Þau sem fylgjast vel með á Facebook vita hvað myndbönd hafa fengið mikið vægi þar á undanförnum misserum. Samfélagsmiðillinn hefur einsett sér að verða vettvangur fyrir myndbönd og hefur gripið til aðgerða til að tryggja að myndbönd njóti vinsælda.
Facebook hefur greint frá því að horft sé á yfir 100 milljónir klukkutíma af myndböndum á Facebook á hverjum degi. Nicola Mendelsohn, yfirmaður Facebook í Evrópu, Miðausturlöndum og Afríku, hefur meira að segja spáð því að innan fimm ára verði Facebook líklega eingöngu í myndbandaformi. „Besta leiðin til að segja sögur í þessum heimi, þar sem svo mikið af upplýsingum er beint að okkur, er með myndböndum. Þú færð svo miklu meiri upplýsingar á mun styttri tíma. Svo þetta hjálpar okkur að melta meiri upplýsingar,“ sagði Mendelsohn á ráðstefnu í London í júní síðastliðnum.
Það er greinilegt af prófkjörsbaráttum undanfarinna vikna, sérstaklega í Sjálfstæðisflokki og Samfylkingu, að þar ætlar fólk ekki að láta þessa tækni og leið til að koma sér á framfæri renna sér úr greipum.
Að minnsta kosti átján frambjóðendur í prófkjörum og flokksvölum þessara flokka réðust í myndbandagerð í baráttu sinni, og Kjarninn tók saman brot af myndböndunum.
Sumir fóru þá leið að birta „venjuleg manneskjuviðtöl“ þar sem talað er almennt um frambjóðandann, en ekki um stjórnmálin. Guðlaugur Þór Þórðarson, sem hreppti annað sætið hjá Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík, var einna duglegastur í myndbandagerð og eitt myndbandið var með þessum hætti. Hann birti hins vegar líka hálfgert grínmyndband, þar sem hann segir sögu af sjálfum sér buxnalausum í ræðustól Alþingis, og myndbönd um málefni sem hann hyggst berjast fyrir.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir náði líka mjög góðum árangri í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Reykjavík og lenti í þriðja sæti. Hún gerði mörg myndbönd, flest um málefnin, en einnig eitt grín- og manneskjulegt myndband, þar sem hún er sýnd í öðru ljósi.
Óli Björn Kárason og Jón Gunnarsson náðu góðum árangri hjá Sjálfstæðismönnum í Suðvesturkjördæmi, en það gerði Elín Hirst ekki. Þau birtu öll myndbönd á Facebook, og Elín var ein fárra sem nýtti sér Facebook Live – að birta myndbönd í rauntíma.
Myndbandagerð getur verið góð leið fyrir nýja frambjóðendur að kynna sig. Sema Erla Serdar og Margrét Gauja Magnúsdóttir náðu fínum árangri í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi um helgina.
Guðmundur Ari Sigurjónsson var einnig í framboði þar, og lenti í fjórða sæti. Hann réðst ekki í myndbandagerð, en auglýsti þess í stað myndbandsklippur úr viðtali við hann á Hringbraut.
Hjá Samfylkingunni í Reykjavík voru myndböndin líka vinsæl. Helgi Hjörvar þingmaður gerði nokkur slík, meðal annars með dýrunum sínum tveimur.
Nýir frambjóðendur voru sem fyrr segir duglegir við að koma sér á framfæri með myndböndum.
Í Norðvesturkjördæmi notuðu bæði Inga Björk Bjarnadóttir og Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir myndbönd í baráttu sinni, en Guðjón Brjánsson gerði það ekki. Hann lenti í fyrsta sæti, Inga í öðru og Ólína í því þriðja. Hún ætlar ekki að taka sætið.
Hjá Sjálfstæðisflokknum í Suðurkjördæmi var baráttan hvað hörðust. Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, birti fjöldamörg myndbönd, bæði með sjálfri sér og einnig fjölda stuðningsmanna sem tíunduðu kosti hennar.
Páll Magnússon er auðvitað þaulvanur sjónvarpsmaður og nýtti sér myndbandagerð, bæði í gríni og alvöru.
Bryndís Haraldsdóttir, sem lenti í fimmta sæti Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi, birti myndbönd með stuðningsfólki sínu, meðal annars Ragnheiði Ríkharðsdóttur, fráfarandi þingmanni Sjálfstæðisflokksins.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir