Mynd: 123RF

Umfram eigið fé Íslandsbanka er tæplega 58 milljarðar króna

Kannað verður hvort það sé hag­kvæmt að greiða út það eigið fé sem Íslands­banki á umfram kröfur Fjár­mála­eft­ir­lits­ins áður en að bank­inn verður seldur. Það er rétt tæp­lega þriðj­ungur af öllu eigin fé bank­ans, sem er alls 182,6 millj­arðar króna.

Banka­sýsla rík­is­ins mun kanna hvort hag­kvæmt sé að greiða umfram eigið fé Íslands­banka til rík­is­ins áður en bank­inn verður seldur. Alls var umfram eigið fé Íslands­banka, miðað við lág­marks eig­in­fjár­kröfur Fjár­mála­eft­ir­lits Seðla­banka Íslands að við­bættum 0,5 pró­sent lág­marks stjórn­enda­auka, 57,6 millj­arðar króna í lok sept­em­ber síð­ast­lið­ins, eða rétt tæpur þriðj­ungur af öllu eigin fé bank­ans, sem var 182,6 millj­arðar króna á þeim tíma­punkti.

Þetta kemur fram í kynn­ingu sem Banka­sýslan hélt fyrir fjár­laga­nefnd í síð­ustu viku.

Í kynn­ing­unni segir að útgreiðsla á umfram eigin fé geti verið „veiga­mikil rök nýrra fjár­festa að eign­ast hlut í banka, sem hefur jafn­mikið eigið fé og Íslands­banki.“ Þar er þó bent á að ef 25 pró­sent hlutur í Íslands­banka verði seldur, og rík­is­sjóður haldi eftir 75 pró­sent hlut, þá mun rík­is­sjóður áfram fá 75 pró­sent af öllum arð­greiðslum eða arði sem skap­ast vegna end­ur­kaupa á hluta­bréfum. Því væri ekki verið „að gefa“ umfram eigið fé bank­ans með sölu á fjórð­ungs­hlut.

Ákvörðun um hversu stór hlutur í Íslands­banka verði seldur liggur ekki fyrir, en búist er við að hann verði að lág­marki 25 pró­sent, sem er lág­mark­s­við­mið Kaup­hallar Íslands vegna nýskrán­ingar félags á markað. Heimild er í fjár­lögum til að selja bank­ann í heild sinni. Sölu­ferlið hófst á ný í des­em­ber í fyrra og ef áformin ganga eftir á að skrá Íslands­banka á markað í maí á þessu ári. Verð og umfang mun ekki liggja fyrir fyrr en útboðs­lýs­ing verður birt í aðdrag­anda þeirrar skrán­ingar.

Ýmsir hafa lýst yfir áhyggjum af því að fyr­ir­komu­lag á sölu Íslands­banka muni laða að fjár­festa með skamm­tíma­mark­mið varð­andi kaupin, en ekki áform um að reka banka til lengri tíma í arð­sömum rekstri. Þær áhyggjur komu meðal ann­ars fram á vett­vangi fjár­laga­nefndar. Þau skamm­tíma­mark­mið séu meðal ann­ars að geta „tappað af“ það eigin fé sem sé til í bank­anum umfram þá 17 pró­sent eig­in­fjár­kröfu sem Fjár­mála­eft­ir­litið gerir.

Getur dregið úr getu til að takast á við útlánatöp

Áhættan sem getur verið af því að lækka eigið fé bank­anna um og er að þeir lendi í vand­ræðum við að mæta útlána­töpum við­skipta­vina sinna. Það á sér­stak­lega við núna þegar kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn geisar, með til­heyr­andi efna­hags­legum áhrifum á ýmsar geira. Þau áhrif hér­lendis eru að uppi­stöðu á ferða­þjón­ustu­geir­ann, en Íslands­banki hefur verið nokkuð stór­tækur í að lána til hans í upp­gangi síð­ustu ára.

Jón Gunnar Jónsson er forstjóri Bankasýslu ríkisins. Mynd: Skjáskot
Jón Gunnar Jónsson er for­stjóri Banka­sýslu rík­is­ins. Mynd: Skjáskot

Í níu mán­aða upp­gjöri bank­ans í fyrra kom fram að 20 pró­sent lána til fyr­ir­tækja séu í fryst­ingu vegna COVID-19 áhrifa (það er ekki verið að greiða af þeim sem stendur) eins og stendur, eða alls 120,3 millj­arðar króna. Þá eru 17,5 millj­arðar króna af lánum til ein­stak­linga í fryst­ingu og sam­tals eru því útlán upp á tæp­lega 138 millj­arða króna í þeirra stöðu að ekki er verið að greiða af þeim.

Íslands­banki hefur fært var­úð­ar­nið­ur­færslu upp á 1,9 millj­arða króna vegna þessa. Guðrún Johnsen, hag­fræð­ingur og lektor við Við­skipta­há­skól­ann í Kaup­manna­höfn, hefur gagn­rýnt að til standi að selja bank­ann við þessar aðstæður. Óvissa um virði eigna auki líkur á því að ríkið fái ekki raun­virði út úr söl­unni á Íslands­banka.

Bankasýslan reiknar sig niður á 19 milljarða

Banka­sýslan rekur í kynn­ingu sinni það sem hún telur mögu­legar arð­greiðslur fyrir sölu á Íslands­banka, og kemst að þeirri nið­ur­stöðu að lík­leg­ast sé að hægt yrði að greiða út 19 millj­arða króna af umfram eigin fénu.

Það er rök­stutt með því að draga þyrfti frá 17,1 millj­arð króna af eigin fé sem þyrfti að fjár­magna með víkj­andi skulda­bréfi. Það væri að mati Banka­sýsl­unnar of dýr aðgerð miðað við vaxta­kostnað á mark­aði og því ólík­leg. Þá telur Banka­sýslan að draga þyrfti 21,5 millj­arða króna frá á grund­velli var­úð­ar­sjón­ar­miða.

Einn hinn kerf­is­legu mik­il­vægu banka er nú þegar skráður í Kauphöll, Arion banki. Stefnu­mótun hans fer fram á for­sendum einka­fjár­festa, bæði erlendra skamm­tíma­sjóða og inn­lendra fjár­festa. Innan hans hefur verið mótuð stefna um útgreiðslu umfram eigin fjár sem er mun bein­skeytt­ari en sú var­færna stefna sem Banka­sýslan lýsir í kynn­ingu sinni.

Svigrúm til að greiða út allt að 80 milljarða

Þegar Arion banki var skráður á markað á fyrri hluta árs­ins 2018 lá fyrir að mark­mið ráð­andi hlut­hafa væri að greiða sér út eins mikið af eigin fé hans og hægt væri, á sem skemmstum tíma.

Í fjár­festa­kynn­ingu sem Kvika vann fyrir Kaupþing á þessum tíma kom fram að svig­rúm væri til að greiða út allt að 80 millj­arða króna, eða þriðj­ung alls eigin fjár Arion banka, á til­tölu­lega skömmum tíma með ýmsum hætti. Það væri hægt að gera í gegnum breyt­ingu á fjár­mögnun bank­ans, með því að draga úr útlánum hans, með því að minnka kostnað í gegnum upp­sagnir á starfs­fólki, með því að hrinda í gang umfangs­mik­illi end­ur­kaupa­á­ætlun á hluta­bréfum í bank­anum og svo auð­vitað í gegnum arð­greiðslur.

Þá átti að selja und­ir­liggj­andi eignir sem væru ekki hluti af kjarna­starf­semi Arion banka.

Í byrjun árs 2020 hafði flest í þeirri leik­á­ætlun gengið eftir. Eigið fé Arion banka hafði lækkað úr 225,7 millj­örðum króna í 190 millj­arða króna frá lokum árs 2017 og fram til loka árs 2019, eða um tæpa 36 millj­arða króna.

Til við­bótar töldu grein­ing­ar­að­ilar að bank­inn geti búið þannig um hnút­anna að það losni um tugi millj­arða króna til útgreiðslu þegar árið 2020 er á enda, aðal­lega með því að minnka útlán sín. Til stóð að minnka þau um 20 pró­sent á síð­asta ári. Í afkomu­spá sem Hag­fræði­deild Lands­bank­ans vann um upp­gjör Arion banka í aðdrag­anda birt­ingu árs­reikn­ings hans fyrir árið 2019 var því spáð að arð­greiðslur bank­ans gæti orðið 50 millj­arðar króna á tólf mán­uðum. Kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn kom í veg fyrir að þau áform gengu eftir sam­kvæmt þeirri tíma­línu sem lagt var upp með. Samhliða því að Seðla­banki Íslands réðst í að veita bönk­unum miklar til­slak­anir til að þeir gætu aðstoðað í bar­átt­unni við efna­hagslægð­ina sagði Ásgeir Jónsson, seðla­banka­stjóri, að það væri algjör­lega ótækt af Arion banka að íhuga arð­greiðslur eða end­ur­kaup á bréfum við ríkj­andi aðstæður.

Með of mikið eigið fé

Þegar Arion banki greindi frá upp­gjöri fyrir fyrstu níu mán­uði síð­asta árs var haft eftir Benedikt Gísla­syni, banka­stjóra Arion banka, að bank­inn væri í þeirri stöðu að vera með of mikið eigið fé sem nær ómögu­legt væri að ávaxta í takti við þau mark­mið sem stjórn bank­ans hafði sett honum, en þau snú­ast meðal ann­ars um að arð­semi eigin fjár sé tíu pró­sent eða meiri. Hún var 4,7 pró­sent á fyrstu þremur árs­fjórð­ungum síð­asta árs.

Á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2019 jókst eig­in­fjár­grunnur Arion banka um tæpa 30 millj­arða króna og heildar eigið fé bank­ans í lok sept­em­ber nam 192 millj­örðum króna.

Fyrir liggur að til þess að ná fram mark­miðum stjórnar um arð­semi eigin fjár, og orða banka­stjór­ans um mögu­leika Arion banka að ávaxta þetta mikla eigin fé, að til standi að greiða að minnsta kosti hluta af umfram eigið fé út til hlut­hafa þegar slíkt verður í boði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár