Fýsilegra er talið að reisa mölunarverksmiðju þýska sementsrisans Heidelberg vestan við þéttbýlið í Þorlákshöfn, á athafnalóð á milli tveggja fiskeldisstöðva, fremur en á lóð sem fyrirtækið hafði áður fengið vilyrði fyrir í grennd við hafnarsvæðið í Þorlákshöfn, þrátt fyrir að á fyrrnefnda staðnum þurfi að byggja nýja hafnaraðstöðu frá grunni til að starfsemin gangi upp í þeirri mynd sem boðað hefur verið.
Viðræður standa yfir á milli Heidelberg og Sveitarfélagsins Ölfuss um þessa nýju höfn og segir Elliði Vignisson bæjarstjóri að Ölfus hafi lýst yfir áhuga á því að eignast höfnina til lengri tíma litið, með eins konar „Spalar-módeli“ og vísar þá til þess hvernig Hvalfjarðargöngin voru fjármögnuð.
Þorsteinn Víglundsson, forstjóri Hornsteins og talsmaður Heidelberg á Íslandi, segir við Heimildina að mjög gróflega megi áætla að höfn af þessari stærðargráðu kosti 8–12 milljarða króna í uppbyggingu. Það liggi hins vegar ekki fyrir fyrr en hönnunarferli verði lengra á …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.




























Ekki síst námuvinnslur og sementsverksmiðjur nota slíkt erlendis.
Lengstu flutningaleiðir eru tugir kílómetra (90 km sú lengsta í Svíþjóð), afköstin upp að 500 t á klst.
Fyrir wikipediu- uppslátt notið t.d. stikkorðin "material ropeway", "Linbanan Kristineberg-Boliden", "Funivie di Savona".