Landsvirkjun og HS Orka munu selja Thorsil orku í Helguvík

Landsvirkjun og Thorsil hafa undirritað drög að raforkusamningi
Lands­virkjun og Thorsil hafa und­ir­ritað drög að raf­orku­samn­ingi Mynd: Kjarninn.

Lands­virkjun og Thorsil hafa kom­ist að sam­komu­lagi um drög að raf­magns­samn­ingi um afhend­ingu á raf­magni til kís­il­vers sem Thorsil ætlar að reisa í Helguvík. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Landsvikjun.

Fyrr í mán­uð­inum hafði Hákon Björns­son, fram­kvæmda­stjóri Thorsil, greint frá því að búið væri að tryggja orku­af­hend­ingu til kís­il­vers­ins. Hann vildi hins vegar ekki upp­lýsa hvaðan orkan kæmi né á hvaða verði hún yrði keypt. Þá sagði Lands­virkjun að ekki væri búið að ganga frá neinum samn­ingum.

Kís­il­verið á að gang­setja á fyrsta árs­fjórð­ungi 2018, segir Lands­virkjun. Samkvæmt samn­ings­drög­unum mun Lands­virkjun afhenda Thorsil allt að 67 MW, en orkan verður afhent í áföngum úr núver­andi afl­stöðvakerfi Lands­virkj­unar ásamt stækkun við Búr­fells­virkjun. Síðasti áfangi orku­af­hend­ing­ar­innar eru sagður koma til við gang­setn­ingu Hvamms­virkj­unar um mitt ár 2020.

Hákon sagði við Frétta­blaðið fyrr í mán­uð­inum að fyr­ir­tækið hefði tryggt sé 87 MW orku, sem áætlað væri að þyrfti til að fram­leiða 54 þús­und tonn af kís­il­málmi á ári.

Samkvæmt Lands­virkjun munu samn­ings­drögin milli Lands­virkj­unar og Thorsil nú fara í und­ir­bún­ings­ferli hjá Eft­ir­lits­stofnun EFTA, ESA, og nið­ur­stöðu stofn­un­ar­innar verður beðið áður en samn­ing­ur­inn verður tek­inn til umfjöll­unar og end­an­legrar afgreiðslu í stjórn Lands­virkj­unar.

Þá hefur HS Orka til­kynnt að félagið hafi und­ir­ritað orku­sölu­samn­ing við Thorsil um afhend­ingu á allt að 32 MW til kís­il­vers­ins.

Landsnet og Thorsil skrif­uðu í síð­ustu viku undir sam­komu­lag um raf­orku­flutn­inga fyrir kís­il­ver Thorsil í Helguvík. Kostn­aður við það að tengja kís­il­verið við meg­in­flutn­ings­kerfi Lands­nets er um 2,5 millj­arðar króna, en teng­ingin verður gerð með lagn­ingu 132 kíló­volta jarð­strengs á milli Fitja og Stakks, tengi­virkis Lands­nets, sem verið er að byggja í Helguvík. Fram­kvæmdir eiga að hefj­ast næsta haust.

Í DV í byrjun mán­að­ar­ins var greint frá því að Reykja­nes­höfn hefði gefið Thorsil greiðslu­frest á gatna­gerð­ar­gjöldum vegna lóð­ar­innar undir verk­smiðj­una. Gjöldin áttu að greið­ast 30. sept­em­ber síð­ast­lið­inn en gjald­dag­anum var frestað til 15. des­em­ber. Hákon Björns­son vildi ekki upp­lýsa um hversu háa upp­hæð er um að ræða.

Thorsil er stærsti við­skipta­vinur Reykja­nes­hafnar, sem hefur fengið greiðslu­frest út nóv­em­ber­mánuð til að greiða skuldir sínar. Ljóst er að litlar tekjur Reykja­nes­hafnar, sem hún þarf til að geta staðið við greiðslur af lánum, aukast ekki á meðan stærsti við­skipta­vinur hennar greiðir ekki umsamin gjöld á réttum tíma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár