Íbúðalánasjóður fær nýtt hlutverk samkvæmt húsnæðismálafrumvarpi

Íbúða­lána­sjóður fær nýtt hlut­verk sam­kvæmt frum­varpi til laga um almennar íbúðir, sem Eygló Harð­ar­dóttir, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, lagði fram á Alþingi í dag. Frum­varpið fjallar um stofn­fram­lög ríkis og sveit­ar­fé­laga til rekst­urs almennra íbúða­fé­laga, sem eru félags­legar leigu­í­búðir. Meg­in­mark­miðið með frum­varp­inu er að stuðla að auknu fram­boði hús­næðis fyrir efna­m­inna fólk og að hús­næð­is­kostn­aður þess verði í sam­ræmi við greiðslu­getu.

Almenn íbúða­fé­lög, sveit­ar­fé­lög, leigu­fé­lög í eigu sveit­ar­fé­laga og starf­andi leigu­fé­lög geta fengið lán á nið­ur­greiddum vöxtum vegna leigu­í­búða fyrir þennan til­tekna hóp leigj­enda.

Íbúða­lána­sjóði er ætlað að hafa umsjón með fram­kvæmd lag­anna, honum er ætlað að taka við umsóknum og taka ákvarð­anir um veit­ingu stofn­fram­laga rík­is­ins. Sjóð­ur­inn metur því hvort mál­efna­leg sjón­ar­mið leiði til þess að unnt sé að veita umsækj­endum stofn­fram­lög til bygg­ingar eða kaupa á almennum íbúðum, hvort umsóknir sam­ræm­ist lögum og reglu­gerðum og jafn­framt hvort umrætt hús­næði telj­ist hag­kvæmt og full­næj­andi sem íbúða­hús­næði. Sjóð­ur­inn á líka að meta það hvort þörf sé á leigu­hús­næði fyrir efna­minni leigj­endur á við­kom­andi svæði og hvort fjár­mögnun hafi verið tryggð með full­nægj­andi hætti.

Enn­fremur á sjóð­ur­inn að hafa eft­ir­lit með þeim sem hafa fengið stofn­fram­lög frá rík­inu og rekar almennar íbúðir, sam­kvæmt frum­varp­inu. Hann mun geta beint til­mælum um úrbætur til eig­enda íbúð­anna ef hann telur rekstur ekki í sam­ræmi við lög og geta til­nefnt eft­ir­lits­menn til að fylgj­ast með íbúð­unum og úrbótum. 

Almenn íbúða­fé­lög eiga að vera sjálfs­eign­ar­stofn­anir sem hafa það hlut­verk að eiga, byggja, kaupa og reka almennar íbúðir. Þessi félög verða und­an­þegin tekju­skatti sam­kvæmt frum­varp­inu, og verður það svo í þeim til­gangi að lækka hús­næð­is­kostnað hjá tekju- og eigna­minni ein­stak­lingum og fjöl­skyldum. Með frum­varp­inu á að horfa sér­stak­lega til þessa hópa, en jafn­framt verður sér­stak­lega horft til náms­manna, ungs fólks, aldr­aðra, fatl­aðs fólks og fólks sem er ekki fært að sjá sér fyrir hús­næði sökum bágra félags­legra eða fjár­hags­að­stæðna.

Samkvæmt frum­varpi Eyglóar getur ríkið veitt 18% stofn­fram­lag með beinum fram­lögum eða með vaxta­nið­ur­greiðslum, og sveit­ar­fé­lög geta svo veitt 12% fram­lag til við­bótar við það. Framlög sveit­ar­fé­laga eru háð því að Íbúða­lána­sjóður veiti fram­lag frá rík­inu, en engu að síður er gert ráð fyrir því að sveit­ar­fé­lög með­höndli umsóknir um fram­lög áður en Íbúða­lána­sjóður gerir það.

Þá gerir frum­varpið ráð fyrir því að komið verði á lagg­irnar sér­stökum hús­næð­is­mála­sjóði sem hafi það að mark­miðið að stuðla að sjálfs­bærni almenna kerf­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár