Telja um skaðlega orðræðu um kynferðisbrot að ræða

Tugir kvenna hafa skrifað undir yfir­lýs­ingu þar sem þær mót­mæla grein Stein­unnar Ólínu Þor­steins­dóttur en þær telja að greinin lýsi afar skað­legri orð­ræðu gagn­vart brota­þolum kyn­ferð­is­of­beldis.

Rúmlega átta­tíu konur hafa skrifað undir sam­eig­in­lega yfir­lýs­ingu vegna skað­legrar orð­ræðu um kyn­ferð­is­brot en til­efnið er grein eftir Stein­unni Ólínu Þor­steins­dóttur sem birt­ist á vef Frétta­blaðs­ins í gær. Anna Bentína Herman­sen er skrifuð fyrir yfir­lýs­ing­unni.

„Í grein­inni fagnar höf­undur nýföllnum dómum í málum Freyju Har­alds­dóttur og Atla Rafns Sig­urðs­sonar. Að mati grein­ar­höf­undar hafa máls­að­ilar beggja mála mætt mann­fjand­sam­legum við­horfum sem lögðu grunn­inn að þeim brotum sem þau urðu fyrir. Steinunn Ólína segir að það sé ekki síst #metoo bylt­ingin sem lagði grunn­inn að þessum við­horfum og að í kjöl­far #metoo hafi konur flykkst fram á víg­völl­inn til að bera aðra sökum án þess að þurfa að standa fyrir máli sínu,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Þær sem skrifa undir fyrr­nefnda yfir­lýs­ingu vilja bregð­ast við þessum ummælum „þar sem greinin lýsir afar skað­legri orð­ræðu gagn­vart brota­þolum kyn­ferð­is­of­beldis almennt þó að ein mann­eskja, Þórdís Elva Þor­valds­dóttir, sé tekin fyrir í grein­inni, sem „sjálf­skip­aður leið­togi brota­þola kyn­ferð­is­of­beldis”.“ Orðræða sem þessi sendi alvar­leg skila­boð út í sam­fé­lagið og hafi að engu trú­verð­ug­leika brota­þola kyn­ferð­is­of­beldis.

„Í þeim und­an­tekn­ing­ar­til­fellum þegar ger­and­inn játar að hafa beitt kyn­ferð­is­of­beldi, sem á við um reynslu Þórdísar Elvu, þá kallar grein­ar­höf­undur hann „mein­tan ger­anda“. Steinunn Ólína bætir um betur og segir brota­þola hafa „sagst” hafa orðið fyrir nauðgun, með það að mark­miði að véfengja það ofbeldi sem Þórdís Elva varð fyrir,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Margar konur hafa reynslu af kynferðisbrotum sem hvergi eru skráð í lögregluskýrslum

Þá kemur enn fremur fram í yfir­lýs­ing­unni að sam­kvæmt Stein­unni Ólínu sé Þórdís Elva haldin hefnd­ar­fýsn og drottn­un­ar­girni með því að draga ger­anda sinn til ábyrgðar sem hann hafi sjálfur geng­ist við af fúsum og frjálsum vilja.

Að þeirra mati lýsir greinin þeim við­horfum að frá­sagnir af kyn­ferð­is­of­beldi séu marklausar nema þær fari í gegnum rétt­ar­kerfið og ger­and­inn hljóti dóm fyrir brot sitt.

„Nauðgun er í eðli sínu ofbeldi þar sem drottn­un­ar­girni er í aðal­hlut­verki. Það er frekar öfug­snúið að saka brota­þola kyn­ferð­is­of­beldis um þær hvatir ef hann segir frá nauðgun fremur en ger­and­ann fyrir að hafa nauðgað.

Brota­þolar sjá slík við­horf krist­all­ast víða í sam­fé­lag­inu og #metoo bylt­ingin reis ekki síst upp gegn slíkum við­horfum. #metoo sýndi sam­fé­lag­inu hversu margar konur hafa reynslu af kyn­ferð­is­brotum sem hvergi eru skráð í lög­reglu­skýrslum,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Konur sem segja frá kynferðisofbeldi opinberlega líka tortryggðar

Þær benda hins vegar á að stað­reyndin sé sú að fjöl­margar konur sem verða fyrir kyn­ferð­is­of­beldi segja aldrei frá því opin­ber­lega og kæra ekki ger­anda/ger­endur. Ekki síst vegna þess að aðeins í und­an­tekn­ing­ar­til­fellum hljóti þær áheyrn dóm­stóla. Konur sem segja frá kyn­ferð­is­of­beldi opin­ber­lega og hafa jafn­vel kært ofbeldið séu líka tor­tryggðar, meira að segja þrátt fyrir að ger­andi þeirra hafi játað verkn­að­inn. Grein Stein­unnar Ólínu afhjúpi þann veru­leika ræki­lega.

„Sú orð­ræða er algeng að konur sem segja frá kyn­ferð­is­of­beldi, án leik­reglna sem þykir sam­fé­lag­inu þókn­an­legt, séu mann­orðs­morð­ingjar og vegi að æru manna. Oft er vegið að trú­verð­ug­leika þeirra kvenna og þeim mæta afar „mann­fjand­sam­leg við­horf” sem næra nauðg­un­ar­menn­ingu og ger­enda­með­virkni. Sama hvaða leik­reglum þær fylgja mætir þeim iðu­lega tor­tryggni og það þrátt fyrir #metoo.

Ef Steinunn Ólína telur það vera keppni í ofbeldi að nið­ur­lægja fólk án dóms og laga er hún sig­ur­veg­ari í þeirri keppni með þess­ari grein. Að hennar mati á bar­áttu­fólk gegn kyn­ferð­is­of­beldi að setja hag brota­þola kyn­ferð­is­of­beldis í for­gang. Líklega er það eina atriðið í grein­inni sem við getum verið sam­mála um. Ef þessi grein átti að stuðla að því mark­miði bregst hún hins vegar brota­þolum kyn­ferð­is­of­beldis algjör­lega,“ segir að lokum í yfir­lýs­ing­unni.

Undir yfir­lýs­ing­una skrifa:

  • Aðal­heiður Alenu Jóhanns­dóttir
  • Agnes Bára Ara­dóttir
  • Alex­andra Rós Jóhann­es­dóttir
  • Anna Bentína Herman­sen
  • Anna Soffía Vík­ings­dóttir
  • Aþena Mjöll Pét­urs­dóttir
  • Ásgerður Jóhann­es­dóttir
  • Berglind Þór­steins­dóttir
  • Bergljót María Sig­urð­ar­dóttir
  • Bryn­hildur Björns­dóttir
  • Bryn­hildur Yrsa Valkyrja
  • Brynja Bjarna­dóttir
  • Candice Michelle Goddard
  • Edda Rún Ara­dóttir
  • Elsa Björk Harð­ar­dóttir
  • Elísabet Ýr
  • Emma Ásu­dóttir Árna­dóttir
  • Erla Kr Bergmann
  • Elsa Björk Harð­ar­dóttir
  • Erla Elí­as­dóttir Völu­dóttur
  • Erla Ein­ars­dóttir
  • Erna Dýrfjörð Stef­áns­dóttir
  • Eyrún Eva Gunn­ars­dóttir
  • Freydís Dögg Stein­dórs­dóttir
  • Freyja Vals Sess­elju­dóttir
  • Frið­gerður Ósk Jóhanns­dóttir
  • Guðbjörg Ýr Valkyrja Guð­bjarg­ar­dóttir
  • Guðný Elísa Guð­geirs­dóttir
  • Guðrún Helga Eyþórs­dóttir
  • Gunna Róberts­dóttir
  • Hafdís Erla Jónu­dóttir
  • Hrafndís Katla
  • Hafdís Inga Helgu­dóttir Hin­riks­dóttir
  • Halldóra Jón­as­dóttir
  • Helga Bjarna­dóttir
  • Helga Gests­dóttir
  • Helga Rósa Atla­dóttir
  • Heiða Björg Hilm­is­dóttir
  • Heiða Valdís Ármann
  • Herdís Ósk Svein­björns­dóttir
  • Hjördís Guð­laugs­dóttir
  • Hjördís Líney Aðal­steins­dóttir
  • Hlíf Steins­dóttir
  • Hrund Ólafs­dóttir
  • Inga María Vil­hjálms­dóttir
  • Ingi­björg Eyfjörð Hólm
  • Magnea
  • Margrét Pét­urs­dóttir
  • Margrét Bald­urs­dóttir
  • Jennie Maria Katarina Jönsson
  • Karen Linda
  • Katrín Atla­dóttir
  • Katrín Ólafs­dóttir
  • Kristin Johansen
  • Kristín Jóns­dóttir
  • Kristín S. Bjarna­dóttir
  • Kristín Helga Schiöth
  • Krist­jana Ein­ars­dóttir
  • Linda Björk
  • Lóa Bald­vins­dóttir Andersen
  • Maríanna Jóns­dóttir Mar­íu­dóttir
  • Ósk Gunn­laugs­dóttir
  • Ragna Björg Björns­dóttir
  • Ragna Ragn­ars­dóttir
  • Ragn­heiður Helga Bergmann Haf­steins­dóttir
  • Rakel Sesselja Hostert
  • Salóme Mist Krist­jáns­dóttir
  • Sandra Rut Skúla­dóttir
  • Sara Björk Biering
  • Sigríður D. Ara­dóttir
  • Sig­ur­björg Anna Guðna­dóttir
  • Sig­ur­laug Lára
  • Sigrún Ósk Arn­ar­dóttir
  • Sigrún Sif Jóels­dóttir
  • Sjöfn Frið­riks­dóttir
  • Sunna Krist­ins­dóttir
  • Særós Rannveig Björns­dóttir
  • Tara Margrét
  • Tinna Björk Páls­dóttir
  • Unnur Mjöll
  • Vibeke Svala Krist­ins­dóttir
  • Þóra Kristín Þórs­dóttir
  • Þór­hildur Löve
  • Þórunn Vign­is­dóttir
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár