Tónleikagestum föstudagsins boðið í aðra skimun og þeir hvattir til að fara varlega

Ákveðið hefur verið að bjóða öllum þeim sem voru á tón­leikum í Hörpu síð­ast­liðið föstu­dags­kvöld að mæta í aðra skimun fyrir COVID-19, til öryggis. Hópurinn er hvattur til að tak­marka sam­skipti við aðra þar til nið­ur­staða liggur fyrir.

Það var margt um manninn í Hörpu síðasta föstudagskvöld. Gestir tónleika sem þar voru haldnir í Eldborgarsal eru hvattir til að mæta aftur í sýnatöku.
Það var margt um mann­inn í Hörpu síð­asta föstu­dags­kvöld. Gestir tón­leika sem þar voru haldnir í Eld­borg­ar­sal eru hvattir til að mæta aftur í sýna­töku. Mynd: Bára Huld Beck

Ákveðið hefur verið að bjóða bæði gestum og starfs­fólki á tón­leikum sem fram fóru í Hörpu síð­asta föstu­dags­kvöld að mæta í aðra skimun fimmtu­dag­inn 11. mars. Hópnum var einnig boðið upp á sýna­töku í gær, en er þau sýni voru tekin voru innan við þrír sól­ar­hringar síðan tón­leik­arnir fóru fram.

Skimunin er sögð var­úð­ar­ráð­stöfun, í til­kynn­ingu frá almanna­vörnum. Allir tón­leika­gestir og starfs­fólk eru ein­dregið hvött til að mæta og jafn­framt hvött til þess að huga vel að per­sónu­legum smit­vörnum og tak­marka sam­skipti við aðra þar til nið­ur­staða liggur fyrir.[links]

Kjarninn spurði Þórólf Guðnason sótt­varna­lækni út í það í gær hvort öruggt væri að kór­ónu­veiran myndi grein­ast í sýna­tökum gær­dags­ins, ef fólk hefði smit­ast á tón­leik­unum á föstu­dag. Það sagði hann ekki alveg öruggt, en taldi þó ekki þörf á að skima allan hóp­inn aftur.

„Ég held að það sé nú kannski ekki þörf á því,“ sagði Þórólfur í sam­tali við Kjarnann, en und­an­farið ár, frá því að veiru­far­ald­ur­inn hóf að raska venju­legu lífi, hefur oft komið fram að það getur tekið nokkra daga frá því að fólk verður útsett fyrir veirunni og þar til ein­stak­lingar grein­ast jákvæðir fyrir COVID-19 í próf­um.

Í grein á Vís­inda­vefnum frá því í októ­ber segir að það taki um 3-4 daga að jafn­aði frá því að fólk byrjar að verða smit­andi með COVID-19 eftir að hafa smit­ast sjálft. „Þetta passar við þá stað­reynd að það tekur einnig nokkra daga fyrir sýni að verða jákvætt fyrir SAR­S-CoV-2 úr stroki frá upp­hafi smits,“ segir í grein­inni.

[adspot]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár