Fyrri einkavæðing bankanna: Kapphlaupið um kennitölurnar

Síðari einka­væð­ing rík­is­banka hófst í fyrra, þegar byrjað var að selja hluti í Íslands­banka. Því ferli var svo haldið áfram í mars þegar umdeilt lokað útboð fór fram. Síðasta einka­væð­ing fjár­mála­fyr­ir­tækja í rík­i­s­eigu hófst skömmu fyrir ald­ar­mót.

Í byrjun árs 1997 var íslenska fjár­mála­kerfið meira og minna í eigu íslenska rík­is­ins. Þá um vorið voru sett lög um stofnun hluta­fé­laga um rík­is­bank­ana Lands­banka Íslands og Bún­að­ar­banka Íslands. Í kjöl­farið hófst breyt­inga­skeið á fjár­mála­kerf­inu.

Í lög­unum var mælt fyrir um að við stofnun hluta­fé­lag­anna skyldi allt hlutafé vera í eigu rík­is­sjóðs og sala á hlutafé rík­is­sjóðs var óheimil án sam­þykkis Alþingis. Ráðherra fékk þó vald til að heim­ila útboð á nýju hlutafé til að styrkja eig­in­fjár­stöðu bank­anna, ef þörf var talin á. Sam­an­lagður eign­ar­hlutur ann­arra aðila en rík­is­sjóðs mátti ekki verða hærri en 35 pró­sent af heild­ar­fjár­hæð hluta­fjár í hvorum bank­anna um sig.

FBA varð til og svo seldur

Á svip­uðum tíma, á vor­mán­uðum 1997, voru sett lög um stofnun Fjár­fest­ing­ar­banka atvinnu­lífs­ins hf. (FBA). Bankinn var mik­il­vægur lán­veit­andi í íslensku atvinnu­lífi strax frá stofnun þar sem hann tók við hlut­verki sjóða sem stutt höfðu við atvinnu­lífið.

Í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis um aðdrag­anda og orsakir falls íslensku bank­anna, sem kom út í apríl 2010, segir: „Hinn 1. jan­úar 1998 tók bank­inn við öllum eignum, skuldum og skuld­bind­ingum Fisk­veiða­sjóðs Íslands, Iðn­lána­sjóðs, Útflutn­ings­lána­sjóðs og Iðn­þró­un­ar­sjóðs, öðrum en þeim sem ráð­stafað var með öðrum hætti sam­kvæmt lögum um Nýsköp­un­ar­sjóð atvinnu­lífs­ins. Rík­is­sjóður var eig­andi alls hluta­fjár í bank­anum við stofnun hans en heim­ilt var sam­kvæmt 6. gr. að selja allt að 49 pró­sent hluta­fjár­ins og skyldu iðn­að­ar­ráð­herra og sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra þegar eftir gild­is­töku lag­anna hefja und­ir­bún­ing að sölu hluta­fjár.“ Þetta var mikil breyt­ing á íslensku fjár­mála­kerfi frá því sem áður var.

Bjarni Ármanns­son, þá korn­ungur stjórn­andi Kaup­þings, var ráð­inn í banka­stjóra­stól­inn.

Um níu mán­uðum síðar var kom­inn skriður á sölu­ferli rík­is­bank­anna. Þann 28. ágúst 1998 sam­þykkti rík­is­stjórnin stefnu­mótun um sölu hluta­fjár í bönk­unum þremur. Skömmu síðar sama ár var heim­ildin í lögum til útboðs á nýju hlutafé í Lands­bank­anum og Bún­að­ar­bank­anum nýtt. Þá var boðið út nýtt hlutafé sem nam 15 pró­sentum af heild­ar­hlutafé hvors banka.

Fjöldi áskrif­enda í útboð­inu hjá Lands­bank­anum var ríf­lega tólf þús­und, sölu­and­virðið 1,7 millj­arðar króna og gengið í útboði til almenn­ings 1,90. Fjöldi áskrif­enda í útboð­inu hjá Bún­að­ar­bank­anum var rúm­lega 93 þús­und, sölu­and­virðið um einn millj­arður og gengið í útboð­inu 2,15.

Í byrjun nóv­em­ber 1998 var heim­ildin til sölu á 49 pró­sent hluta­fjár rík­is­sjóðs í FBA jafn­framt nýtt. Alls skráðu tæp­lega ell­efu þús­und ein­stak­lingar sig í útboð­inu fyrir um 18,9 millj­arða króna en útboðs­gengið var 1,4. Til sölu voru hins vegar aðeins 4,6 millj­arðar króna og því kom til skerð­ingar á hlut hvers og eins. Í til­viki FBA var starfs­mönnum gef­inn kostur á kaupum á umsömdu gengi og í kjöl­far söl­unnar voru bréf bank­anna skráð á Verð­bréfa­þingi Íslands.

Kennitölusafnanirnar

Innan ýmissa fjár­mála­fyr­ir­tækja, meðal ann­ars Kaup­þings, var sett af stað kenni­tölu­söfnun þar sem við­skipta­að­ilar sem ætl­uðu sér ekki að taka þátt í útboð­inu „lán­uðu“ fyr­ir­tækj­unum kenni­tölur sínar gegn þóknun. Með þessum hætti náði Kaupþing, og spari­sjóð­irnir sem áttu fyr­ir­tækið, að tryggja sér 22,1 pró­sent hlut í FBA. Sá hlutur var vistaður inni í nýju félagi sem fékk nafnið Scandinavian Holdings.

Eftir að Fjárfestingabanki atvinnulífsins rann saman við Íslandsbanka var nafni hans breytt í Glitnir. Sá banki, líkt og aðrir íslenskir bankar á þeim tíma, fór í mikla útrás.
Eftir að Fjár­fest­inga­banki atvinnu­lífs­ins rann saman við Íslands­banka var nafni hans breytt í Glitnir. Sá banki, líkt og aðrir íslenskir bankar á þeim tíma, fór í mikla útrás.

Þessir aðilar ætl­uðu sér þó alltaf að selja eign­ar­hlut­inn með hagn­aði og fóru að leita að hent­ugum fjár­festum. Þeir fund­ust þegar hópur kaup­enda, í gegnum Lúx­em­búrgíska félagið Orca S.A. keypti hlut­inn í byrjun ágúst 1999. Á frægum blaða­manna­fundi sem hald­inn var 13. ágúst 1999 var síðan opin­berað hverjir stóðu að Orca hópnum: þeir Jón Ásgeir Jóhann­es­son, Jón Ólafsson, Þor­steinn Már Bald­vins­son og Eyjólfur Sveins­son.

55 þúsund manns skráðu sig fyrir hlut

Á þessum tíma­punkti voru rætur að nýju íslensku banka­kerfi að verða til og ná festu. Sölu á öllum hlutum rík­is­ins í FBA lauk í nóv­em­ber 1999, þegar hópur 26 líf­eyr­is­sjóða, fyr­ir­tækja og ein­stak­linga keypti afgang hluta­fjár­ins sem eftir stóð. Gengið var frá kaup­unum á lág­marks­gengi útboðs­ins, 2,8, sem þýddi að sölu­and­virðið var 9,7 millj­arðar króna. Fjórir þeirra sem keyptu tengd­ust Orca hópnum. Hver þeirra fékk að kaupa þrjú pró­sent og því var sam­eig­in­legur hlutur Orca kom­inn upp í 40 pró­sent að lok­inni einka­væð­ingu FBA. Sá hlutur óx í 45 pró­sent skömmu síðar.

Kaupin voru að hluta til fjár­mögnuð, og í raun búin til, af Kaup­þingi. Upp­haf­lega hug­myndin á bak­við þau var enda sú að tryggja hópnum yfir­ráð yfir FBA og sam­eina bank­ann síðan Kaup­þingi. Þegar á reyndi reynd­ist sá verð­miði sem Kaupþing hengdi á sjálfan sig, um átta millj­arðar króna, mun hærri en aðrir aðilar máls voru til­búnir að sam­þykkja. Því varð ekk­ert út sam­ein­ing­unni. Kaupþing sam­ein­að­ist þess í stað Bún­að­ar­bank­anum nokkrum árum síðar eftir einka­væð­ingu hans.

Eftir að sam­ein­ing­ar­hug­myndir við Kaupþing runnu út í sand­inn fór FBA að kanna mögu­lega sam­ein­ingu við Íslands­banka, enda var vilji á meðal ráð­andi afla innan Orca-hóps­ins að eign­ast í við­skipta­banka líka. Sam­ein­ing­ar­við­ræð­urnar gengu ótrú­lega fljótt fyrir sig og til­kynn­ing var send inn á verð­bréfa­þing, und­an­fara Kaup­hall­ar­innar, um hana þann 30. mars árið 2000. Samkvæmt sam­komu­lagi myndu hlut­hafar Íslands­banka eign­ast 51 pró­sent í sam­ein­uðum banka en hlut­hafar FBA 49 pró­sent. Við þetta eign­að­ist Orca-hóp­ur­inn, í gegnum félag sem kall­að­ist FBA Holding S.A., 14,64 pró­sent hlut í sam­ein­uðum banka. Önnur félög hans áttu auk þess um fimm pró­sent eign­ar­hlut.

Orca-hóp­ur­inn hélt áfram að kaupa bréf í bank­anum fram að hlut­hafa­fundi sem hald­inn var um miðjan maí árið 2000. Þegar kom að fund­inum réð hóp­ur­inn yfir rúmum fjórð­ungi alls hluta­fjárs. Hinn sam­ein­aði banki tók svo til starfa 2. júní.

Rúmum mán­uði eftir að hlutafé rík­is­ins í FBA hafði verið selt að fullu var haldið áfram með sölu hluta­fjár rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum. Fimmtán pró­senta hlutir í Lands­bank­anum og Bún­að­ar­bank­anum voru seldir í des­em­ber 1999. Um 55 þús­und manns skráðu sig fyrir hlut í bönk­unum og sölu­and­virðið nam 5,5 millj­örðum króna. Eign­ar­hlutir rík­is­ins í bönk­unum tveimur numu 72 pró­sentum á þessum tíma og dreifð­ist afgangur hluta­fjár­ins á milli tug­þús­unda hlut­hafa.

Stóru skrefin eftir

Á árunum 2002 og 2003 lauk svo þessum hluta einka­væð­ing­ar­ferl­is­ins með sölu á kjöl­festu­eign­ar­hlutum í Lands­bank­anum og Bún­að­ar­bank­anum. Samson ehf., félag Björg­ólfs­feðga, Björg­ólfs Guð­munds­sonar og Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar, og Magnús Þor­steins­sonar, keypti 45,8 pró­senta hlut í Lands­bank­anum skömmu fyrir ára­mótin 2002-2003. Kaup­verðið var 12,3 millj­arðar króna. Lands­bank­inn var þá nán­ast að fullu kom­inn í eigu einka­að­ila.

Sömu sögu var að segja um Bún­að­ar­bank­ann. S-hóp­ur­inn svo­nefndi keypti 45,8 pró­senta hlut í honum og greiddi fyrir það 11,9 millj­arða króna. Hópurinn sam­an­stóð af Eglu ehf., Eign­ar­halds­fé­lag­inu Sam­vinnu­trygg­ingum, Sam­vinnu­líf­eyr­is­sjóðnum og Vátrygg­inga­fé­lagi Íslands (VÍS). Um þá einka­væð­ingu verður fjallað í næstu hlutum umfjöll­unar Kjarnans um fyrri einka­væð­ingu íslensks banka­kerfis.

Upp úr þessum þremur stoðum í íslenska fjár­mála­geir­anum – FBA, Lands­bank­anum og Bún­að­ar­bank­anum – urðu til turn­arnir þrír, Glitnir, Kaupþing og Lands­bank­inn, sem hrundu til grunna um ára­tug eftir að einka­væð­ing­ar­ferli fjár­mála­kerf­is­ins hófst fyrir alvöru, þótt stærstu skrefin hafi verið stigin á síð­ari hluta árs­ins 2002. Sam­ein­aður banki Íslands­banka og FBA varð að Glitni og sam­ein­aður banki Bún­að­ar­bank­ans og Kaup­þings hóf að starfa undir merkjum Kaup­þings.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár