Íslendingar geta leitað heilbrigðisþjónustu til Evrópu

Frá 1. júní munu Íslend­ingar geta leitað heil­brigð­is­þjón­ustu í öðrum Evr­ópu­ríkjum. Því verða þó settar skorður, vegna áhyggja heil­brigð­is­starfs­fólks.

Íslend­ingar munu geta leitað til Evrópu eftir heil­brigð­is­þjón­ustu frá og með fyrsta júní næst­kom­andi. Þá taka gildi breyt­ingar á lögum um sjúkra­trygg­ingar í sam­ræmi við EES-reglur sem kveða á um heil­brigð­is­þjón­ustu yfir landa­mæri, og um við­ur­kenn­ingu á lyf­seðlum milli landa.

Meg­in­reglan verður sú að þeir sem eru sjúkra­tryggðir í einu EES-ríki geti sótt sér heil­brigð­is­þjón­ustu í öðru EES-ríki og fengið end­ur­greiddan kostnað af þjón­ust­unni eins og þjón­ustan hefði verið veitt inn­an­lands.

Ráðherra ræður hvenær leita þarf samþykkis fyrirfram

Upp­haf­lega stóð til að fólk þyrfti ekki að leita sam­þykkis hjá heil­brigð­is­yf­ir­völdum áður en farið væri til útlanda eftir þjón­ustu, en ákveðið var eftir athuga­semdir úr heil­brigð­is­kerf­inu að það yrði á valdi ráð­herra að ákveða í hvaða til­fellum fyr­ir­fram­sam­þykkis verður kraf­ist. Land­læknir hafði lýst yfir áhyggjum af því að hafa ekki sam­þykki fyr­ir­fram eins og staðan er í íslensku heil­brigð­is­kerfi nú. Það sé mik­il­vægt að for­gangs­raða pen­ingum í heil­brigð­is­þjón­ustu og með því að leyfa fólki óhindrað að fara erlendis skapi það hættu á að pen­ingar verði settir í heil­brigð­is­þjón­ustu sem ekki sé þörf á að setja í for­gang.

Hins vegar var ákveðið við með­ferð máls­ins að heim­ila Sjúkra­trygg­ingum að neita end­ur­greiðslu kostn­aðar vegna heil­brigð­is­þjón­ustu í öðrum löndum, ef hægt er að veita þjón­ust­una hér á landi innan tíma­marka sem má rétt­læta lækn­is­fræði­lega, það er miðað við heilsu­fars­á­stand sjúk­linga og lík­lega fram­vindu veik­inda þeirra. Þetta var gert vegna athuga­semda frá Land­lækni og Land­spít­al­anum, sem bentu á að vegna fámennis á Íslandi væri hætti á því að fram­boð heil­brigð­is­þjón­ustu myndi minnka á Íslandi ef fólk færi í auknum mæli til útlanda til að fá þjón­ustu. Þá væri það líka nauð­syn­legt að hafa ákveð­inn lág­marks­fjölda sjúk­linga til að við­halda fjár­fest­ingum í tækjum, bún­aði og mann­skap í heil­brigð­is­kerf­inu. Ef fram­boð á Íslandi minnk­aði myndi það ógna öryggi sjúk­linga á Íslandi.

Áhyggjur af landflótta sjúklingum

Flestir umsagn­ar­að­ilar um málið voru jákvæðir gagn­vart því að Íslend­ingar geti sótt sér þjón­ustu erlendis með auð­veld­ari hætti, en vildu tryggja að íslenskt heil­brigð­is­kerfi verði sett í for­gang.

Land­lækn­is­emb­ættið hvatti í sinni umsögn um málið til þess að stjórn­völd myndu frekar setja fjár­magn í að stytta biðlista eftir aðgerðum hér á landi en að veita fé til heil­brigð­is­þjón­ustu í öðrum löndum. Það þurfi að kapp­kosta að standa vörð um og efla heil­brigð­is­kerfið á Íslandi, enda sé þar þekk­ing, sér­hæf­ing og þjálfun fyrir hendi til að veita Íslend­ingum þá þjón­ustu sem þeir þurfa. 

Sjúkra­trygg­ingar Íslands bentu á það að stjórn­völd ættu að skoða magnsamn­inga sína við heil­brigð­is­kerfið, og ein­beita sér að því að fækka á biðlistum sem séu orðnir mjög langir eftir sumum aðgerðum. Eitt dæmi um það eru auga­steins­að­gerðir, sem fólk bíður mjög lengi eftir þrátt fyrir að læknar geti vel gert fleiri aðgerðir á ári. Hægt er að gera slíkar aðgerðir á einka­stofum, en það væri „mjög sér­stakt ef sjúk­lingar gætu leitað til útlanda og fengið end­ur­greiðslu á kostn­að­inum en ekki ef þeir leit­uðu til lækna hér á landi.“

Land­læknir lagði einnig til að stjórn­völd veittu pen­ingum í að stytta biðlista á Íslandi. „Heil­brigð­is­kerfið hefur gengið í gegnum erf­ið­leika sem tengj­ast efna­hags­hrun­inu og einnig verk­föllum ýmissa heil­brigð­is­stétta sem stóðu yfir í heilt ár með hléum. Rekja má leng­ingu biðlista eftir ýmsum skurð­að­gerðum m.a. til þess­ara þátta,“ segir land­lækn­is­emb­ættið, sem hefur sett við­mið um að bið­tími eftir aðgerðum og annarri til­tek­inni þjón­ustu eigi ekki að vera meira en 90 dagar. Hins vegar eru nú á biðlistum tæp­lega 5.000 manns sem hafi beðið lengur en 90 daga eftir aðgerðum. „Leiða má líkum að því að ein­hverjir þess­ara ein­stak­linga sem bíða munu kjósa að fara erlendis ef biðin er styttri þar.“ 

Sjúklingar vilja vera á Íslandi

Lækna­fé­lag Íslands tók í sama streng og Land­lækn­is­emb­ættið og vildi að settar verði for­gangs­reglur og íslensk heil­brigð­is­þjón­usta efld til þess að draga úr líkum á því að sjúk­lingar þurfi að leita til ann­arra landa eftir heil­brigð­is­þjón­ustu. „Það getur verið sjúk­lingum mik­il­vægt að greitt sé fyrir aðgengi að öruggri hágæða­heil­brigð­is­þjón­ustu yfir landa­mæri, tryggja frjálst flæði sjúk­linga innan EES og stuðla að sam­vinnu um heil­brigð­is­þjón­ustu. LÍ telur þó að sjúk­lingum sé mik­il­væg­ast að eiga greiðan aðgang að slíkri þjón­ustu hér á landi. LÍ full­yrðir að það sé vilji flestra sjúk­linga njóta öruggrar hágæða­heil­brigð­is­þjón­ustu á íslandi.“

Undir það tók land­læknir einnig, og vís­aði í kann­anir sem hafi verið gerðar meðal sjúk­linga sem sýni fram á að þeir kjósi miklu frekar að fá þjón­ustu á Íslandi en ann­ars staðar. Það sé líka óhag­ræði og fylgi auk­inn kostn­aður að þurfa að fara erlendis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár