vígstöðvum þegar árekstrar verða milli rann­sóknarinnar og einkalífs hans og hann mætir meiri mótstöðu innan lögreglunnar en hann átti von á.

Skemmst frá að segja tekst Jesper Stein að skrifa ákaflega spennandi, svo ekki sé sagt æsilega frásögn, sem heldur lesandanum föngnum frá upphafi til enda. Axel Steen er marg­brotinn karakter, vel saminn af höfundi, sem gerir frásögnina lifandi og trúverðuga. Þar sakar örugglega ekki að Jesper Stein á að baki blaðamanns­feril þar sem hann skrifaði m.a. um lögreglumál, enda bera öll atriði sögunnar þar sem sagt er frá störfum lögreglunnar vitni um þekkingu og innsæi, sem spillir ekki fyrir spennunni.

Sagan byrjar sem morðsaga – morðið að vísu óvanalega hrottalegt og viðurstyggilegt – en þegar á líður verður ljóst að rannsóknar­hagsmunir stangast á við hagsmuni sterkra og valda­mikilla samfélags­afla og sagan þróast yfir í að verða pólí­tískur spennu­tryllir þar sem velt er upp mikil­vægum spurningum um siðferði og siðfræði, eðli stjórn­mála og sérhagsmuna og hvar það fer saman. Í því ljósinu er Aisha saga sem gerist beinlínis í okkar veruleika og nútíma og þótt sögu­sviðið sé Kaupmanna­höfn er varpað fram áleitnum spurningum sem við getum fyrr en varir átt von á að bregði fyrir í Kveik eða Kjarnanum. Heiðarleg ofurhetja sem gerir allt til að ná fram réttlæti fyrir fórnar­lömb glæps spyr ekki um sögusvið.

Ólafur Arnarson bregður Aishu í íslenskan búning og ferst það vel úr hendi, stíllinn er lipur og hraður sem hæfir sögu þar sem máli skiptir að lesanda sé haldið við efnið.

Sem fyrr segir má búast við að fleiri sögur um lögreglu­manninn Axel Steen rati í hendur íslenskra lesenda; kvikmynda­réttur fyrir fyrstu sögurnar þrjár hefur verið seldur kvikmynda­félagi og Jesper Stein hefur hlotið fjölda verðlauna auk frumrauna­verðlauna; Solo, sjötta sagan í bóka­röðinni, hlaut Harald Mogensen verðlaun Hinnar Dönsku Glæpasagna­akademíu, árið 2015 hlaut Jesper Stein Dan Thurell orðuna fyrir bóka­flokkinn sem slíkan, árið síðar hlotnaðist honum verðlaun danskra bóksala, Gullni lárviðurinn fyrir Aishu og enn ári síðar hlaut Jesper Stein Martha-verð­launin, sem eru verðlaun sem veitt eru þeim sem flest atkvæði hljóta hjá dönskum lesendum.

Það má því búast við nokkrum svefn­lausum nóttum í félags­skap Axel Steen, enda er auðvelt að heillast af hetjum sem berjast fyrir réttlæti lítilmagnans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár