Pizzaríkisstjórnin mun róa lífróður næstu daga

Sigurður Ingi Jóhannsson og Bjarni Benediktsson kynna nýja ríkisstjórn, skömmu eftir að Höskuldur Þórhallsson hafði óvart gert það. Mynd: Birgir Þór Harðasson
Sigurður Ingi Jóhanns­son og Bjarni Bene­dikts­son kynna nýja rík­is­stjórn, skömmu eftir að Hösk­uldur Þór­halls­son hafði óvart gert það. Mynd: Birgir Þór Harð­asson

Það má slá því nokkuð föstu að ný rík­is­stjórn Sigurðar Inga Jóhanns­sonar mun róa mik­inn líf­róður næstu daga. Alls ekk­ert er víst að hún muni verða lang­líf. Það mun ráð­ast á allra næstu dögum hvort hún geti haldið, líkt og lagt er upp með, fram á haust þegar kjósa á. Sú atburða­rás sem átt hefur sér stað á síðan að opin­berað var að þrír ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar hafi tengst aflands­fé­lögum er best lýst sem leik­húsi fárán­leik­ans. Hver far­sa­kenndi atburð­ur­inn hefur rekið annan, og lík­lega náði ferlið hámarki sínu í í fyrra­dag þegar Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son ákvað að stíga til hliðar síð­degis, nokkrum klukku­tímum áður en að aðstoð­ar­menn hans sendu í besta falli klaufa­lega til­kynn­ingu á erlenda miðla – en afsögn Sig­mundar Davíðs var og er heims­frétt - þar sem þeir til­tóku sér­stak­lega að Sig­mundur Davíð væri að stíga til hliðar tíma­bundið.

Sú atburða­rás sem boðið var upp á í gær­kvöldi, þegar ný rík­is­stjórn var mynduð í hraði og kynnt í stig­anum á Alþingi, gaf þriðju­deg­inum þó lítið eftir.

Pizzur og ný ríkisstjórn tilkynnt óvart

Raunar var atburða­rásin í gær­kvöldi með miklum ólík­indum. Hún dróst á lang­inn umfram það sem til­kynnt hafði verið og frétta­menn, inn­lendir og erlendir, biðu í tóma­rúmi eftir að þing­flokks­fundir klár­uð­ust. Einu upp­lýs­ing­arnar sem bár­ust út af þeim voru stöðu­upp­færslur á sam­fé­lags­miðlum um hvaða álegg væru á þeim pizzum sem pant­aðar voru og hverjir hafi verið að borða þær. Mörgum fannst það sýna hversu lítið skyn­bragð ráða­menn­irnir hefðu gagn­vart alvar­leika stöð­unnar. Og vegna þess hefur hún verið kölluð pizzaríkisstjórnin.

Sig­mundur Davíð kom loks niður og óskaði þjóð­inni til ham­ingju með nýja for­sæt­is­ráð­herr­ann sinn. Hann sagði þó ekki berum orðum hver það yrði, þótt nokkuð ljóst lægi fyrir að Sigurður Ingi væri að fara að setj­ast í þann stól. Það gerði hins vegar Hösk­uldur Þór­halls­son.

Hann ræddi lengi við fjöl­miðla, greindi þeim frá því hvernig ný rík­is­stjórn yrði mönnuð og frá ýmsum öðrum atriðum þess sam­komu­lags sem lá fyrir. Hösk­uldur virt­ist hafa haldið að for­ystu­menn nýrrar rík­is­stjórnar hefðu þegar rætt við þing­menn. Það höfðu þeir ekki gert. Eins og hann sagði sjálfur á Facebook-síðu sinni í gær: „Það hvarfl­aði ekki að mér annað en að odd­vit­arnir væru þegar búnir að svara blaða­mönnum um nið­ur­stöðu dags­ins.

Þetta var fer­legt - ég við­ur­kenni það - en svona er þetta - ég ætl­aði mér sko aldeilis ekki að vera ein­hvers­konar ”blaða­full­trúi” nýju stjórn­ar­innar.“

Í kjöl­farið komu odd­vit­arnir niður og komu, að flestra mati sem á horfðu, ekk­ert sér­stak­lega vel fyrir. Bjarni var reiður og árás­ar­gjarn og Sigurður Ingi virk­aði ekki öruggur í því hlut­verki sem hann var kom­inn í. Eftir að hafa rætt við inn­lenda frétta­menn þá snéru þeir sér að þeim fjöl­mörgu erlendu sem hér eru vegna ástands­ins. Þeir hafa ítrekað lýst yfir furðu sinni á því sem gengið hefur á hér­lendis und­an­farna daga við kollega sína. Ekki minnk­aði furða þeirra við atburði gær­dags­ins. Einn hinna erlendu blaða­manna spurði Sigurð Inga hvernig hann myndi bregð­ast við vænt­an­legu „no confidence vote“. Sigurður Ingi virt­ist ekki skilja spurn­ing­una.

Þegar rætt er við erlendu blaða­menn­ina sem hér eru staddir og hafa fylgst með atburða­rás síð­ustu daga, og erlendir stór­miðlar eru lesnir, þá liggur fyrir að heims­byggðin er furðu lostin yfir því sem hér er í gangi. Ísland er athlægi.

Það er öllum ljóst að mikil óein­ing er innan þing­flokka beggja stjórn­ar­flokka með þá leið sem var farin við myndun nýrrar rík­is­stjórnar. Mikilvæg félög í Sjálf­stæð­is­flokks­vél­inni, t.d. Vörður, höfðu sett sig skýrt á móti því að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn fengi for­sæt­is­ráðu­neytið. Þá hafði Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, rit­ari Sjálf­stæð­is­flokks­ins, komið því skýrt á fram­færi á sam­fé­lags­miðlum að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn væri ekki búinn að sam­þykkja Sigurð Inga í starfið.

Eftir að fundi með þing­flokknum lauk í gær sögðu þing­menn frá því að ekki hefðu verið greidd atkvæði um hina nýju rík­is­stjórn. Um væri að ræða ákvörðun for­manns flokks­ins og hún var til­kynnt þing­flokknum. Um hana er alls ekki full sátt.

Fram­sókn­ar­megin er staðan enn verri. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans stóð til að Ásmundur Einar Daðason, þing­flokks­for­maður og sér­stakur trún­að­ar­maður Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, myndi verða ráð­herra. Þannig var staðan þegar lyk­il­fólki í Sjálf­stæð­is­flokknum var til­kynnt um sam­setn­ingu nýrrar rík­is­stjórnar síð­degis í gær. Sú ráð­stöfun átti þó enn eftir að fara í gegnum þing­flokk Fram­sókn­ar­flokks­ins. Þar var þó hart tek­ist á um bit­ling­ana og völdin.

Hösk­uldur Þór­halls­son, annar þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi á eftir for­mann­inum, gerði kröfu um hann yrði gerður að ráð­herra. Fylgi við flokk­inn væri enda lang­mest í hans kjör­dæmi. Hösk­uldur hefur verið á hlið­ar­lín­unni í flokknum í lengri tíma, og í raun allt frá því að hann tap­aði, eftir að hafa unnið í nokkrar mín­útur, for­manns­kosn­ingu gegn Sigmundi Davíð snemma árs 2009. Fyrir kosn­ing­arnar 2013 jók for­mað­ur­inn svo á nið­ur­læg­ingu Hösk­uldar með því að færa sig í kjör­dæmið hans og hirða af honum leið­toga­sætið þar. Hösk­uldur hefur aldrei fengið í sinn hlut nein áhrifa­mikil emb­ætti í stjórn­ar­tíð þess­arrar rík­is­stjórnar. Þrátt fyrir sterka stöðu í sterkasta kjör­dæm­inu hefur hann aldrei komið til greina sem ráð­herra og aldrei verið þing­flokks­for­maður. Mestu veg­tyllur hans hafa verið for­mennska í umhverfis- og sam­göngu­nefnd og Íslands­deild Norð­ur­landa­ráðs.

Hösk­uldur var því ekki í miklum vand­ræðum með að taka ákvörðun um að kjósa gegn til­lögu Sig­mundar Davíð um að Sigurður Ingi yrði for­sæt­is­ráð­herra. Sú ákvörðun snérist reyndar mun meira um Sigmund Davíð en Sigurð Inga. Hösk­uldur, og mjög sterkir aðilar innan Fram­sókn­ar­flokks­ins sem til­heyra ekki þing­flokki hans, eru sagðir þeirrar skoð­unar að það gangi ekki að Sig­mundur Davíð sitji áfram á þingi sem ein­hvers­konar skugga­for­sæt­is­ráð­herra. Hann verði að víkja af vett­vangi stjórn­mál­anna alveg. Heim­ildir Kjarnans herma að ráð­ist verði í aðgerðir til að þrýsta á þá nið­ur­stöðu nú þegar stjórn­ar­skiptum verður lokið. Staða Sig­mundar Davíðs í flokknum í dag er, væg­ast sagt, veik. Sig­mundur Davíð virð­ist hins vegar ekki ætla að víkja frekar og mun án efa, miðað við fyrri starfs­hætti sína, reyna að hafa eins mikil áhrif á starf rík­is­stjórn­ar­innar og hann kemst upp með úr aft­ur­sæti rík­is­stjórn­ar­innar.

Vigdís Hauks­dóttir, fyrsti þing­maður flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður, var líka ósátt með að ekki væri litið til hennar varð­andi ráð­herra­skipan. Hún hefur ýmis­legt til síns máls, enda vann Vigdís stærsta kosn­inga­sigur Fram­sókn­ar­flokks­ins á möl­inni frá upp­hafi í síð­ustu kosn­ingum. Hún er hins vegar gríð­ar­lega umdeildur stjórn­mála­maður. Líklega er ein­ungis Sig­mundur Davíð sjálfur umdeild­ari í stjórn­málum nútím­ans. Það hefur því verið litið svo á að það yrði eins og að skvetta olíu á eld að gera Vigdísi að ráð­herra.

Nið­ur­staða kvölds­ins varð hins vegar mála­miðl­un­ar­til­laga sem Sig­mundur Davíð, hinn afar laskaði frá­far­andi for­sæt­is­ráð­herra, lagði fram um að gera einn sinn helsta trún­að­ar­mann, Lilju Alfreðs­dóttur, að utan­þings­ráð­herra. Ásmundur Einar studdi á end­anum þá til­lögu fremur en að hann sjálfur yrði ráð­herra. Ákveðið var að halda leyni­lega atkvæða­greiðslu um hvort þeirra yrði ráð­herra og þar bar Lilja sigur úr býtum.

Lilja, sem er dóttir sjálfs Alfreðs Þor­steins­sonar, er hluti af hand­fylli fólks sem Sig­mundur Davíð hefur hleypt nálægt sér í stjórn­ar­tíð sinni sem for­sæt­is­ráð­herra. Því líta margir svo á, bæði innan Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks, að hún sé nokk­urs konar fram­leng­ing á for­manni flokks­ins inn í rík­is­stjórn. Hans full­trúi þar inni.

Þingmenn stjórnarandstöðunnar höfðu gaman af svörum Bjarna Benediktssonar í óundirbúnum fyrirspurnum í morgun. Mynd: Birgir Þór Harðarson
Þingmenn stjórn­ar­and­stöð­unnar höfðu gaman af svörum Bjarna Bene­dikts­sonar í óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum í morgun. Mynd: Birgir Þór Harð­ar­son

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, virk­aði mjög reiður þegar hann ræddi við fjöl­miðla eftir þing­flokks­fund í gær­kvöldi. Út í hvern hann var reiður liggur ekki fyrir. Mögulega var hann reiður út í Fram­sókn­ar­flokk­inn, mögu­lega eigin þing­flokk sem sætti sig ekki að öllu leyti við þær vær­ingar sem hann til­kynnti í gær, og mögu­lega fjöl­miðla, sem fjallað hafa ítar­lega um leka á upp­lýs­ingum um að hann ætti félag á aflandseyju. En það fór ekki fram hjá neinum að hann var reiður.

Sú reiði birt­ist meðal ann­ars í hörku­legum svörum um að mót­mæli stjórn­uðu ekki þessu landi, að það væri stjórn­ar­and­staðan sem væri í „rusli“, að rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir væru með sterkan meiri­hluta og að skoð­ana­kann­anir skiptu engu máli. Nauð­syn­legt væri að núver­andi rík­is­stjórn kláraði sín mál, sér­stak­lega áætlun um losun hafta, áður en að hægt væri að kjósa.

Sambærileg staða og var í janúar 2009

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem íslensk stjórn­mál eru í stjórn­ar­kreppu eins og þeirri sem nú er uppi. Þvert á móti var sam­bæri­leg staða uppi í lok jan­úar 2009. Þá höfðu fjöl­menn mót­mæli verið á Aust­ur­velli vikum saman og ný skoð­ana­könnun hafði sýnt að ein­ungis fjórð­ungur kjós­enda, 25 pró­sent þeirra, studdi rík­is­stjórn Geirs H. Haarde, sam­an­sett af Sjálf­stæð­is­flokknum og Sam­fylk­ing­unni.

Þá gerð­ist það, 23. jan­úar 2009, að Geir H. Haarde boð­aði til kosn­inga 9. maí í ljósi þess van­trausts sem var á rík­is­stjórn­ina, tveimur árum áður en kosn­ingar áttu að fara fram. Þessi lausn hélt þó ekki nema í örfáa daga. Eftir áfram­hald­andi mót­mæli gekk Geir á fund for­seta Íslands og baðst lausnar þremur dögum síðar, þann 26. jan­úar 2009.

Staðan sem nú er uppi er að mörgu leyti svipuð og þá. Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina mælist nán­ast sá sami, en hann er nú 26 pró­sent sam­kvæmt nýrri könnun MMR. Þá sat líka rík­is­stjórn með gríð­ar­lega sterkan þing­meiri­hluta, raunar mun sterk­ari en sú sem nú situr, enda var sam­eig­in­legur þing­manna­fjöldi Sjálf­stæð­is­flokks og Sam­fylk­ingar eftir kosn­ing­arnar 2007 43. Sú rík­is­stjórn hafði því fimm þing­mönnum fleiri en sú sem nú situr.

Mótmælin á Austurvelli á mánudag voru þau fjölmennustu sem farið hafa fram á Íslandi.
Mótmælin á Aust­ur­velli á mánu­dag voru þau fjöl­menn­ustu sem farið hafa fram á Íslandi.

Þótt for­svars­menn nýrrar rík­is­stjórnar hafi verið kok­hraustir og ákveðnir í gær og í dag um að halda ótrauðir áfram þá er ljóst að þeirra bíður mikil brekka. Traust á allar helstu stofn­anir sam­fé­lags­ins, og sér­stak­lega stjórn­málin, hrundi í kjöl­far atburð­anna haustið 2008. Það traust hefur lítið lag­ast. Atburðir síð­ustu daga hafa fært það traust nálægt botni.

Það fékkst stað­fest í ýmsum könn­unum sem birtar voru í gær, og voru gerðar á mánu­dag og þriðju­dag. Könnun MMR sýndi að stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina væri kom­inn niður í 26 pró­sent og sam­an­lagt fylgi þeirra væri rétt rúm­lega 30 pró­sent. Þar kom einnig fram að 81 pró­sent lands­manna treysti Sigmundi Davíð ekki og 60,6 pró­sent treysti ekki Bjarna Bene­dikts­syni.

Í könnun Félags­vís­inda­stofn­unar kom fram að 78 pró­sent lands­manna vildi að Sig­mundur Davíð segði af sér emb­ætti en 60 pró­sent töldu að Bjarni ætti að gera það. Þar var einnig spurt hvort umfjöllun Kast­ljóss síð­ast­lið­inn sunnu­dag hefði dregið úr trausti gagna­vart rík­is­stjórn­inni, Alþingi og stjórn­málum almennt. Svarið var yfi­gnæf­andi já. 70 pró­sent misstu traust gagn­vart rík­is­stjórn­inni, 63 pró­sent gagn­vart Alþingi og 67 pró­sent gagn­vart stjórn­mála almennt.

Almenningi fannst framsetningin fagleg

Það eru ekki eru allir á einu máli um að fram­setn­ing Kast­ljós­þátt­ar­ins á sunnu­dag hafi verið sann­gjörn. Eða rétt­ara er að segja að ýmsir innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins, meðal ann­ars þing­flokks hans, og í rit­stjórn­ar­stólum val­inna fjöl­miðla (Morg­un­blað­inu og DV) séu þeirrar skoð­unar að for­sæt­is­ráð­herra hafi verið leiddur í gildru. Þá hefur Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son, pró­fessor í stjórn­mála­fræði og fyrrum áhrifa­maður innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins, farið mik­inn á sam­fé­lags­miðlum boð­andi þá sögu­skýr­ingu að umfjöll­unin hafi verið vil­höll. Jón Steinar Gunn­laugs­son, fyrrum hæsta­rétt­ar­dóm­ari, skrif­aði grein í Morg­un­blaðið í morgun með fyr­ir­sögn­inni „Aðför“. Þar segir hann að hlutur frétta­manna í mál­inu sé ófagur. „Það er aug­ljóst að öll upp­setn­ing máls­ins var hönnuð til að koma höggi á ráð­herr­ann. [...]Ætl­un­ar­verkið tókst. Ráð­herr­ann er far­inn frá. Frétta­menn­irnir sem stóðu fyrir þess­ari upp­setn­ingu leggja gjarnan áherslu á að menn segi satt. Hvað um þá sjálfa? Mega þeir skrökva sig inn á menn til að koma á þá spurn­ingum um atburði sjö ár aftur í tím­ann án þess að gefa þeim kost á að rifja slíka gamla atburði upp áður en svarað er?“

Ljóst er á nið­ur­stöðu könn­unar Félags­vís­inda­stofn­unar að almenn­ingur deilir ekki þessum skoð­unum. Þar var spurt um hvort fólk hefði horft á umfjöllun Kastljós um aflands­fé­lög tengd ráða­mönnum síð­ast­lið­inn sunnu­dag. 64 pró­sent aðspurðra sögðu að þeir hefðu séð þátt­inn allan og 19 pró­sent að þeir hefðu séð hann að hluta. Það þýðir að ein­ungis 16 pró­sent sá ekki þátt­inn. Yfir­gnæf­andi meiri­hluti aðspurðra, 78 pró­sent, sögðu að þeim hafi þótt umfjöll­unin mjög eða frekar fag­leg. Einungis 14 pró­sent sögðu að þeim hafi þótt hún ófag­leg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár