Óskandi að VG liðar hefðu kjarkinn til að standa með efasemdum sínum

Þing­maður Við­reisnar spurði dóms­mála­ráð­herra hvort sam­staða væri hjá rík­is­stjórn­ar­flokk­unum þremur varð­andi breyt­ingar á útlend­inga­lögum.

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar.
Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir, þing­maður Við­reisnar. Mynd: Skjáskot/Alþingi

Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir, þing­maður Við­reisnar, gerði frum­varp Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur dóms­mála­ráð­herra um útlend­inga­mál að umtals­efni í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag. Hún sagði að ósk­andi væri að þeir stjórn­ar­liðar sem hefðu talað í þessu máli af hálfu Vinstri grænna – og ýmist lýst yfir efa­semdum eða allt að því and­stöðu – hefðu kjarkinn til að standa með þeim efa­semdum sínum í mál­inu og stoppa það.

Hún benti á að frum­varpið væri að mestu óbreytt frá upp­haf­legu frum­varpi sem þáver­andi dóms­mála­ráð­herra, Sigríður Andersen, lagði fyrst fram í sam­ráðs­gátt. Þar væri fjallað um mögu­leika fólks á alþjóð­legri vernd á Íslandi og mögu­leika stjórn­valda til að vísa þessu sama fólki burt.

„Rauði þráð­ur­inn í frum­varp­inu er að styrkja stoð Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar. Í sam­hengi hlut­anna hér held ég að það hljóti ein­fald­lega að þýða að þeir sem hafa fengið inni ein­hvers staðar ann­ars staðar, hvar sem það nú er, eigi ekki skjól hér. Engu skiptir hvar það er, í hvaða löndum það er eða við hvaða aðstæður það er og hvaða aðstæður bíða fólks þar. Það er ein­fald­lega þannig að mjög lítið er á bak við þann merki­miða að hafa til dæmis fengið alþjóð­lega vernd í Grikk­landi og það að halda því fram að það sé raun­veru­leg vernd fyrir fólk sem sent er út í von­leysi er ekki góð póli­tík,“ sagði hún.

Styttri málsmeðferðartími ekki stóri sannleikurinn

Þing­mað­ur­inn sagði að allt þetta væri sett fram undir for­merkjum skil­virkni og ein­fald­ari máls­með­ferðar. Þótt það væri vissu­lega ágætt og alltaf kapps­mál að stytta máls­með­ferð­ar­tíma leyfði hún sér að full­yrða að það væri ekki bið­tím­inn sem hefði truflað almenn­ing hér.

„Styttri máls­með­ferð­ar­tími er ekki stóri sann­leik­ur­inn þegar nið­ur­staðan verður vond og jafn­vel ómann­úð­leg. Það er ekki það sem kallað hefur verið eftir. Við höfum séð sorg­legar sögur fólks, full­orð­inna og barna, sem sækja skjól á Íslandi og það er fólk sem raun­veru­lega þarf á þess­ari vernd að halda. Þetta mál er að mínu viti skref til baka.

Þorbjörg Sigríður spurði dóms­mála­ráð­herra í fram­hald­inu hvort ein­hugur væri um þetta mál í rík­is­stjórn­inni og hvort ráð­herra nyti stuðn­ings sam­ráð­herra sinna úr öðrum flokkum.

Verðum að forgangsraða fyrir þá sem þurfa raunverulega vernd

Áslaug Arna svar­aði og sagði að ekki væri rétt að frum­varpið væri óbreytt. „Vegna athuga­semda frá Flótta­manna­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna var til dæmis fallið frá því að kæra fresti rétt­ar­á­hrifum sem og var tekið út að það þyrfti veru­legar ástæður vegna end­ur­upp­töku.“

Hún sagði að það skipti einmitt máli hvar fólk hefði verið. „Við beitum til dæmis ekki Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­inni er varðar Grikk­land og Ung­verja­land vegna þeirra stöðu sem þau lönd eru í í dag. Við sendum fólk ekki til baka í flótta­manna­búðir í Grikk­landi.“

Varðandi frum­varpið sjálft væru þau að líta til máls­ferð­ar­tím­ans vegna þess að óásætt­an­legt væri að svo margir sem koma hingað þyrftu að bíða í fjölda mán­aða eftir end­an­legri nið­ur­stöðu.

„Við verðum að for­gangs­raða fyrir það fólk sem er í raun­veru­legri þörf fyrir vernd. Vernd­ar­kerfið okkar er einmitt ekki hugsað fyrir fólk sem er með vernd í öðru ríki nú þegar. Þrátt fyrir breyt­ing­arnar í frum­varp­inu fá þeir sem eru með vernd ann­ars staðar ein­stak­lings­bundna skoðun, þ.e. fá við­tal og geta lagt fram þau gögn sem þeir óska eftir og fært fram rök fyrir sinni vernd hér þrátt fyrir vernd ann­ars staðar. End­ur­send­ingar mega aldrei brjóta í bága við 42. gr. útlend­inga­laga sem bygg­ist á 3. gr. mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu,“ sagði ráð­herr­ann.

Einstaka fyrirvarar hjá Vinstri grænum

Áslaug Arna sagði jafn­framt að auð­vitað ætti að ræða það að fólk sem er með vernd ann­ars staðar og með rétt­indi eins og rík­is­borg­arar ann­arra Evr­ópu­ríkja ætti að geta komið hingað og fengið frekar atvinnu­leyfi. „Við ættum að hugsa það út frá því að þau eiga ekki endi­lega heima í vernd­ar­kerf­inu okkar þar sem við verðum að for­gangs­raða betur. Þrátt fyrir að 531 ein­stak­lingur hafi fengið vernd í gegnum það kerfi okkar á síð­asta ári verður okkur að ganga betur í stjórn­sýslu útlend­inga­kerf­is­ins. Það er óásætt­an­legur bið­tími í dag. Við verðum að geta afgreitt mál betur og hraðar á þeirri for­sendu að fólk geti fyrr hafið árang­urs­ríka aðlögun.“

Varðandi sam­stöðu í rík­is­stjórn­inni þá sagði hún að ein­staka fyr­ir­varar væru hjá Vinstri grænum við nokkur atriði frum­varps­isn. Hún svar­aði því ekki hvort hún nyti stuðn­ings sam­ráð­herra sinna úr öðrum flokkum.

Lýsir skorti á mannúð, samkennd og ábyrgð

Þorbjörg Sigríður tók aftur til máls og sagði að valdið væri dóms­mála­ráð­herra og rík­is­stjórn­ar­flokk­anna þriggja. Hún end­ur­tók spurn­ing­una: „Er sam­staða í rík­is­stjórn­ar­flokk­unum þremur?“

Hún vék máli sínu að þeim fyr­ir­vörum sem Áslaug Arna nefndi. „Allir sem hafa hlýtt á það hverjir fyr­ir­var­arnir eru átta sig á því að þeir eru veiga­miklir. Mér finnst svör dóms­mála­ráð­herra því miður ramma ágæt­lega inn að hverju er stefnt og ég hef áhyggjur af því. Mér finnst þessi póli­tík lýsa skorti á mannúð, sam­kennd og ábyrgð. Þeir stjórn­ar­liðar sem hafa talað í þessu máli af hálfu VG hafa ýmist lýst yfir efa­semdum eða allt að því and­stöðu,“ sagði hún.

Óskandi væri, að mati Þor­bjargar Sigríðar, að þeir hefðu kjarkinn til að standa með þeim efa­semdum sínum í mál­inu og stoppa það. „Sann­ar­lega verður að for­gangs­raða, sann­ar­lega verður að horfa til þeirra sem eru í mestri þörf, en áhyggju­efnið er hvar sú lína er dregin. Vernd mun standa mjög fáum til boða verði þetta nið­ur­staðan, jafn­vel ekki þeim sem sann­ar­lega þurfa á henni að halda. Nið­ur­staðan verður: Hingað geta fáir leitað og mörgum verður vísað burt. Það er póli­tík sem er ekki hægt að taka undir.“

„Við gerum betur en nokkur önnur lönd í kringum okkur“

Dóms­mála­ráð­herra kom í pontu í annað sinn og sagði að það væri alrangt hjá þing­manni að eftir að þetta frum­varp færi í gegn myndu fáir eiga þess kost að fá vernd, að það myndi standa fáum til boða. „Það er alrangt hjá hæst­virtum þing­manni. Við sjáum það í dag að allir þeir sem fá jákvæð svör í kerf­inu okkar í dag eru einmitt þeir sem eru í raun­veru­legri þörf fyrir vernd, að flýja ofsóknir í heima­landi sínu. Aukinn fjöldi úr þeim hópi kemur hingað að sækja um í fyrsta skipti á Íslandi og hefur ekki sótt um í öðru landi, er ekki með vernd ann­ars staðar og þarf raun­veru­lega á vernd að halda. Þeir sem falla undir það að vera með vernd ann­ars staðar fá oft­ast nei­kvætt svar í íslensku kerfi í dag þannig að raun­veru­lega breytir þetta mjög litlu nema því að hraða svar­inu.“

Hún sagði að það sem Þorbjörg Sigríður kæmi inn á – mannúð, sam­kennd og ábyrgð – væri einmitt það sem útlend­inga­lög­gjöfin og útlend­inga­stefna Íslands gengi út á, sem og að gera vel við þá sem koma hingað í raun­veru­legri þörf fyrir vernd.

„Við erum að gera vel, við gerum betur en nokkur önnur lönd í kringum okkur við að taka á móti fólki, hvort sem við miðum við fjölda eða hvernig við erum að bregð­ast við COVID, og gefa fólki alþjóð­lega vernd vegna þeirra aðstæðna sem nú eru uppi sem mun hafa áhrif á 225 ein­stak­linga,“ sagði hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár