Starfsmenn Fiskistofu mótmæla nýjum lögum og hvetja til þess að hætt verði alfarið við flutning

Starfs­menn Fiski­stofu mót­mæla harð­lega breyt­ingum á lögum um Stjórn­ar­ráð Íslands, sem sam­þykktar voru á þingi í síð­ustu viku. Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu sem starfs­menn­irnir hafa sent frá sér, eftir almennan fund þeirra í morgun.

Samkvæmt lög­unum mega ráð­herrar flytja stofn­anir sem undir þá heyra milli staða. Sú heim­ild var í lögum en var felld brott árið 2011 áður en hún var svo sett aftur inn nú. Í með­förum þings­ins var ákveðið að bæta því við að ráð­herrar þurfi að flytja Alþingi skýrslu um áform sín áður en ákvörðun er tekin. Starfs­menn Fiski­stofu benda hins vegar á að ákvæði um að flytja þurfi skýrslu tekur ekki gildi 1. sept­em­ber 2015. „Það þýðir að ráð­herra kann að álykta að hann geti farið óhindrað fram í flutn­ingi Fiski­stofu til Akur­eyrar, innan þess tíma, taki hann ákvörðun þar um.“

Eins og kunn­ugt er til­kynnti Sigurður Ingi Jóhanns­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, óvænt um það í fyrra að Fiski­stofa ætti að flytj­ast til Akur­eyrar. Starfs­menn Fiski­stofu hafa barist grimmt gegn þessu, leit­uðu meðal ann­ars til umboðs­manns Alþingis og á end­anum var hætt við hraðan flutn­ing stofn­un­ar­innar. Þá var ákveðið að núver­andi starfs­menn ættu að hafa val um það hvort þeir störf­uðu á Akureyri eða í Hafn­ar­firði þar sem stofn­unin er nú, utan Fiski­stofu­stjóra, sem flyst til Akur­eyrar. Það var meðal ann­ars þetta mál sem varð til breyt­ing­anna á lög­unum um stjórn­ar­ráðið, því gagn­rýnt hafði verið að Sigurður Ingi hefði ekki laga­heim­ild til að ákveða að færa stofnun milli staða.

„Starfs­menn Fiski­stofu skora á ráð­herra að hverfa alfarið frá áformum sínum um fyr­ir­hug­aðan flutn­ing Fiski­stofu,“ segja starfs­menn­irnir í yfir­lýs­ingu. Þeir segj­ast telja að ráð­herr­ann verði að ígrunda vand­lega ábend­ingar umboðs­manns Alþingis, og virða þurfi aðrar reglur stjórn­sýsl­unnar en laga­heim­ild­ina. Þeir áforma að mynda starfs­hóp til að standa vörð um lof­orð ráð­herra og vand­aða stjórn­sýslu­hætti komi til flutn­ings höf­uð­stöðva Fiski­stofu.

„Það er gert til að tryggja að staðið verði við yfir­lýs­ingar ráð­herra, varð­andi rétt­mætar vænt­ingar núver­andi starfs­manna Fiski­stofu, sem fram koma í bréfi hans 13. maí sl. Starfs­menn Fiski­stofu ætla jafn­framt með öllum ráðum að koma í veg fyrir að farið verði gegn fyr­ir­heitum ráð­herra, með þrýst­ingi eða snið­göngu, um að núver­andi starfs­menn stofn­un­ar­innar hafi val um starfs­stöð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár