Stofnandi Costco látinn

Annar stofnandi smásölu­risans Costco lést í gær, 74 ára að aldri.

Jeff Brotman, meðstofnandi Costco.
Jeff Brotman, með­stofn­andi Costco. Mynd: Handout

Jeff Brotman, annar stofnandi bandaríska smásalans Costco og stjórnar­formaður fyrir­tækisins, lést snemma dags í gær. Þetta kemur fram í frétt á vef Seattle Times.

Bróðir Jeff, Michael Brotman, greindi frá andláti hans í gær, en hann lést í svefni á heimili sínu í Medina, úthverfi Seattle. Ekki var vitað um dánar­orsök, en bróðir stofn­andans gerði ráð fyrir að hann hafi lent í hjarta­stoppi. Brotman var 74 ára gamall.

Jim Sinegal, meðstofnandi Costco og samstarfs­félagi Brotman til 35 ára sagði andlát hans vera „algjört áfall fyrir alla aðstand­endur.“ Sinegal segir Brotman ekki hafa einungis verið samstarfs­maður, heldur trúnaðar­maður og frábær vinur. „Ég er ekki að ýkja þegar ég segist hafa elskað manninn.“

Næststærsti smásalinn

Samstarf Sinegal og Brotman leiddi til þess að smásölu­fyrirtækið Costco varð að alþjóð­legu stórfyriræki, en Sinegal sá lengi um rekstur þess á meðan Brotman var á bak við opnun nýrra vöruhúsa.

Fyrir­tækið er nú meðal stærstu dagvöruverslana í heimi, en samkvæmt National Retail Federation er það næst­stærst á eftir Wal-Mart. Samkvæmt síðasta ársreikningi fyrir­tækisins námu tekjur þess árið 2016 tæplega 119 milljörðum Bandaríkja­dala auk þess sem það skilaði um 2,35 milljarða dala hagnaði á tíma­bilinu.

Valdið hræringum á smásölumarkaði

Að sögn Sinegal varð Brotman sérfræðingur í vali á stað­setningu vöru­húsanna, en þau eru nú 736 um allan heim, þar á meðal eitt í Garðabæ.

Opnun Costco-verslunarinnar í Kauptúni hefur valdið hræringum á íslenskum dagvörumarkaði, en búist er við að hlutdeild fyrir­tækisins í smásölu sé að minnsta kosti 3,6%. Sömuleiðis hefur verslunin leitt til aukinnar samkeppni í matvöru­verslun, en gera má ráð fyrir að opnun hennar hafi verið aðal­ástæða þess að verð á matvöru hafi lækkað um 3,5% í júní.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár