Forsætisráðuneytið skoðar mál seðlabankastjóra og unnustu hans

Eftir sam­tal við Seðla­bank­ann hefur for­sæt­is­ráðu­neytið fengið upp­lýs­ingar um eft­ir­lit Ásgeirs Jóns­sonar seðla­banka­stjóra með fjár­fest­inga­sjóði sem unnusta hans, Helga Við­ars­dóttir stýrir.

Áttu samtal um málið
Áttu sam­tal um málið For­sæt­is­ráðu­neyti Kristrúnar Frosta­dóttur átti sam­tal við Seðla­bank­ann um mál Ásgeirs Jóns­sonar seðla­banka­stjóra og unn­ustu hans, Helgu Við­ars­dóttur. Mynd: Samsett

For­sæt­is­ráðu­neytið fer nú yfir mál sem varðar mögu­lega hags­muna­á­rekstra seðla­banka­stjóra.

Heim­ildin greindi frá því nýverið að Helga Við­ars­dóttir, unnusta Ásgeirs Jóns­sonar seðla­banka­stjóra, sé fram­kvæmda­stjóri fjár­fest­inga­sjóðs sem Seðla­bank­inn hefur eft­ir­lit með. Seðla­banka­stjóri er æðsti yfir­maður fjár­mála­eft­ir­lits.

„Í kjöl­far sam­tals milli Seðla­bank­ans og for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins um málið sendi bank­inn ráðu­neyt­inu upp­lýs­ingar um hvernig hefði verið tekið á því innan bank­ans,“ segir í svari for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar. „Ráðu­neytið er nú að fara yfir málið.“

Þá bendir ráðu­neytið á að sam­kvæmt lögum um Stjórn­ar­ráð Íslands fari for­sæt­is­ráðu­neytið með almennt eft­ir­lit með starf­semi Seðla­bank­ans.

„Ráðu­neytið er nú að fara yfir málið“

Sjóður Helgu heitir Spakur Invest og stofn­aði hún hann árið 2021 þegar Ásgeir var orð­inn seðla­banka­stjóri og þau höfðu nýlega trú­lofast. Fyr­ir­tæki alfarið í eigu Helgu, Barbara ehf., er …

Kjósa
50
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Sé einhver minnsti vafi þá ber þeim að víkja sem í hlut á. Ella er alltaf grunsemd um að ekki sé allt með felldu.
    Því miður er töluvert um spillingu á Íslandi og er það miður. Hér hafast þeir að sem ekki hafa allt með á hreinu. Seðlabankastjóri á að vera hafinn yfir allan grun um að taka þátt i spillingu.
    5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár