Mynd: Birgir Þór Harðarson

Rúmlega 600 milljónir króna í eftirlaun til ráðherra og þingmanna í fyrra

Árið 2003 voru umdeild eft­ir­launa­lög sett sem tryggðu þing­mönnum og ráð­herrum mun betri líf­eyr­is­greiðslur en öðrum lands­mönnum. Þau voru afnumin 2009 en 203 fyrr­ver­andi þing­menn og ráð­herra njóta sér­kjara þeirra þó ennþá.

Á árinu 2019 fengu alls 193 fyrr­ver­andi þing­menn eða vara­þing­menn greidd eft­ir­laun upp á sam­tals 478,3 millj­ónir króna í sam­ræmi við umdeild eft­ir­launa­lög sem sett voru árið 2003, en afnumin vorið 2009. Auk þess fengu 40 fyrr­ver­andi ráð­herrar greitt sam­kvæmt lög­unum, en greiðslur til þeirra námu sam­tals 129,3 millj­ónum króna. Samtals námu því líf­eyr­is­greiðslur til þess hóps fyrr­ver­andi ráða­manna 607,6 millj­ónum króna, sem er nán­ast sama krónu­tala og greidd var til hans á árinu 2018.

Þetta kemur fram í upp­lýs­ingum sem Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins (LSR) tók saman fyrir Kjarnann.

Þar kemur einnig fram að eng­inn fyrr­ver­andi þing­maður greiði iðgjald til sjóðs­ins af föstu starfi á vegum rík­is­ins eða stofn­ana þess. Einn fyrr­ver­andi þing­menn hafi þó nýverið greitt iðgjald til sjóðs­ins af launum fyrir til­fallandi verk­efni eða nefnd­ar­störf.

Enginn fyrr­ver­andi ráð­herra greiddi iðgjald af föstu starfi á vegum rík­is­ins eða stofn­ana þess í fyrra, en á árinu 2018 gerði einn slíkur það.

Á meðal þeirra sem hafa fengið eft­ir­laun er Davíð Oddsson, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, þrátt fyrir að hann sé enn í fullu starfi sem rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins. Þegar Davíð fór í for­seta­fram­boð árið 2016 var hann spurður um eft­ir­launa­greiðslur sínar og sagði þá í mynd­bandi sem fram­boð hans útbjó að hann fengi 80 pró­sent af launum for­sæt­is­ráð­herra, sem eru rúmar tvær millj­ónir króna, í eft­ir­laun. Því eru eft­ir­laun Davíðs, sam­kvæmt því, rúm­lega 1,6 millj­ónir króna á mán­uði. Hann fær einnig eft­ir­laun vegna starfa sinna sem seðla­banka­stjóri eftir að hann hætti á þingi, en þær greiðslur eru um 70 þús­und krónur á mán­uði eftir skatta.

Heild­ar­laun Davíðs voru um 5,3 millj­ónir króna á mán­uði á árinu 2018, sam­kvæmt síð­asta tekju­blaði Frjálsrar versl­unar og voru heild­ar­tekjur hans þær lang­hæstu á árinu meðal fjöl­miðla­fólks á Ísland­i í fyrr. Inni­falið í þeim launum eru ofan­greindar eft­ir­launa­greiðslur.

Umdeild lög sem afnumin voru eftir bankahrun

Greiðsl­urnar sem raktar eru hér að ofan eru, líkt og áður sagði, sam­kvæmt rétt­indum sem áunnin voru vegna laga sem sam­þykkt voru árið 2003 um eft­ir­laun for­seta Íslands, ráð­herra, alþing­is­manna og hæsta­rétt­ar­dóm­ara eða eldri laga um líf­eyr­is­sjóði alþing­is­manna og ráð­herra.

Lög­in, sem voru afar umdeild og juku eft­ir­launa­rétt­indi þing­manna og ráð­herra stór­kost­lega, voru afnumin með lögum 25. apríl 2009. Því er starf­andi þing­maður eða ráð­herra ekki lengur að vinna sér inn rétt­indi sam­kvæmt gömlu og umdeildu eft­ir­launa­lög­un­um.

Í dag greiða þing­menn og ráð­herrar ein­fald­lega í A-deild LSR og ávinna sér þar sams­konar rétt­indi og allir aðrir sjóðs­fé­lagar.

Þeir sem höfðu áunnið sér rétt til töku líf­eyris áður en eft­ir­launa­lögin voru afnumin halda þó sínum áunnu rétt­ind­um. Það á við um alla þing­menn og ráð­herra sem greiddu iðgjöld sam­kvæmt lög­unum frá því að þau tóku gildi 2003 og þangað til að þau voru afnumin skömmu eftir banka­hrunið.

Fjöldi þeirra fyrrum þing­­manna eða vara­­þing­­manna sem þiggja eft­ir­­laun sam­kvæmt lög­unum frá 2003 fjölg­aði tölu­vert ár frá ári eftir að lögin voru sam­þykkt. Árið 2007 voru þeir 129 tals­ins og voru orðnir 218 árið 2013.

Árið 2018 voru þeir 189 alls en fjölg­aði aftur í fyrra þegar þeir voru 193.

Ráð­herrar sem fengu greidd eft­ir­laun sam­kvæmt lög­unum voru 35 árið 2007 og voru orðnir 49 árið 2013. Í fyrra voru þeir hins vegar 40 tals­ins.

Rýmri eftirlaunaréttur vegna þess að það var erfitt að fá vinnu

Frum­varpið umdeilda varð að lögum í des­em­ber 2003. Fyrir utan að það fæli í sér mun rýmri eft­ir­­launa­rétt­indi fyrir for­­seta Íslands, ráð­herra, þing­­menn og hæsta­rétt­ar­dóm­ara en tíð­k­að­ist almennt þá var einnig kveðið á um það að fyrr­ver­andi ráð­herrar sem höfðu setið lengi gætu farið á eft­ir­laun við 55 ára ald­ur.

Flutn­ings­­menn frum­varps­ins voru upp­­haf­­lega úr öllum stjórn­­­mála­­flokkum sem þá sátu á Alþingi. Eftir að inn­i­hald þess komst í umræð­una sner­ist hluti flutn­ings­­manna gegn því. Hall­­dór Blöndal mælti fyrir frum­varp­inu, en hann hafði lengi verið þing­­maður og ráð­herra Sjálf­­stæð­is­­flokks­ins.

Í grein­ar­gerð frum­varps­ins sagði að skýr­ing þess að umræddur hópur ráða­manna ætti að fá rýmri eft­ir­launa­rétt en aðrir væri sú að þetta væru æðstu opin­beru emb­ætti og störf í þjóð­fé­lag­inu og vanda­söm eftir því. „For­seti Íslands og alþing­is­menn þiggja umboð sitt til starfa beint frá þjóð­inni í almennum kosn­ingum og sækja end­ur­nýjun þess á a.m.k. fjög­urra ára fresti. Sama gildir í raun og veru um ráð­herra. Það er því lýð­ræð­is­leg nauð­syn að svo sé búið að þessum emb­ættum og störfum að það hvetji til þátt­töku í stjórn­málum og að þeir sem verja meg­in­hluta starfsævi sinnar til stjórn­mála­starfa á opin­berum vett­vangi og gegna þar trún­að­ar- og for­ustu­störfum geti dregið sig í hlé og vikið fyrir yngra fólki án þess að hætta fjár­hags­legri afkomu sinn­i.“

Þá sagði einnig að það væri mik­ils­vert í lýð­ræð­is­þjóð­fé­lagi að ungt efn­is­fólk gæfi kost á sér til stjórn­mála­starfa og þyrfti ekki að tefla hag sínum í tví­sýnu með því þótt um tíma byð­ust betur launuð störf á vinnu­mark­aði. „Svo virð­ist sem starfs­tími manna í stjórn­málum sé að stytt­ast eftir því sem sam­fé­lagið verður opn­ara og marg­þætt­ara og fjöl­miðlun meiri og skarp­ari. Við því er eðli­legt að bregð­ast, m.a. með því gera þeim sem lengi hafa verið í for­ustu­störfum í stjórn­málum kleift að hverfa af vett­vangi með sæmi­lega örugga afkomu og án þess að þeir þurfi að leita nýrra starfa seint á starfsæv­inn­i.“

Stjórnarþingmenn auk eins annars tryggðu málinu framgang

Allir þing­­menn Sjálf­­stæð­is­­flokks og Fram­­sókn­­ar­­flokks, sem mynd­uðu rík­­is­­stjórn þess tíma, greiddu atkvæði með frum­varp­inu. Aðrir greiddu ýmist atkvæði á móti eða sátu hjá, nema Guð­­mundur Árni Stef­áns­­son, þá þing­­maður Sam­­fylk­ing­­ar­inn­­ar, en hann var einn flutn­ings­­manna frum­varps­ins. Guð­­mundur Árni greiddi atkvæði með því að frum­varpið yrði að lög­­­um.

Í des­em­ber 2008, fimm árum og einum degi eftir að eft­ir­­launa­lögin voru sam­­þykkt, breytti Alþingi þeim og hækk­­aði meðal ann­­ars lág­­marks­aldur við eft­ir­­launa­­töku úr 55 árum í 60.

Áunnin rétt­indi stóðu hins vegar eftir óskert og því ljóst að margir fyrrum for­víg­is­­menn stjórn­­­mál­anna hafi náð að safna tölu­verðum rétt­indum á meðan að lögin voru í gildi. Lögin umdeildu voru loks afnumin vorið 2009 hvað varðar þing­­menn og ráð­herra þó kafl­­arnir um hæsta­rétt­­ar­­dóm­­ara og for­­seta hafi verið látnir halda sér. Málið var á meðal þeirra sem röt­uðu í verk­efna­skrá minni­hluta­stjórnar Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna, sem var varin af Fram­sókn­ar­flokkn­um, og sat frá byrjun febr­úar 2009 og fram að kosn­ingum í apríl sama ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið undanfarið ár