Lífeyriseign landsmanna rúmlega sex þúsund milljarðar

Líf­eyr­is­sparn­aður lands­manna jókst um 773 millj­arða króna á síð­asta ári þrátt fyrir óvissu á fjár­mála­mörk­uðum. Hlutfall erlendra gjald­miðla af heild­ar­eignum sam­trygg­ing­ar­deilda hefur aldrei verið hærra.

Samkvæmt tölum frá Seðlabanka Íslands er lífeyriseign landsmanna á við tvöfalda landsframleiðslu.
Samkvæmt tölum frá Seðla­banka Íslands er líf­eyr­is­eign lands­manna á við tvö­falda lands­fram­leiðslu. Mynd: Seðlabanki Íslands.

Líf­eyr­is­sparn­aður lands­manna nam um 6.050 millj­örðum við lok síð­asta árs. Þetta kemur fram í nýjum tölum Fjár­mála­eft­ir­lits Seðla­banka Íslands um heild­ar­eignir sam­trygg­ingar- og sér­eigna­sparn­aðar. Í sam­an­tekt bank­ans um gögnin kemur fram að líf­eyr­is­sparn­aður lands­manna hafi auk­ist um 773 millj­arða króna á síð­asta ári, „þrátt fyrir erf­ið­leika og óvissu á fjár­mála­mörk­uðum vegna heims­far­ald­urs COVID-19.“ Þessi aukn­ing er til­komin bæði vegna ávöxt­unar og inn­greiðslna.

Í sam­an­tekt­inni er líf­eyr­is­eign lands­manna sett í sam­hengi við lands­fram­leiðslu síð­asta árs en sam­kvæmt nýlegri áætlun frá Hag­stof­unni var lands­fram­leiðsla tæpir þrjú þús­und millj­arðar á síð­asta ári. Líf­eyr­is­eignir lands­manna jafn­gilda því tvö­faldri lands­fram­leiðslu.

Eignir í sam­trygg­ing­ar­deildum líf­eyr­is­sjóða voru 5.119 millj­arðar við árs­lok í fyrra en eignir í sér­eigna­deildum sjóð­anna nam 595 millj­örðum. Eignir hjá inn­lendum vörslu­að­ilum sér­eigna­sparn­aðar nam 247 millj­örðum. Þá er áætlað að 100 millj­arðar til við­bótar séu hjá erlendum aðilum sem bjóða sér­eigna­sparnað.

Rúmlega tvö þúsund milljarðar í erlendum gjaldeyri

Í sam­an­tekt­inni segir að helsta breyt­ingin í eigna­flokkum á árinu hafi verið sú að eignir í erlendum gjald­miðlum juk­ust um 426 millj­arða króna eða um 25 pró­sent. Hlut­deild erlendra gjald­miðla í eigna­söfnum líf­eyr­is­sjóða var rúm­lega 35 pró­sent við lok síð­asta árs, eða um 2.103 millj­arðar króna. Hjá sam­trygg­ing­ar­deildum nam hlut­fallið 37 pró­sentum af heild­ar­eignum og hefur það aldrei verið hærra. Gengi krónu gagn­vart erlendum gjald­miðlum lækk­aði á síð­asta ári og spilar geng­is­breyt­ingin að ein­hverju leyti þar inn.

Heild­ar­eignir sam­trygg­ing­ar­deilda voru um 5.119 millj­arðar við lok síð­asta árs og juk­ust þær um 673 millj­arða króna sem jafn­gildir um 15 pró­senta aukn­ingu. Í áður­nefndri sam­an­tekt er farið yfir helstu breyt­ingar á eigna­flokkum sam­trygg­ing­ar­deilda. Þannig hækk­uðu eignir í hlut­deild­ar­skír­teinum verð­bréfa­sjóða um 325 millj­arða króna eða um tæp­lega 32 pró­sent. Sér­tryggð skulda­bréf í eigna­söfnum sjóð­anna juk­ust um 24 pró­sent eða um 46 millj­arða króna. Eignir í hluta­bréfum félaga juk­ust um 19 pró­sent og í skulda­bréfum félaga um 17 pró­sent, sam­tals um 135 millj­örðum króna.

Dregið hefur úr aukningu séreignar

Heild­ar­eignir sér­eigna­sparn­aðar í vörslu inn­lendra aðila námu 842 millj­örðum króna við lok síð­asta árs og juk­ust þær um tæp­lega 101 millj­arð í fyrra. Fram kemur í sam­an­tekt Seðla­bank­ans að vegna auk­inna heim­ilda til úttekta sér­eigna­sparn­aðar hefur dregið úr aukn­ingu eigna.

Líkt og hjá sam­trygg­ing­ar­deildum var mest aukn­ing eigna í hlut­deild­ar­skír­teinum verð­bréfa­sjóða en hún nam rúmum 41 millj­arði króna eða 27 pró­sentum. Mesta hækk­unin hlut­falls­lega var í eignum í skulda­bréfum og pen­inga­mark­aðs­skjölum en í þeim flokki nam hækk­unin 44 pró­sentum eða 15 millj­örðum króna. Við árs­lok var fjórð­ungur eigna sér­eigna­sparn­að­ar­er­lendur gjald­eyrir eða um 211 millj­arðar króna. Aukn­ingin í þeim flokki nam tæp­lega 44 millj­örðum á síð­asta ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár