Aðstoðarmaður landbúnaðarráðherra til MS

Sunna Gunnars Mart­eins­dóttir hefur verið ráðin tíma­bundið sem verk­efna­stjóri hjá Mjólk­ur­sam­söl­unni. Hún kemur til MS úr sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráðu­neyt­inu.

Sunna Gunnars Mart­eins­dóttir, fyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður Gunnars Braga Sveins­sonar sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, hefur verið ráðin til starfa hjá Mjólk­ur­sam­söl­unni, MS, sem verk­efna­stjóri í upp­lýs­inga- og fræðslu­málum. Sunna segir í sam­tali við Kjarnann að um sé að ræða tíma­bundið verk­efni.

Sunna var ráðin aðstoð­ar­maður Gunnars Braga í utan­rík­is­ráðu­neytið í sept­em­ber 2013. Hún fylgdi honum svo yfir í sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráðu­neytið í apríl síð­ast­liðnum. Sunna er með BA gráðu í almanna­tengslum frá háskól­anum í Westminster og hefur stundað nám í hag­nýtri menn­ing­ar­miðlun við Háskóla Íslands. Áður en hún varð aðstoð­ar­maður Gunnars Braga starf­aði hún í þrjú ár sem skrif­stofu­stjóri þing­flokks Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Það vakti athygli skömmu fyrir kosn­ingar þegar Gunnar Bragi skip­aði Sunnu og Viggó Jónsson, aðal­full­trúa Fram­sókn­ar­flokks­ins í sveit­ar­stjórn Skaga­fjarðar, í stjórn Matís. Stjórn­ar­mönnum var vikið úr stjórn­inni dag­inn fyrir aðal­fund í októ­ber, og nýir til­nefndir, þar á meðal Sunna.

Sunna gerir ráð fyrir því að vera áfram í stjórn Matís meðan hún starfar hjá Mjólk­ur­sam­söl­unni, og seg­ist aðspurð hafa látið stjórn­ar­for­mann og stjórn­endur hjá Matís vita af verk­efn­inu hjá MS svo það sé allt uppi á borðum.

Sunna er ekki eini aðstoð­ar­maður ráð­herra sem hefur verið skipuð í stjórn stofn­unar eða fyr­ir­tækis í eigu rík­is­ins. Svan­hildur Hólm Vals­dótt­ir, aðstoð­ar­maður Bjarna Bene­dikts­son­ar, situr til að mynda í stjórn Íslands­pósts, og Matth­ías Ims­land, aðstoð­ar­maður Eyglóar Harð­ar­dóttur og áður Sig­mundar Davíð Gunn­laugs­son­ar, situr í stjórn Isa­via. Þá réði Lilja Alfreðs­dóttir Hrannar Pét­urs­son í stjórn Íslands­stofu skömmu fyrir kosn­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár