Frumvarpsdrög veiti stétt dómara of mikið vald yfir skipan dómara

Nýdoktor í lög­fræði gerir athuga­semdir við breyt­ingar á laga­á­kvæðum um skipan dóm­ara sem settar eru fram í frum­varps­drögum frá dóms­mála­ráðu­neyt­inu. Drögin voru sett fram á Þor­láks­messu og athuga­semda­frestur vegna þeirra rann út í gær.

Haukur Logi Karlsson, nýdoktor í lög­fræði við Háskóla Íslands, segir að breyt­ingar á lögum um dóm­stóla sem settar eru fram í drögum að frum­varpi frá dóms­mála­ráðu­neyt­inu, sem birt var í sam­ráðs­gátt stjórn­valda á Þor­láks­messu, séu ekki allar af hinu góða.

Þetta kemur fram í umsögn Hauks Loga um málið. Þar gagn­rýnir hann tvær breyt­ingar sem lagt er til að verði gerðar á lögum og segir þær báðar til þess fallnar að auka um of völd dóm­ara­stétt­ar­innar til þess að hafa áhrif á hverjir verði skip­aðir í emb­ætti, sem aftur sé lík­legt til þess að rýra traust almenn­ings til þess hvernig dóm­arar eru skip­aðir á Íslandi og þar með dóm­stóla.

Umsagn­ar­frestur um frum­varps­drögin rann út í gær.

Dómstólasýslan líkleg til að gæta stéttarhagsmuna innan dómnefndar

Fyrra atriðið sem Haukur Logi gagn­rýnir er að til standi að fella út ákvæði sem er þess efnis að sá aðili sem dóm­stóla­sýslan til­nefnir í nefnd dóm­nefnd um hæfi umsækj­enda um emb­ætti dóm­ara skuli ekki vera starf­andi dóm­ari.

Í grein­ar­gerð með frum­varps­drög­unum frá dóms­mála­ráðu­neyt­inu segir um þetta atriði að ekki sé til­efni til þess að binda dóm­stóla­sýsl­una við það að til­nefna ekki starf­andi dóm­ara, og vísað er til reynslu fyrri ára um til­nefn­ingar í nefnd­ina, en auk dóm­stóla­sýsl­unnar til­nefna Lands­réttur, Hæsti­réttur, Alþingi og Lög­manna­fé­lagið full­trúa í nefnd­ina.

Haukur Logi and­mælir því að rétt sé að afnema þessar tak­mark­anir sem á dóm­stóla­sýsl­una eru lagðar í dag. Hann segir að þvert á móti sé áskiln­aður um vissan fjöl­breyti­leika nefnd­ar­manna í dóm­nefnd­inni „nauð­syn­legur til þess að tryggja þá vald­dreif­ingu, sem lög­gjaf­inn hafði í huga þegar kemur að sam­setn­ingu nefnd­ar­innar.“

Hann segir að nefndin fari með veiga­mikið vald í stjórn­skip­un­inni, í reynd stóran hluta valds til skip­unar á dóm­urum. „Það er því eðli­legt að lög­gjaf­inn hafi komið því þannig fyrir að ein fámenn starfs­stétt geti ekki án lýð­ræð­is­legs umboðs komið sér í þá stöðu að hafa úrslita­vald um hverjir velj­ist til þess að fara með dóms­vald yfir allri þjóð­inni,“ segir í umsögn Hauks Loga um frum­varps­drögin, sem send var inn í sam­ráðs­gátt stjórn­valda þann 8. jan­úar.

Haukur Logi segir að með því að setja dóm­stóla­sýsl­unni mörk um hverja hún mætti til­nefna til setu í dóm­nefnd­inni hafi ætlan Alþingis verið að tryggja að sitj­andi dóm­arar hefðu ekki meiri­hluta­vald innan nefnd­ar­innar.

Haukur Logi Karlsson er nýdoktor við Háskóla Íslands.
Haukur Logi Karlsson er nýdoktor við Háskóla Íslands.

Hann segir að lög­gjaf­inn hafi talið að meiri ástæða væri til að ætla að dóm­stóla­sýslan, sem stjórnað sé að af sitj­andi dóm­urum, myndi skipa nefnd­ar­mann sem „gætti sömu hags­muna innan nefnd­ar­innar og þeir sem til­nefndir eru af Hæsta­rétti og Lands­rétti, heldur en þeir sem til­nefndir eru af Alþingi og Lög­manna­fé­lag­inu.“

„Ekki verður séð að þau rök sem voru fyrir þess­ari skipan í upp­hafi eigi ekki lengur við, nema síður sé. Jafnvel mætti hugsa sér að ganga lengra í áskiln­aði um til­nefn­ingu dóm­stóla­sýsl­unnar, t.d. þannig að hún skuli til­nefna sér­fræð­ing í mannauðs­málum til þess að auka fag­mennsku í máls­með­ferð nefnd­ar­innar. Það væru enda slíkir hags­munir sem hægt væri að ætl­ast til þess að hún ynni að innan hennar, fremur en að stétt­ar­hags­munum sitj­andi dóm­ara, sem þegar er gætt af tveimur af fimm nefnd­ar­mönnum,“ segir í umsögn Hauks Loga.

Óheppilegt að endurvekja áru geðþóttavalds

Annað atriðið sem Haukur Logi gerir athuga­semdir við eru fyr­ir­hug­aðar breyt­ingar á nokkrum laga­greinum sem miða að því að færa fyr­ir­komu­lag við skipun vara­dóm­ara við Hæsta­rétt og Lands­rétt til fyrra horfs, sem myndi þýða að for­setar dóm­stól­anna eða dóm­nefnd um hæfi umsækj­enda um emb­ætti dóm­ara gætu gert til­lögu til ráð­herra um skipan dóm­ara til skemmri tíma en 6 mán­aða.

Í dag eru þessir aðilar bundnir af því að leita fyrst til dóm­ara sem látið hafa af störfum. Í grein­ar­gerð með frum­varps­drög­unum segir að það hafi reynst örð­ugt í fram­kvæmd að setja fyrr­ver­andi dóm­ara til starfans í öllum til­fellum.

„Kemur þar bæði til að fyrr­ver­andi dóm­arar eru mis­vilj­ugir til að taka setn­ingu auk þess sem ekki er raun­hæft að leita til allra fyrr­ver­andi dóm­ara, eins og ákvæðið gerir í raun ráð fyrir í dag, þegar litið er til ald­urs, starf­getu og hversu langt er um liðið síðan við­kom­andi sinnti dóm­störfum,“ segir í grein­ar­gerð með drög­unum og tekur Haukur Logi undir og segir að þessi regla virð­ist ekki hafa verið hugsuð til enda.

Þrátt fyrir að þetta fyr­ir­komu­lag hafi ekki gengið upp, segir Haukur Logi þó að rökin að baki því að binda hendur þess­ara aðila við val á vara­dóm­urum séu enn til staðar.

Hann rifjar upp að þau hafi verið að hætta hefði verið talin á að geð­þótti réði því hverjir væru settir dóm­arar til skamms tíma og „að þetta vald væri notað til þess að lyfta þókn­an­legum fram­tíðar umsækj­endum um dóm­ara­emb­ætti yfir aðra með því að veita þeim dóm­ara­reynslu.“

„Óheppi­legt væri að end­ur­vekja þessa áru yfir störfum dóms­stól­anna með því að færa regl­una til fyrra horfs og væri það til þess fallið að draga úr trausti á störfum þeirra,“ segir Haukur Logi og leggur til aðra lausn.

„Til þess að þjóna þörfum dóms­stól­anna á vara­dóm­urum og til þess að tryggja gagn­sæi og sann­girni í vali á slíkum dóm­endum mætti hugsa sér fastan lista af vara­dóm­urum. Hægt væri að útbúa list­ann þannig að þeim umsækj­endum um emb­ætti dóm­ara, sem telj­ast af dóm­nefnd hæfir til að taka sæti en hljóta ekki emb­ætti, væri boðið að taka sæti á þessum lista. Jafn­framt mætti bjóða dóm­urum sem látið hafa af störfum að vera á list­anum og mögu­lega mætti aug­lýsa reglu­lega eftir fólki á list­ann, sem yrði þá hæf­is­metið líkt og dóm­ara­efni af dóm­nefnd­inni. Listann ætti að birta opin­ber­lega og skrá ætti hags­muna­tengsl og lög­fræði­leg sér­svið þeirra sem á honum eru. Loks ætti að birta töl­fræði í árs­skýrslu dóm­stóla­sýsl­unnar um hverjir eru kall­aðir til að taka sæti á hverju ári. Gagnsæi og form­festa um störf og val vara­dóm­ara ætti að koma í veg fyrir þá gagn­rýni sem varð til­efni þeirrar reglu sem frum­varps­drögin leggja til að verði breytt til fyrra horfs,“ skrifar Haukur Logi.

Ekki skerpt á ákvæðum um aukastörf

Auk fyrr­greindra athuga­semda við breyt­ingar sem lagðar eru til í frum­varps­drög­unum leggur Haukur Logi til að ráð­ist verði í það að skerpa á ákvæðum laga um auka­störf dóm­ara.

Þau hafa verið nokkuð til umræðu á meðal lög­fræð­inga og víðar í sam­fé­lag­inu und­an­farin miss­eri, en eins og Kjarninn fjall­aði um í árs­lok 2020 eru margir dóm­arar sem sinna auka­störfum, til dæmis setu í stjórn­sýslu­nefndum og háskóla­kennslu, þrátt fyrir að meg­in­reglan í lögum um dóm­stóla sé sú að dóm­arar skuli ekki sinna öðrum störfum.

Þetta hefur verið gagn­rýnt, meðal ann­ars af hálfu Lög­manna­fé­lags Íslands og segir Haukur Logi í umsögn sinni að nokkur umræða hafi verið um það í sam­fé­lagi lög­fræð­inga hversu óheppi­legir hags­muna­á­rekstrar geti skap­ast ef dóm­arar gegni slíkum störfum í miklum mæli eða fyrir aðila sem þeir ættu ekki að tengj­ast hags­muna­böndum.

„Fram hefur komið í opin­berri umræðu að dóm­arar telji sér engu að síður heim­ilt að gegna umfangs­miklum auka­störfum, en ýmsum þykir sú túlkun ganga í ber­högg við laga­bók­staf­inn. Það er því full ástæða til þess að skerpa á því sem þar stendur í 45. gr. dóm­stóla­laga um auka­störf dóm­ara og til­valið væri að nýta tæki­færið núna þegar verið er að leggja til ýmsar breyt­ingar lög­unum,“ segir í umsögn Hauks Loga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár