Ríkið seinkar því að innheimta 22 milljarða til að veita fyrirtækjum svigrúm

Fyr­ir­tæki í land­inu fá frest á helm­ingi trygg­inga­gjalds og stað­greiðslu opin­berra gjalda sem voru á gjald­daga í mars. Eindagi þeirra átti að vera á mánu­dag en verður frestað um mánuð.

Rík­is­stjórnin afgreiddi á fundi sínum í gær­kvöldi frum­varp Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sem gerir ráð fyrir því að veita fyr­ir­tækjum í land­inu mán­að­ar­frest á helm­ingi trygg­inga­gjalds og stað­greiðslu opin­berra gjalda sem voru á gjald­daga í mars. Eindagi þeirra gjalda er að óbreyttu á mánu­dag, 16. mars, en verður seinkað fyrir helm­ing þeirrar upp­hæðar sem fyr­ir­tækin í land­inu eiga að greiða til 15. apríl.

Gert er ráð fyrir því að þær laga­breyt­ingar sem lagðar eru til með frum­varp­inu hafi í för með sér seinkun á tekjum rík­is­sjóðs upp á 22 millj­arðar króna.

Frum­varpið verður lagt fyrir á við­bót­ar­þing­fundi sem fram fer í dag vegna aðstæðna í sam­fé­lag­inu og ætti að verða að lögum í kjöl­farið,

Í til­kynn­ingu frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu segir að meðan greiðslu­frestur varir verði unnið að útfærslu nýrrar leiðar til að tryggja fyr­ir­tækjum í erf­ið­leikum úrræði til greiðslu­dreif­ingar. „Tilefni og nauð­syn laga­setn­ing­ar­innar má rekja til sam­þykktar rík­is­stjórn­ar­innar 10. mars, um mark­vissar aðgerðir til að mæta efna­hags­legum áhrifum COVID-19. Aðgerð­irnar miða að því að draga úr tjóni, tryggja að nei­kvæð áhrif á atvinnu­líf og efna­hag vari sem skemmst og skapa aðstæður fyrir öfl­uga við­spyrnu í kjöl­farið. Meðal aðgerða sem þar voru kynntar var að veita fyr­ir­tækjum svig­rúm sem lenda í tíma­bundnum rekstr­ar­örð­ug­leikum vegna tekju­falls og er brugð­ist við því með ofan­greindu frum­varpi um frestun gjald­daga.

[adspot]Um tíma­bundna og almenna ein­skipt­is­að­gerð er að ræða og því er lagt til að breyt­ingin verði gerð með bráða­birgða­á­kvæðum í lögum um stað­greiðslu opin­berra gjalda og lögum um trygg­inga­gjald.“

Ferðabannið flýtti viðbrögðum

Ljóst er að ferða­bannið sem Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, setti á í fyrr­inótt, og kemur meðal ann­ars í veg fyrir að far­þegar frá Íslandi geti ferð­ast til Banda­ríkj­anna í 30 daga frá og með mið­nætti í dag, hefur gert það að verkum að rík­is­stjórn Íslands hefur end­ur­metið við­brögð sín við efna­hags­legum afleið­ingum útbreiðslu veirunnar sem veldur COVID-19 sjúk­dómnum.

Á þriðju­dag kynnti rík­is­stjórnin alls sjö aðgerðir sem ráð­ast ætti í til að takast á við aðstæð­urnar. Ein þeirra var að fresta með ein­hverjum hætti greiðslu opin­berra gjalda, en sú leið var ekki útfærð með neinum hætti á þeim blaða­manna­fundi, né í þeim til­lögum sem birtar voru opin­ber­lega í kjöl­far hans. Nú hefur fyrsta útfærsla þeirra litið dags­ins ljós.

Í þeim pakka voru líka aðgerðir sem þegar höfðu verið kynntar, eins og til­færsla á inn­stæðum Íbúða­lána­sjóðs úr Seðla­banka Íslands og yfir til við­skipta­banka til að auka laust fé innan þeirra.

[links]Þá hafði áður verið greint frá því að aukin kraftur yrði settur í fjár­fest­ingar hins opin­bera og engar nýjar slíkar til­greindar á blaða­manna­fundi rík­is­stjórn­ar­innar. Þar var hins vegar líka greint frá því að fyr­ir­tækjum sem lenda í tíma­bundnum rekstr­ar­örð­ug­leik­um ­vegna tekju­falls verði veitt svig­rúm, t.d. með lengri fresti til að standa skil á sköttum og opin­berum gjöld­um og að gistin­átta­skattur verði felldur niður. Hann hefur skilað rúm­lega einum millj­arði króna í tekjum á und­an­förnum árum en fyrir liggur að gistin­átta­skatt­ur­inn, sem er 300 krónur á hverja selda gistinótt, mun hvort eð er skila mun minna í tekjur fyrir rík­is­sjóð ef ferða­menn eru ekki að koma til lands­ins.

Þá greindi rík­is­stjórnin frá því að hún ætl­aði í mark­aðsá­tak erlendis „þeg­ar að­stæður skap­ast til þess að kynna Ísland sem áfanga­stað, auk átaks til að hvetja til ferða­laga Íslend­inga inn­an­lands.“

Virkt sam­tal um hvernig bankar eigi að taka á stöðu fyr­ir­tækja sem geta ekki staðið við greiðslur af lánum né almennar rekstr­ar­greiðslur, eins og launa­greiðslur, hefur verið í gangi en engin nið­ur­staða kynnt um hvernig þeim málum verði háttað að öðru leyti en að til standi að reyna að fleyta „líf­væn­legum fyr­ir­tækjum“ í gegnum þann kúf sem framundan er.

Forsætisráðherra sagði mikla áskorun framundan

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra gaf í gær munn­lega skýrslu um aðgerðir stjórn­valda í efna­hags­málum vegna veiru­far­ald­urs­ins sem nú geisar á Alþingi. Þar sagði hún meðal ann­ars: „Ég vil segja það að mark­viss og traust við­brögð skipta sköpum í aðstæðum eins og við glímum nú við. Aðgerðir stjórn­valda munu miða við að styðja við atvinnu­lífið og fólkið í land­inu, enda er það tengt órjúf­an­legum böndum.“

Katrín kynnti engar nýjar aðgerðir en fór yfir það sem þegar verið verið lagt á borðið og sagði að mestu máli skipti að aðgerðir stjórn­valda verði mark­vissar, rétt­látar og skyn­samar. „Gerum okkur grein fyrir því, við sem hér sitjum, að íslenskt sam­fé­lag stendur frammi fyrir mik­illi áskorun. Og það er áskorun sem er mik­il­vægt að við mætum í sam­ein­ingu og leggjum öll okkar að mörkum til að sigr­ast á henni. Þar er hlut­verk okkar allra mik­il­vægt, bæði rík­is­stjórnar en ekki síður þings­ins. Við þurfum öll að sýna for­ystu til þess að við getum tek­ist á við þessa áskorun með sóma­sam­legum hætti.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár