Stefán Sveinbjörnsson skipaður stjórn­ar­formaður LIVE

Stefán Svein­björns­son, fram­kvæmda­stjóri VR, hef­ur tekið við for­mennsku í stjórn Líf­eyr­is­sjóðs verzl­un­ar­manna af Ólafi Reimari Gunn­ars­syni.

Stefán Sveinbjörnsson, nýr stjórnarformaður Lífeyrissjóðs verzlunarmanna.
Stefán Svein­björns­son, nýr stjórn­ar­for­maður Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna. Mynd: Lífeyrissjóður verzlunarmanna.

Stefán Svein­björns­son, fram­kvæmda­stjóri VR, hefur tekið við for­mennsku í stjórn Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna af Ólafi Reimari Gunn­ars­syni. Vara­for­maður stjórn­ar­innar er áfram Guðrún Haf­steins­dóttir, for­maður Samtaka iðn­að­ar­ins. Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu á vef sjóðs­ins.

Ný stjórn sjóðs­ins kom saman til fundar í gær og tóku þá sæti í stjórn­inni fjórir nýir full­trúar VR og einn nýr full­trúi til­nefndur af Kaup­manna­sam­tökum Íslands, en full­trúi sam­tak­anna, Benedikt K. Krist­jáns­son, féll frá á liðnu sumri. 

Trún­að­ar­brestur vegna hækk­unar á vöxtum

[links]Líf­eyr­is­sjóður verzl­un­­ar­­manna er næst stærsti líf­eyr­is­­sjóður lands­ins og til­­­­­­­nefnir VR helm­ing stjórn­­­­­­­ar­­­­manna sjóðs­ins en sam­tök ýmissa atvinn­u­rek­enda hinn helm­ing­inn. Heild­­ar­­eignir sjóðs­ins voru metnar á 713,5 millj­­arða króna um síð­­­ustu ára­­mót. Hann er mjög umsvifa­­mik­ill fjár­­­festir í íslensku við­­skipta­­lífi og á stóran hlut í flestum skráðum félögum hér­­­lend­­is. Verð­­mætasta hluta­bréfa­­eign sjóðs­ins er hluti í Mar­el.

Sjóð­­ur­inn á einnig stóran hlut í félögum á borð við HB Granda, Reg­inn, Icelandair og Eim­­skip. Þá er Líf­eyr­is­­sjóður verzl­un­­ar­­manna stærsti ein­staki hlut­haf­inn í Kviku banka með 9,49 pró­­sent hlut

Á fundi sem hald­inn var í full­­­­­­­­trú­a­ráð­i VR í Líf­eyr­is­­­­­­­­sjóð­i verzl­un­­­­ar­­­­manna ­í júní síð­­­­ast­liðnum var sam­­­­­­­­þykkt að aft­­­­­­­­ur­­­­­­­­kalla umboð stjórn­­­­­­­­­­­­­­­ar­­­­­­­­manna VR í stjórn Líf­eyr­is­­­­­­­­sjóðs verzl­un­­­­ar­­­­manna og var að auki sam­­­­­­­­þykkt til­­­­­­­­laga um nýja stjórn­­­­­­­­­­­­­­­ar­­­­­­­­menn til­­­­­­ bráða­birgða. Áður­­­­­­ hafði stjórn­­­­­­ VR­­­ lýst yfir trún­­­­­­­­að­­­­­­­­ar­bresti gagn­vart stjórn­­­­­­­­­­­­­­­ar­­­­­­­­mönnum félags­­­­­­­­ins hjá sjóðnum vegna sam­­­­­­­­þykktar stjórnar hans um hækkun breyt­i­­­­­­­­legra vaxta verð­­­­­­­­tryggðra sjóð­­­­­­­­fé­laga­lána sem gengur í ber­högg við hina miklu áherslu sem lögð var á vaxta­­­­­­­lækk­­­­­­­­­­­­­­­anir í nýgerðum kjara­­­­­­­samn­ing­i.

Fjórir nýjir fulltrúar VR

Aðgerð félags­ins vakti hörð við­brögð stjórn­ar­manna en í lok síð­ustu viku var greint frá því VR hafi náð sam­komu­lagi við Líf­eyr­is­sjóð verzlunarmanna um að þeir stjórn­ar­menn sem nú sitja í stjórn­inni í nafni VR munu láta af störfum og í stað þeirra munu þeir stjórn­ar­menn sem VR skip­aði þann 14. ágúst. Þau Guð­rún Johnsen, Bjarni Þór Sig­­­urðs­­­son, Helga Ing­­­ólfs­dóttir og Stefán Svein­­­björns­­­son hafa því nú tekið sæti í stjórn­inni.

Stjórn Líf­eyr­is­sjóðs Verzlunarmanna er nú skipuð:

Bjarni Þór Sig­urðs­son, til­nefndur af VR

Guðrún Johnsen, til­nefnd af VR

Helga Ing­ólfs­dóttir, til­nefnd af VR

Stefán Svein­björns­son for­maður, til­nefndur af VR

Árni Stef­áns­son, til­nefndur af Samtökum atvinnu­lífs­ins að fengnu áliti Við­skipta­ráðs Íslands

Guðný Rósa Þor­varð­ar­dóttir, til­nefnd af Félagi atvinnu­rek­enda

Guðrún Haf­steins­dóttir, vara­for­maður, til­nefnd af Samtökum iðn­að­ar­ins að fengnu áliti Samtaka atvinnu­lífs­ins

Margrét Sif Haf­steins­dóttir, til­nefnd af Kaup­manna­sam­tökum Íslands

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár