Borgin ræðst í aðgerðir: leggur af verkefni og vill tekjur af ferðamönnum

Reykja­vík­ur­borg mun leggja af verk­efni sem ekki eru tekju­skap­andi, draga úr aðkeyptri ráð­gjöf, vinna gegn svartri atvinnu­starf­semi og sækja leið­rétt­ingar í rík­is­sjóð vegna van­fjár­mögn­unar á ýmsum mála­flokkum. Þetta er meðal þess sem kemur fram í viða­mik­illi aðgerða­á­ætlun í fjár­málum, sem borg­ar­ráð sam­þykkti á fundi sínum í morgun, til þess að draga úr rekstr­ar­halla hjá borg­inni.

Rúmlega þriggja millj­arða króna halli varð á rekstri A-hluta borg­ar­sjóðs á fyrri hluta árs­ins, sem er 1,2 millj­arði verri nið­ur­staða en áætl­anir höfðu gert ráð fyrir. Borgin hefur nú sam­þykkt þessa aðgerða­á­ætlun í sex liðum sem er afrakstur vinnu borg­ar­ráðs und­an­farið.

Samstaða var um aðgerð­irnar, en meðal ann­ars munu verða teknar upp við­ræður við ríkið um að gistin­átta­gjöld renni til sveit­ar­fé­laga og að þau fái hlut­deild í virð­is­auka­skatti af ferða­þjón­ustu, inn­flutn­ings­gjöldum af bíla­leigu­bílum og fjár­magnstekju­skatti af leigu­tekjum. Þá ætlar borgin að taka upp gjald­skyldu í rútu­stæði.

Borgin ætlar að sækja leið­rétt­ingar vegna þess sem hún kallar van­fjár­mögnun á mála­flokki fatl­aðs fólks, hjúkr­un­ar­heim­ila og tón­list­ar­skóla. Þá hyggst borgin fylgja sér­stak­lega eftir nið­ur­stöðum sex og níu mán­aða upp­gjöra til að draga úr halla sem flyst á milli ára. Borg­ar­stjóri á að leggja fram end­ur­skoð­aða áætlun um lóða- og eigna­sölu og beina því til allra sviða að leggja af eða hægja á verk­efnum sem er ekki hægt að hag­ræða á móti eða eru ekki tekju­skap­andi. Þá eiga allir sviðs­sjórar að gera grein fyrir aðgerðum sem komi í veg fyrir fram­úr­keyrslu úr fjár­heim­ildum.

Borg­ar­ráð ætlar líka að leggja fram grein­ar­gerð um líf­eyr­is­skuld­bind­ingar og þróun þeirra í ljósi nýgerðra kjara­samn­inga, breyt­inga á lífaldri og stöðu Líf­eyr­is­sjóðs starfs­manna Reykja­vík­ur­borgar og Líf­eyr­is­sjóðs starfs­manna sveit­ar­fé­laga.

Borgin ætlar líka að funda áfram um frek­ari aðgerðir.

Mikið tap af rekstri A-hluta


Tap af rekstri A-hluta borg­ar­innar nam 3.038 millj­óum króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins, en áætl­anir gerðu ráð fyrir að hún yrði nei­kvæð um 1.865 millj­ónir á tíma­bil­inu. Til A- hluta tekst starf­semi sem að hluta eða öllu leyti er fjár­mögnuð með skatt­tekjum. Verri afkoma er eins og fyrr greinir rakin til læk­gri tekna af sölu bygg­ing­ar­réttar og sölu fast­eigna, sem var 552 millj­ónum króna undir áætlun, og hækkun launa­kostn­aðar umfram áætlun um 403 millj­ónir króna.

Heild­ar­eignir sam­stæðu Reykja­vík­ur­borgar, það eru A og B hlutar, námu í lok júní sam­tals 513.207 millj­ónum króna. Heild­ar­skuldir ásamt skuld­bind­ingum námu 282.812 millj­ónum króna og eigið fé var 220.395 millj­ónir króna. Eig­in­fjár­hlut­fall er 42,9 pró­sent en var 41, pró­sent um síð­ustu ára­mót.

Til B-hluta telj­ast fjár­hags­lega sjálf­stæð fyr­ir­tæki sem að hálfu eða meiri­hluta eru í eigu borg­ar­innar, en rekstur þeirra er að stofni til fjár­magn­aður með þjón­ustu­tekjum. Fyr­ir­tækin eru: Faxa­flóa­hafnir sf., Félags­bú­staðir hf., Íþrótta- og sýn­inga­höllin hf., Mal­bik­un­ar­stöðin Höfði hf., Orku­veita Reykja­víkur, Slökkvi­lið höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins bs., Sorpa bs. og Strætó bs, auk Aflvaka hf og Jörundar ehf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár