Ríkið vill endurskoða öll fjárhagsleg samskipti við kirkjuna

Þjóð­kirkjan fær 370 millj­ónir auka­lega af fjár­auka­lögum sam­kvæmt til­lögu meiri­hluta fjár­laga­nefndar, sem var lögð fram á Alþingi í dag. Fram­lagið er háð því kirkjan „skuld­bindi sig til þess að hefja þegar þegar samn­inga­við­ræður um end­ur­skoðun kirkju­jarða­sam­komu­lags­ins sem feli í sér end­ur­skoðun allra fjár­hags­legra sam­skipta ríkis og kirkju (þ.m.t. hvað varðar sókn­ar­gjöld, jöfn­un­ar­sjóð sókna, fram­lög til kirkju­mála­sjóðs og Kristni­sjóðs) með veru­lega ein­földun þess­ara sam­skipta og hag­ræð­ingu að mark­miði.“

Gert er ráð fyrir því að þess­ari end­ur­skoðun á fjár­hags­legum sam­skiptum rík­is­ins og þjóð­kirkj­unnar verði lokið fyrir lok febr­úar á næsta ári.

Fram­lagið til Þjóð­kirkj­unnar er rök­stutt með því að reiknað sé sam­kvæmt upp­haf­legu kirkju­jarða­sam­komu­lagi, og þar með verði allar aðhalds­kröfur sem gerðar hafa verið til kirkj­unnar frá 2009 verði aft­ur­kall­aðar árið 2015.

Meiri­hluti fjár­laga­nefndar leggur einnig til 3,5 millj­arða króna hækkun á fjár­auka­lögum, sem fari í að mæta áhrifum nýgeng­inna gerð­ar­dóma um kjör hjúkr­un­ar­fræð­inga, félags­manna BHM og vegna kjara­samn­inga sem voru gerðir á seinni hluta þessa árs. Alls leggur meiri­hluti nefnd­ar­innar til að útgjöld hækki um fimm millj­arða króna. Aðrar helstu breyt­ingar sem lagðar eru til er hækkun til sjúkra­trygg­inga, sem nemur 835 millj­ónum króna. Þá hækka vaxta­gjöld um 421 milljón og fram­lög til jöfn­un­ar­sjóðs sveit­ar­fé­laga hækkar um 215 millj­ónir.

Betri afkoma en ætlað var í fjárlögum

Tvær meg­in­skýr­ingar eru sagðar á því að tekju­á­ætlun fjár­laga er hækkuð um sam­tals 31,7 millj­arða kr. í breyt­ing­ar­til­lög­unni. „Annars vegar hafa áhrif kjara­samn­inga, hátt atvinnustig og hag­stæðar þjóð­hags­horfur leitt til þess að nú er áætlað að skattar á tekjur og hagnað bæði ein­stak­linga og fyr­ir­tækja leiði sam­tals til 15,1 millj­arðs kr. hækk­unar frá fjár­lögum. Hins vegar er nú fyr­ir­séð að arð­greiðslur í heild hækka um 10,2 millj­arða kr. frá fjár­lögum. Þar munar lang­mest um arð­greiðslur frá Lands­banka Íslands sem nema um 15 millj­örðum kr. Á móti vegur reyndar lægri arð­greiðsla frá Seðla­banka Íslands.“ 

Þá vekur athygli að virð­is­auka­skattur og aðrir skattar á vöru og þjón­ustu eru nú taldir munu skila um 6,6 millj­örðum króna meira en áætlað var í fjár­lögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár