Eftirspurn eftir vatni verður 40% meiri en framboð árið 2030

Það lands­lag sem birt­ist í kvik­mynd­inni Mad Max: Fury Road, sem frum­sýnd var á Cannes-hátíð­inni á fimmtu­dag, er lands­lag fram­tíð­ar­innar ef við aðhöf­umst ekki vegna hnatt­rænnar hlýn­unnar. Þetta lét suður-afríska leik­konan Charlize Theron hafa eftir sér á frum­sýn­ing­ar­há­t­inni.

Myndin á að ger­ast eftir 45 ár, eftir atburð sem ætti að hafa bundið enda á jarð­líf manns­ins. Þarna stjórna grimmir alvalda kóngar öllu vatni sem er af skornum skammti, hneppa menn í þræl­dóm og fang­elsa konur. Sögu­sviðið er sandur, ekki sting­andi strá vex úr jörð­inni.

„Ég upp­lifði þetta sem byggt á raun­veru­leik­anum,“ sagði Theron. „Hug­myndin um hnatt­væð­ing­una, hlýnun jarðar, þurrka og raun­veru­legt virði vatns, þar sem stjórn­völd fara langt framúr sér.“

„Ég velti fyrir mér hvort þetta væri ekki svo­lítið lang­sótt, þessir sand­stormar, en átt­aði mig á að svona er raun­veru­leik­inn. Það eru myndir á Google sem sýna sand­storma í Sahara, og all­staðar í Afríku. Það er ógn­vekj­andi og það er enn meira ógn­vekj­andi að hugsa til þess að þetta er ekki fjar­læg fram­tíð ef við grípum ekki til aðgerða,“ sagði leik­konan.

Theron gæti hafa hitt naglan á höf­uðið þarna því þurrkar eru þegar farnir að hafa áhrif á jarð­vist fólks, ekki bara í Afríku. Þurrk­arnir sem ríkja á vest­ur­strönd Banda­ríkj­anna hafa orðið til þess að umræða um lofts­lags­breyt­ingar og hlýnun jarðar hefur kom­ist í almenn­ari umræðu, einkum vest­an­hafs.

Vís­inda­menn hafa til dæmis reiknað það út að ef vatns­notkun í heim­inum verður áfram sú sama miðað við aukna fólks­fjölgun mun eft­ir­spurn eftir vatni verða 40 pró­sent meiri en fram­boðið árið 2030. Það er eftir 15 ár. Mad Max á að ger­ast 30 árum síðar og það má rétt ímynda sér hvernig ástandið verður þá.

Of seint í rassinn gripið í Kaliforníu?

Eins og Kjarninn

greindi meðal ann­ars frá

í apríl eru þurrk­arnir í Kali­forn­íu­ríki orðnir að miklu vanda­máli. Rík­is­stjórnin er farin að skammta vatni enda er ráð­gert að vatns­bólin verði þurrausin strax á næsta ári. Til vara reiða íbúar sig á grunn­vatn sem fer þó jafn­framt þverr­andi.

Íbúar Kali­forníu eru því farnir að finna fyrir áhrifum hnatt­rænnar hlýn­unnar. Verð á vatni hefur til að mynda aldrei verið jafn hátt í rík­inu og uppi­stöðu­lón eins og Lake Oroville, sem venju­lega er iðandi af sprikk­landi fiski, eru ekki fyllt lengur til að bæta vatns­stöð­una. Oroville-virkjun, næst stærsta raf­orku­virkjun í Kali­forníu, fram­leiðir lítið raf­magn á meðan.

[caption width="1024" align="alignnone"] Brúin yfir Fether-á í Kali­forníu stendur nú yfir gil­inu þar sem áður var gríðar stórt uppi­stöðu­lón fyrir Oroville-virkjun.[/caption]

Í byrjun árs til­kynntu umsjón­ar­menn vatns­linda alrík­is­ins að vatni verði ekki lengur skammtað til land­bún­aðar í Central Valley, annað árið í röð. Svæðið í Central Valley var talið eitt mik­il­væg­asta land­bún­að­ar­svæði í Banda­ríkj­unum en er nú ónot­hæft rækt­ar­land. Almenn­ingur upp­lifir tak­mark­anir á vatns­notkunn þannig að þeir til dæmis mega ekki vökva garð­inn sinn, nema undir vissum kring­um­stæðum.

Annar staðar í Banda­ríkj­unum fylgj­ast stjórn­völd með vatns­bólum sínum. Í Nevada, Kali­forníu, Arizona, Utah og Colorado er allt afl lagt í að finna nýjar leiðir til að nýta og fram­leiða vatn, til að leysa þá krísu sem óum­flýj­an­lega verður með auk­inni fólks­fjölgun og meiri vatns­notkunn á hverju ári.

Illa farið með gott vatn

Í Banda­ríkj­unum hefur verið bent á að þar sem vatn er af skornum skammti virð­ist því vera furðu­lega deilt. 80 pró­sent af vatni í Kali­forníu hefur til dæmis verið notað til land­bún­aðar. Til að und­ir­strika hversu mikið vatn „fer til spillis“ í land­bún­aði má benda á að til að fram­leiða líf­elds­neyti, sem yfir­leitt er fram­leitt úr korni, þarf 100 lítra af vatni til að fram­leiða einn lítra af elds­neyti.

Samkvæmt könnun á vatns­notkun almenn­ings kemur í ljós að fólk drekkur eitt pró­sent þess krana­vatns sem dælt er inn á heim­ili. Restin fer í að sturta niður í kló­settum, böð og þvotta.

Singapúr er það land sem helst er litið til þegar hugað er að betri leiðum til að nýta vatn og fram­leiða drykkj­ar­hæft vatn. Þar í landi var það neyðin sem fékk fólk til að hugsa vatns­notkun sína upp á nýtt. Nýtt vatns­kerfi, sem fólst í því að fá fólk til að vera umhug­aðra um vatns­notkun sína, hefur sparað um 10 pró­sent af vatns­notkun á dag. Þetta hefur jafn­framt alið af sér meiri áhuga á vatni og nú starfa þar um 130 fyr­ir­tæki í vatns­iðn­aði og 26 rann­sókn­ar­setur rann­saka vatns­notkun á ein­hvern hátt.

[caption width="1024" align="alignnone"] Vatns­kerfið í Singapúr er umfangs­mikið og flókið en það sinnir um 30 pró­sent af vatns­þörf íbúa þar. Mynd: EPA[/caption]

Hluti af þeirri lausn sem sett var upp í Singapúr var að safna regn­vatni í þétt­býli sem rennur svo til hreins­un­ar­stöðva í flóknu neti röra, affalla, skurða og lóna. Í þessu kerfi hefur tek­ist að safna allt að 90 pró­sent regn­vatns sem fellur innan borg­ar­innar, sem leggur til um 30 pró­sent af vatns­fram­boði lands­ins.

Vatn er for­senda lífs­ins því ef við hefðum ekki vatn gætum við auð­vitað ekki lifað. Sá vandi sem plagað hefur stór land­svæði í Afríku er nú að gera vart við sig á þétt­býlum svæðum á vest­ur­löndum og hefur vakið mikla athygli. Og það er einmitt það sem vanda­mál þurfa svo úr þeim megi leysa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár