Bókarinn í Auschwitz dæmdur í fjögurra ára fangelsi

Þýskur dóm­stóll í Lüneburg hefur kveðið upp fjög­urra ára fang­els­is­dóm yfir hinum 94 ára Oskari Gröning. Hann hefur verið þekktur sem „Bókarinn í Auschwitz, en hann hafði það hlut­verk í útrým­ing­ar­búðum nas­ista í seinni heim­styrj­öld­inni að telja eigur fang­anna sem nas­istar gerðu upp­tækar.

Gröning var ákærður fyrir að hafa átt þátt í morðum að minnsta kosti 300.000 gyð­inga en á end­anum dæmdur fyrir stuðla að fjöldamorðum. Hann hefur sagst telja sig sið­ferði­lega sekan af glæp­unum. BBC greinir frá þessu. Nokkrir þeirra sem komust lífs af úr Auschwitz og eru enn á lífi báru vitni gegn Gröning.

Sak­sókn­ari fór fram á að Gröning yrði dæmdur fyrir þjóð­ar­morð vegna þess að hann hafi hjálpað til við að fram­kvæmdin gengi auð­veld­lega fyrir sig. Lögmenn hans segja hins vegar að þáttur hans í glæpum nas­ista geti varla talist hafa verið þjóð­ar­morð.

Rétt­ar­höldin fjöll­uðu því um hversu stóran þátt fólk þurfti að hafa átt í þjóð­ar­morðum nas­ista til þess að hafa brotið af sér, án þess að drepa nokkurn mann.

Vegna ald­urs er óvíst hvort Gröning muni nokk­urn­tíma þurfa að afplána dóm sinn í fang­elsi en hann er að öllum lík­indum meðal síð­ustu nas­istum sem sæta rétt­ar­höldum vegna gjörða þeirra í seinni heim­styrj­öld­inni.

Gröning er ólíkur öðrum nas­istum sem réttað hefur verið yfir vegna glæpa þeirra í seinni heim­styrj­öld­inni vegna þess að hann hefur lengi talað opin­ber­lega um hlut­verk sitt og útrým­ing­ar­búð­irnar. Hann seg­ist hafa gert það til þess að þagga þá sem telja hel­för­ina aldrei hafa átt sér stað.

Í heim­ild­ar­mynd BBC um Auschwitz frá 2005 segir hann: „Ég sá gasklef­ana. Ég sá lík­brennslu­ofn­ana. Ég var á ramp­inum þegar þeir völdu fólkið sem átti að fara í gasklef­ana.“

Þagði um Auschwitz í fyrstu


[caption id="" align="alignnone" width="800"] Talið er að 1,1 milljón manns hafi verið myrtir í Auschwitz-Birkenau.[/caption]

Gröning var alinn upp af ströngum föður sem missti allt sitt í krepp­unni á þriðja ára­tug síð­ustu aldar. Hann fékk fljótt áhuga á stríði og vildi kom­ast í sér­hæfða her­deild í þýska hernum. Gröning skráði sig því til liðs við Stormsveitir nas­ista árið 1940, 19 ára gam­all.

Eftir að hafa unnið sem bók­ari fyrir SS-sveit­irnar var hann sendur til Auschwitz árið 1941 eftir að hafa skrifað undir þagn­areið um það sem hann myndi sjá og gera. Gröning var for­vit­inn um hvaða furðu­legi staður þetta væri sem hann hefði verið sendur á og spurði yfir­menn sína. Þeir sögðu honum hins vegar að hann þyrfti að kom­ast að því sjálfur því Auschwitz væru sér­stakar fanga­búðir. Gröning starf­aði við útrým­inga­búð­irnar í Póllandi í heilt ár.

Gröning þagði um veru sína í Auschwitz eftir að hafa gef­ist upp fyrir breskum her­sveitum í júní 1945. Hann seg­ist hafa áttað sig á því að starf hans í Auschwitz gætu haft í för með sér nei­kvæð við­brögð. Hann sagð­ist því hafa verið með ann­ari her­deild og sagði svo síðar hafa gert það vegna þess að sig­ur­veg­arnir skrifa sög­una og að það sem gerð­ist í Auschwitz hefði ekki alltaf verið mann­úð­legt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár