Kjósendur Verkamannaflokksins skiluðu sér ekki á kjörstað

Ástæða þess að kann­anir í aðdrag­anda þing­kosn­ing­anna í Bret­landi í maí voru svo á skjön við nið­ur­stöður kosn­ing­anna sjálfra var kosn­inga­þátt­taka vænt­an­legra kjós­enda Verka­manna­flokks­ins. Þeir skil­uðu sér illa á kjör­stað.

Þetta er nið­ur­staða bresku kosn­inga­rann­sókn­ar­innar sem birt var í gær. Þar er reynt að svara því hvers vegna kann­anir sýndu fylgi Íhalds­flokks­ins og Verka­manna­flokks­ins hnífjafnt síð­ustu mán­uð­ina áður en talið var upp úr kjör­köss­unum. Verka­manna­flokk­ur­inn hafði jafn­framt mælst stærstur nær allt kjör­tíma­bilið frá 2010.

Íhalds­flokk­ur­inn hlaut á end­anum 36,1 pró­sent atkvæða en Verka­manna­flokk­ur­inn 29 pró­sent. David Cameron, for­maður Íhalds­flokks­ins, gat jafn­framt myndað stjórn eins flokks stjórn að kosn­ingum loknum því flokk­ur­inn hlaut meira en helm­ing þing­sæta. Ed Miliband, for­maður Verka­manna­flokks­ins, sagði af sér for­mennsku í flokknum í kjöl­far kosn­inga.

Bresku kosn­inga­rann­sókn­inni svipar til þeirrar íslensku og er gerð í beinu fram­haldi af þing­kosn­ingum í Bret­landi. Kosn­inga­rann­sóknin hefur verið fram­kvæmd síðan 1964 og miðar að því að kort­leggja stjórn­mála­hegðun þjóð­ar­innar á hverjum tíma.

Fimm líklegar skýringar


Bresku stjórn­mála­rann­sak­end­urnir lögðu til fimm lík­legar skýr­ingar sem voru próf­aðar. Lík­leg­asta skýr­ingin á þessu mikla fylgis­tapi Verka­manna­flokks­ins er léleg kjör­sókn vænt­an­legra kjós­enda flokks­ins. Jafnvel þó kjör­sókn hafi verið 66,4 pró­sent í kosn­ing­unum segj­ast 91,6 pró­sent þátt­tak­enda í rann­sókn­inni hafa kosið.

Jafnvel þó þessi mikli munur gefi til kynna að úrtak svar­enda sé skekkt, þannig að þeir sem eru í úrtak­inu séu áhuga­sam­ari um kosn­ingar en hinn almenni kjós­andi, gefur þetta vís­bend­ingu um til­hneig­ingu svar­enda í könn­unum til að segj­ast hafa kosið eða ætla að kjósa. Aðrar rann­sóknir hafa bent til sams­konar til­hneig­inga.

Til dæmis sögð­ust 3-6 pró­sent svar­enda í fylgiskönnun þegar hafa póst­lagt atkvæði sitt, jafn­vel þó póst­seðlar hefðu ekki verið gefnir út. Þá sögð­ust 46 pró­sent þátt­tak­enda hafa kosið í Evr­ópu­þings­kosn­ing­unum í fyrra, jafn­vel þó þeir hafi ekki getað sýnt fram á að hafa mátt kjósa. Í þessum dæmum eru vænt­an­legir kjós­endur Verka­manna­flokks­ins í miklum meiri­hluta.

[caption id="" align="alignnone" width="1024"] Stjórn­mála­fræð­ingar höfðu nokkrar til­gátur um hvað hafi valdið þess­ari skekkju milli fylgiskann­ana og nið­ur­staðna kosn­inga. Ástæðan var á end­anum ein­föld: Fleiri sögð­ust ætla að kjósa en gerðu það. [/caption]

Aðrar skýr­ingar, sem þó þykja ekki jafn lík­legar og sú sem hefur verið rakin, voru lagðar fram. Tvær skýr­ingar voru strax hraktar við frum­skoðun; en veru­lega ólík­legt er talið að óákveðnir kjós­endur hafi haft nógu mikil áhrif á fylgi flokk­ana til að skýra nið­ur­stöð­urnar. Auk þess jókst fylgi Íhalds­flokks­ins ekki í kosn­inga­rann­sókn­inni miðað við kann­anir fyrir kosn­ingar svo mjög ólík­legt er að síð­búin fylg­is­sveifla hafi orðið.

Þriðja kenn­ingin var að íhalds­menn væru ein­fald­lega feimnir við að gefa upp stjórn­mála­hneigð sína í könnum og rann­sóknum. Þar ræður búseta fólks miklu enda ólík­legra að íhalds­menn séu feimnir við að gefa upp afstöðu sína í íhalds­kjör­dæmum. Það er hins vegar lík­legra að þeir forð­ist það í verka­manna­borgum á borð við Sund­er­land. Vís­bend­ing­arnar um að þessi kenn­ing sé röng eru nokkuð sann­fær­andi því, þvert á við það sem fyr­ir­fram var haldið, voru íhalds­menn feimn­astir í íhalds­kjör­dæm­unum.

Síðasta kenn­ingin er hins vegar af tækni­legra tagi. Þar var lagt upp með að könn­un­ar­að­ferðir og -úrtök hefðu falið raun­veru­lega afstöðu þýð­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár