Barist um skóna

Körfu­bolta­skór eru sér­stök vara. Þeir eru eins­konar stöðu­tákn sökum þess að þeir eru dýrir og áber­andi. Under Armour hefur gefið út sér­taka Stephen Curry-skó, rétt eins og Nike gerði Michael Jordan-skó árið 1984.

Stephen Curry reimar á sig Under Armour-skóna sem bera nafn hans.
Stephen Curry reimar á sig Under Armour-skóna sem bera nafn hans.

Körfu­bolta­skór njóta mik­illa vin­sælda í Banda­ríkj­unum þessa dag­ana, og eru miklar vin­sældir Stephen Curry að hjálpa til á mark­aðnum. Staðan minnir um margt á það þegar Michael Jordan breytti skó­mark­aðnum í Banda­ríkj­unum var­an­lega þegar hann samdi við Nike, og komu fyrstu skórnir í hans nafni, Air Jordan I, á markað fyrir 32 árum.

Stephen Curry, leik­maður Golden State Warriors í NBA-deild­inni, er ekki aðeins ein allra besta skyttan í sögu NBA, heldur er nafn hans að umbreyt­ast í eitt verð­mætasta vöru­merki Banda­ríkj­anna. Ástæðan eru fádæma vin­sældir skó­teg­undar (snea­kers) í hans nafni.

Skór fyrir 21 milljarð

Samkvæmt nýrri grein­ingu sem bank­inn Morgan Stanley sendi til við­skipta­vina sinna, er samn­ingur Curry við Under Armour-fyr­ir­tækið að marg­borga sig til baka fyrir íþrótta­vöru­fram­leið­and­ann. Talið er að árleg sala á skóm sem kenndir eru við Curry, muni selj­ast fyrir 160 millj­ónir Banda­ríkja­dala á þessu ári, sé miðað við vind­sæld­irnar um þessar mundir. Það er upp­hæð sem nemur um 21 millj­arði króna. Næstur á eftir honum kemur LeBron James, með áætl­aða sölu upp á 150 millj­ónir Banda­ríkja­dala, og þar á eftir Kevin Durant, með 82 millj­ónir Banda­ríkja­dala. Þeir tveir síð­ar­nefndu eru báðir á samn­ingi hjá Nike.

Ljósi punkturinn hjá Under Armour

Þrátt fyrir þessar vin­sældir hefur Under Armour verið að tapa mark­aðs­hlut­deild á íþrótta­vöru­mark­aði, í fyrsta skipti í þrjú ár, en salan á Curry-skónum er það sem helst er jákvætt í rekstr­inum, um þessar mundir. Það sem þykir sögu­legt við þessa stöðu á mark­aði er að Nike virð­ist í fyrsta skipti í meira en tvo ára­tugi, vera að missa niður for­ystu­sæti sitt á körfu­bolta­skóa­mark­aði, þar sem Under Armour ætlar sér stóra hluti í fram­tíð­inni, eins og Adidas. Að mati Morgan Stanley eru þetta áhuga­verð tíma­mót, að því er segir í umfjöllun Quartz.

Jordan setti ný viðmið

Í Banda­ríkj­unum er mikið rætt um end­ur­komu skó­æð­is­ins sem Michael Jordan var upp­hafs­maður að, með mark­aðs­sér­fræð­inga Nike að halda um þræð­ina bak við tjöldin. Fram­úr­stefnu­legt útlit fyrir Nike Air Jordan-skóna – sem hétu ein­fald­lega Nike Air Jordan I – setti þá í kast­ljósið hvar sem Jordan kom, og hvar sem þeim var stillt upp í hillum. Þeir komu fyrst í búðir fyrir um 32 árum, á árinu 1984, og urðu fljót­lega vin­sælir. Enginn gat séð fyrir að vin­sæld­irnar yrðu svo gríð­ar­legar, að engin dæmi eru um við­líka vin­sældir hjá íþrótta­manni í Banda­ríkj­unum nokkru sinni, þegar kemur að skóm. Ástæðan fyrir vin­sældum átti sér skýr­ingar. Sú sem var aug­ljósust var sú, að Michael Jordan var að umbreyt­ast í næstum óstöðv­andi leik­mann á þessum árum sem skórnir komu fyrst á markað. Athyglin var á honum, vegna snilli hans. Hin ástæðan sem nefnd hefur verið, var vel fram­kvæmd mark­aðs­her­ferð. Það gekk ein­fald­lega allt upp.

Michael Jordan í skónum sem bera nafn hans. Fyrsta útgáfa skónna var í rauðu og svörtu en sú týpa var bönnuð af NBA-deildinni því það var „of lítið af hvítum lit“ í skónum. Jordan lék samt í skónum og í hvert einasta sinn sem hann steig á völlinn í þeim var hann sektaður um 5.000 dollara. Nike framleiddi síðar rauða og hvíta týpu af skónum sem Michael Jordan spilaði í tímabilin 1985 og 1986.
Michael Jordan í skónum sem bera nafn hans. Fyrsta útgáfa skónna var í rauðu og svörtu en sú týpa var bönnuð af NBA-deild­inni því það var „of lítið af hvítum lit“ í skónum. Jordan lék samt í skónum og í hvert ein­asta sinn sem hann steig á völl­inn í þeim var hann sektaður um 5.000 doll­ara. Nike fram­leiddi síðar rauða og hvíta týpu af skónum sem Michael Jordan spil­aði í tíma­bilin 1985 og 1986.

Meira en 30 árum eftir að fyrstu skórnir sem tengdir voru Jordan nafn­inu komu á markað, fékk Michael Jordan sína lang­sam­legu stærstu greiðslu frá Nike. Árið 2015 var Jordan sá maður úr íþrótta­geir­anum – þó hann hafi verið hættur að spila fyr­iri löngu – sem þén­aði mest af öllum. Hann fékk 100 milljón Banda­ríkja­dala ein­greiðslu, um 13 millj­arða króna, í tengslum við ævin­langan samn­ing hans við Nike. Frum­hönn­unin hefur nú verið end­ur­út­gefni og njóta elstu Air Jordan skórnir mik­illa vin­sælda.

Þetta lagði grunn­inn að miklum sigrum Nike í Banda­ríkj­unum, og ýtti undir mik­inn áhuga á NBA-deild­inni um allan heim.

Það þurfa allir skó

Markaður með skó í Banda­ríkj­unum er gríð­ar­lega stór, enda skór nauð­synja­vara. Sér­stak­lega er veltan mikil hjá fólki á aldr­inum 16 til 34 ára, en árið 2014 nam heild­ar­veltan með skó hjá þessum ald­urs­hópi, 21 millj­arði Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 2.700 millj­örðum króna, sam­kvæmt umfjöllun The Washington Post. Körfu­bolta­skór eru drjúgur hluti af þess­ari veltu, eða um 15 pró­sent, og eru samn­ingar sem leik­menn gera við fyr­ir­tæki vegna skólínu í þeirra nafni, oft mun umfangs­meiri heldur en launa­samn­ingar þeirra. Eitt þykir einnig sér­stak­lega eft­ir­sókn­ar­vert við körfu­bolta­skó. Þeir eru dýrir og áber­andi, og það er ákveð­inn „status“ að ganga í þeim af þeim sökum.

Risasamningur laus á næsta ári

Adidas samdi við NBA-deild­ina árið 2006 til ell­efu ára, og varð þannig opin­bert íþrótta­vöru­merki deild­ar­innar. Samn­ing­ur­inn var risa­vax­inn, og met­inn á 400 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða sem nemur næstum 60 millj­örðum króna. Adidas hefur nú gefið út að fyr­ir­tækið hafi ekki áhuga á að end­ur­nýja samn­ing­inn. Líklegt þykir að Nike eða Under Armour sæk­ist eftir því að verða opin­bert íþrótta­vöru­merki NBA.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár