Forseti ASÍ fékk umboð til að undirrita tvenns konar yfirlýsingar

Eftir umræður á auka­fundi mið­stjórnar ASÍ í gær­morgun var ákveðið að leggja til atkvæða yfir­lýs­ingu um sam­komu­lag við Icelandair sem myndi binda enda deilur sam­bands­ins við fyr­ir­tækið.

Í gær­morgun, nánar til­tekið klukkan 8 að morgni, hófst auka­fundur mið­stjórnar Alþýðu­sam­bands Íslands (ASÍ). Fund­ur­inn hafði verið boð­aður með skömmum fyr­ir­fara og fór fram í gegnum fjar­funda­búnað. Fund­ur­inn stóð yfir í klukku­tíma og 21 mín­útu.

Tilefni fund­ar­ins var að Bogi Nils Bogason, for­stjóri Icelandair Group, hafði haft sam­band og óskað eftir fundi með Drífu Snædal, for­seta ASÍ, og Berg­lindi Haf­steins­dóttur, for­manni Flug­freyju­fé­lags Íslands (FFÍ). Samkvæmt fund­ar­gerð auka­fund­ar­ins, sem Kjarninn hefur undir höndum, hafði verið ljóst af þeim fundi að Icelandair vildi síður ganga í gegnum hluta­fjár­út­boð sitt, sem hófst klukku­tíma eftir auka­fund ASÍ, nema að „sátt ríkti um stöðu félags­ins á vinnu­mark­aði“.

Sú sátt sem þyrfti að nást snýst um ákvörðun Icelandair að segja upp flug­freyjum og -þjónum félags­ins 17. júlí síð­ast­lið­inn, í miðri kjara­deilu. Auk þess gaf Icelandair það út í kjöl­farið að það hygð­ist semja við annað stétt­ar­fé­lag en FFÍ. ASÍ hafði sagt að bæði Icelandair og Samtök atvinnu­lífs­ins (SA), sem studdu ákvörðun Icelandair, yrði stefnt fyrir Félags­dóm vegna máls­ins.

Í grein sem birt­ist í Morg­un­blað­inu á þriðju­dag kall­aði Drífa upp­sagnir flug­þjóna og -freyja eina „gróf­­­ustu aðför að rétt­indum vinn­andi fólks hér á landi á síð­­­ari tím­um, aðför sem er þegar skráð á spjöld sög­unn­­ar“.

Þurftu að gangast við því að hafa brotið leikreglur

Forseti ASÍ gerði þær skýru kröfur í sam­tal­inu við for­stjóra Icelandair að bæði félagið og SA þyrftu að hafa geng­ist við því að hafa brotið leik­reglur á vinnu­mark­aði. Úr varð að sett voru saman drög að sam­eig­in­legri yfir­lýs­ingu. Kjarninn greindi frá inni­haldi hennar í gær­morgun.

Í yfir­lýs­ing­unni sem lögð var fyrir fund­inn sagði að aðilar væru sam­mála um að lög­mæt og rétt við­brögð atvinnu­rek­enda og stétt­ar­fé­laga í erf­iðum og lang­dregnum kjara­deilum ættu að fara eftir þeim leik­reglum og lögum sem gildi í sam­skiptum aðila vinnu­mark­aðar sam­kvæmt lög­um.

Síðan sagði: „Það við­brögð Icelandair, þegar félagið taldi von­laust um frek­ari árangur í við­ræðum við Flug­freyju­fé­lag Íslands, að segja upp öllum starf­andi flug­freyjum og flug­þjónum þann 17.7.2020 eru hörmuð enda brutu þau í bága við góðar sam­skipta­reglur sem aðilar vinnu­mark­að­ar­ins vilja við­hafa. Icelandair telur nauð­syn­legt fyrir fram­tíð félags­ins að virða stétt­ar­fé­lög og sjálf­stæðan samn­ings­rétt starfs­fólks síns sem tryggir frið um starf­semi félags­ins á gild­is­tíma kjara­samn­inga og á meðan leitað er lausna í kjara­við­ræð­um. Aðilar munu leggja sig fram um að halda góðu sam­starfi og munu leggja sitt af mörkum til þess að end­ur­vinna og efla traust sín á milli.“

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, var eini miðstjórnarmaðurinn sem kaus gegn tillögunni.
Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, var eini mið­stjórn­ar­mað­ur­inn sem kaus gegn til­lög­unni.

Með yfir­lýs­ing­unni, yrði hún send út, áttu aðilar hennar að vera sam­mála um að „með henni ljúki öllum deilum þeirra á milli um þá atburði sem áttu sér stað í sam­skiptum þeirra þann 17.7.2020 og mun hvor­ugur aðila gera kröfur á hinn vegna þeirra“.

Verið að veita Icelandair „gott veður“

Á fund­inum í gær­morgun las Drífa Snædal yfir­lýs­ing­una upp og opn­aði síðan á umræður. Í fund­ar­gerð fund­ar­ins segir að skiptar skoð­anir hafi verið á meðal mið­stjórn­ar­manna um hvort rétt væri að sam­þykkja yfir­lýs­ing­una og veita Icelandair þar með „gott veður“ í hluta­fjár­út­boði félags­ins.

Þar tók­ust á sjón­ar­mið sem voru ann­ars vegar þau að með yfir­lýs­ing­unni væru Icelandair og SA að gang­ast við því að hafa gengið gegn leik­reglum á vinnu­mark­aði og komið illa fram við starfs­fólk sitt. „Slæmt gæti verið fyrir launa­fólk ef Icelandair færi í þrot og í stað­inn kæmu hingað ein­göngu lággjalda­flug­fé­lög með enga gilda kjara­samn­inga og sem eru þekkt fyrir að keyra niður laun starfs­fólks.“

Hins vegar kom fram það sjón­ar­mið að með yfir­lýs­ingu væri verið að veita Icelandair ein­hvers konar synda­af­lausn. „Eðli­legra væri að fara með málið fyrir Félags­dóm. Eina ástæðan fyrir því að Icelandair kæmi nú til verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar væri að fjár­festar vildu ekki taka þátt í hluta­fjár­út­boð­inu og því væri eina von félags­ins að reiða sig á eft­ir­launa­sjóði launa­fólks.“

Vildu sterkara orðalag

Í umræð­unum var minnt á að erfitt væri að segja til um hvernig mála­rekstur fyrir Félags­dómi myndi enda. Verka­lýðs­hreyf­ingin gæti allt eins tapað mál­inu og með yfir­lýs­ing­unni feng­ist ákveðin við­ur­kenn­ing á afstöðu hennar.

Ein­hverjir fund­ar­manna töldu að orða­lagið í yfir­lýs­ing­unni þyrfti að vera sterkara og að Icelandair þyrfti að gang­ast við því að hafa brotið lög í henni, í stað þess að hafa hagað sér „í bága við góðar sam­skipta­reglur sem aðilar vinnu­mark­að­ar­ins vilja við­hafa“. Samkvæmt fund­ar­gerð­inni sagði lög­fræð­ingur ASÍ að orða­lag yfir­lýs­ing­ar­innar næði yfir lög­bundnar og ólög­bundnar reglur og hefðir og venjur.

Ragnar Þór Ingólfsson telur að hlutafjárútboð Icelandair standi mjög tæpt og að það útskýri sáttarhönd félagsins í deilu þess við verkalýðsforystuna.
Ragnar Þór Ing­ólfs­son telur að hluta­fjár­út­boð Icelandair standi mjög tæpt og að það útskýri sátt­ar­hönd félags­ins í deilu þess við verka­lýðs­for­yst­una.

Drífa sagði, eftir umræður um hvort að yfir­lýs­ingin sem Icelandair var til­búið að senda út tengd­ist hluta­fjár­út­boði félags­ins sem hófst í gær­morgun og mögu­legri þátt­töku líf­eyr­is­sjóða í því, að það væri rétt.

Yfir­lýs­ingin kæmi til núna vegna hluta­fjár­út­boðs­ins. Í fund­ar­gerð­inni er haft eftir for­seta ASÍ að hún ætl­aði ekki að skipta sér af því sem líf­eyr­is­sjóðir gera, enda væri það ekki hennar hlut­verk. „Það væri hennar mat að dóm­stóla­leiðin sé alltaf áhættu­söm og rétt að leita lausna í sam­skiptum og samn­ingum og síður fyrir dóm­stólum. Þá greindi hún frá því að hún hefði verið í sam­bandi við for­mann LÍV/VR [Ragnar Þór Ing­ólfs­son, sem sagði sig úr mið­stjórn ASÍ fyrr á þessu ári] og upp­lýst hann um stöð­una og hann væri sam­mála því að freista þess að fá sam­eig­in­lega yfir­lýs­ingu.“

Umboð til að ganga frá báðum yfirlýsingunum

Að því loknu voru greidd atkvæði um lít­il­lega breytta yfir­lýs­ingu. Helstu breyt­ing­arnar voru þær að SA yrðu gerð með­sek Icelandair í orða­lagi hennar og að í stað orða­lags­ins „góðar sam­skipta­reglur sem aðilar vinnu­mark­að­ar­ins vilja við­hafa“ myndi koma „reglur um sam­skipti aðila vinnu­mark­að­ar­ins“.

Sá fyr­ir­vari var þó settur á þær breyt­ingar að for­seti ASÍ myndi freista þess að ná þeim í gegn en að hún hefði „slaka til að und­ir­rita yfir­lýs­ing­una sam­kvæmt því sem var birt upp­haf­lega“. Því voru báðar yfir­lýs­ing­arnar sam­þykktar og for­seta ASÍ veitt umboð til þess að ganga frá und­ir­ritun á annarri hvorri.

Tíu mið­stjórn­ar­menn sam­þykktu til­lögu Drífu, tveir sátu hjá og eitt atkvæði var greitt á móti. Annar þeirra sem sat hjá var Finnbogi Svein­björns­son, for­maður Verka­lýðs­fé­lags Vest­fjarða. Hann gerði grein fyrir því að „hann sæti hjá ein­göngu þar sem hann vildi að text­inn frá mið­stjórn væri end­an­legur en ekki hægt að ganga til baka í fyrri texta“.

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, var sú eina sem greiddi atkvæði á móti til­lög­unni og óskaði sér­stak­lega eftir því að því yrði komið á fram­færi við Icelandair að hún sem 2. vara­for­seti ASÍ og for­maður Eflingar væri ekki sam­þykk.

Reglu­legur mið­stjórn­ar­fundur innan ASÍ fór síðan fram eftir hádegið í gær. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans var mik­ill hiti á þeim fundi vegna þess að yfir­lýs­ingin sem lögð var fram á auka­fund­inum um morg­un­inn hefði lekið út. Þar var rætt hvort mið­stjórn­ar­með­limir myndu kjósa aftur um yfir­lýs­ing­una, en sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans verður ekki af því. Því er umboð for­seta ASÍ um að ganga frá þeim á for­sendum morg­un­fund­ar­ins enn í fullu gildi.

Enn sem komið er hefur hvorug yfir­lýs­ingin verið und­ir­rituð, hvorki sú upp­runa­lega né sú breytta.

Tilbúnir að ganga lengra þegar þá vantar pening

Hluta­fjár­út­boð Icelandair Group, þar sem félagið ætlar að safna að minnsta kosti 20 millj­örðum króna í nýtt hluta­fé, hófst í gær­morg­un. Á meðal þeirra fjár­festa sem helstar vonir eru bundnar við að taki þátt í útboð­inu eru líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna og Gildi líf­eyr­is­sjóð­ur. Stétt­ar­fé­lögin VR og Efl­ing skipa stjórn­ar­menn í báða sjóð­ina, en for­svars­menn þeirra beggja hafa gagn­rýnt Icelandair harð­lega und­an­far­ið.

Líf­eyr­is­sjóð­irnir sem um ræðir fund­uðu í gær og í morgun til að taka ákvörðun um hvort þeir myndu taka þátt í útboð­inu eða ekki. Ekkert hefur verið opin­berað um afstöðu þeirra enn sem komið er.

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, fagn­aði lend­ingu í málum ASÍ og Icelandair í sam­tali við Kjarnann í gær. VR skipar helm­ing stjórn­ar­manna í stjórn Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna og er með stjórn­ar­for­mennsku þar sem stendur.

Ragnar Þór sagði að hluta­fjár­út­boð Icelandair stæði mjög tæpt og það útskýrði sátt­ar­hönd Icelandair í deil­unni. „Það hlýtur að vera lýsandi fyrir stemn­ing­una innan félags­ins og meðal stjórn­enda. Maður skynjar það og les úr þess­ari miklu óvissu sem er í kringum hluta­fjár­út­boðið og í kringum fram­tíð félags­ins. Alla­jafna hefði ég ekki talið – miðað við fram­gang félags­ins og stjórn­enda Sam­taka atvinnu­lífs­ins hingað til – að við ættum von á þessum mikla sátta­tón. En svo þegar vantar pen­inga þá eru menn til­búnir til að ganga lengra en þeir væru ann­ars lík­legir til að ger­a.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár