Reynir við unga fólkið með því að lofa að lækka skólagjöldin

Í ræðu sem Ed Miliband, for­maður Verka­manna­flokks­ins, hélt í lok vik­unnar lof­aði hann að lækka skóla­gjöld í háskólum á Englandi. Þar eru hæstu skóla­gjöld sem þekkj­ast innan Evr­ópu­sam­bands­ins og þau fimmtu hæstu innan landa OECD. Þar að auki er kostn­að­ar­þátt­taka náms­manna á Englandi há miðað við önnur lönd í Norður og Vestur-Evrópu, þó margir nýti sér náms­lána­kerfið sem býður nokkuð hag­stæð kjör miðað við almennan markað.

Hvert svæði innan Bret­lands, það er England, Skotland, Wales og Norður-Írland, hefur svig­rúm til að stjórna upp­hæð skóla­gjalda og styrkja sem fylgja nem­endum. Þannig eru skóla­gjöld á Englandi almennt hærri en á öðrum svæðum innan Bret­lands.

Frá árinu 2009 hafa þó verið gerðar miklar breyt­ingar á háskóla­kerf­inu í Englandi og dæmi eru um að skóla­gjöld hafi tvö- og þre­fald­ast í sumum háskólum í kjöl­far breyt­ing­anna. Þær hafa verið afar umdeildar og eru nú aftur í umræð­unni í tengslum við þing­kosn­ingar sem fara fram í maí. Aðgengi að náms­lána­kerf­inu í Bret­landi er þó, að mati sér­fræð­inga OECD, ein af ástæðum þess að ólík­legt megi telj­ast að mikið dragi úr tæki­færum til náms líkt og gerst hefur í Banda­ríkj­unum sam­hliða hækkun skóla­gjalda.

Lofar að lækka skólagjöld


Miliband telur kerfi núver­andi skóla­gjalda­kerfi rík­is­stjórnar vera í óreiðu og lofar að breyta því. Hann lof­aði í ræðu sinni á föstu­dag að flokk­ur­inn myndi lækka skuldir náms­manna og skatt­greið­enda, „Frá sept­em­ber á næsta ári ætlar næsta stjórn Verka­manna­flokks­ins lækka skóla­gjöld úr 9.000 pundum (1,8 millj­ónir króna) í 6.000 pund (1,2 millj­ónir króna) og mæta þannig skuld­bind­ingum okkar við kom­andi kyn­slóðir.“ Hann lof­aði því að ef flokk­ur­inn kæm­ist inn í rík­is­stjórn myndu breyt­ing­arnar ná strax til þeirra sem munu hefja nám næsta haust og einnig til þeirra sem nú þegar eru við nám.

Þetta er breyt­ing sem myndi að með­al­tali skila sér í 9.000 punda (1,8 milljón króna) lækkun á ein­stak­ling, miðað við náms­mann í hefð­bundnu þriggja ára grunn­námi. Þá breyt­ingu ætlar flokk­ur­inn að fjár­magna með því að leggja af skatta­af­slátt á líf­eyr­is­sparnað og almennan sparnað. Rétt er að geta þess að þessar breyt­ingar á upp­hæð skóla­gjalda myndu ein­ungis ná til breskra náms­manna og þeirra sem koma frá löndum ESB en ekki frá löndum þar fyrir utan, líkt og margir náms­menn frá Íslandi, Noregi, Sviss og Liechtenstein falla undir.

Námslánakerfið veitir fólki svigrúm


Rætt var við Vince Cable, við­skipta­ráð­herra og þing­mann Frjáls­lyndra demókrata, á föstu­dag og er hann ósam­mála þessum hug­myndum Miliband. Hann telur núver­andi kerfi virka vel og að sönnun þess sé að vax­andi fjöldi ungs fólks sæki nú í háskóla­nám og að sama skapi hafi fjöldi nema sem kemur frá efna­minni heim­ilum farið vax­andi síð­ustu ár. Þeir sem nýta sér náms­lána­kerfið hafi gott svig­rúm til end­ur­greiðslu, en eftir útskrift greiðir fólk í sam­ræmi við tekjur. Þeir sem eru með tekjur undir 21.000 pundum þurfa ekki að byrja að greiða til baka lán sín, en þeir sem eru með hærri tekjur greiða í hlut­falls­legu sam­ræmi við það.

Cable telur einnig að háskólar í land­inu séu vel fjár­magn­aðir og að kerfið standi undir sér, „Það hefur verið lofað af OECD sem hugs­an­lega það besta í Vestur-Evrópu. Verka­manna­flokk­ur­inn vill eyði­leggja það með popúl­ískum hug­myndum sem þeir telja að höfði til náms­manna, sem ég tel þó að gangi ekki því náms­menn skilja vel að núver­andi kerfi virkar.“ Hann telur almennt að for­svars­menn flokks­ins skorti þekk­ingu á fjár­mála­læsi, bæði í tenglum við útgjöld til mennta­mála sem og önnur útgjöld rík­is­ins.

[caption id="attachment_21664" align="alignnone" width="839"] Vince Cable, við­skipta­ráð­herra Bret­lands, gefur lítið fyrir hug­myndir breska verka­manna­flokks­ins og segir núver­andi háskóla­kerfi standa undir sér.[/caption]

Núverandi skólagjaldakerfi að springa


Þessu eru þó ekki allir sam­mála og sagði Chris Leslie, þing­maður Verka­manna­flokks­ins og skugga­ráð­herra, að núver­andi skóla­gjalda­kerfi væri að springa innan frá. Greg Clark, ráð­herra háskóla­mála og þing­maður Íhalds­flokks­ins, telur þó að skatt­greið­endur muni standa uppi með reikn­ing­inn ef hug­myndir Verka­manna­flokks­ins yrðu að veru­leika. Sú breyt­ing sem flokk­ur­inn leggur til muni valda skatta­hækk­unum ásamt auk­inni skulda­söfn­una og muni koma hvað verst niður á „þeim sem hafa unnið hart, lagt til hliðar og gert það sem er rétt að gera“ líkt og Clark sagði í við­tali í vik­unni.

Höfðar til ungra kjósenda


Skóla­gjalda­málið virð­ist að ein­hverju leiti drifið áfram af þeim sem vilja ná til yngri kjós­enda, en hækkun skóla­gjalda hefur síð­ustu ár verið reglu­lega mót­mælt af náms­mönnum í land­inu. Kosn­inga­þátt­taka ungs fólks (18-24 ára) í Bret­landi, er líkt og í flestum öðrum Evr­ópu­löndum, afar dræm og hefur verið það síð­ustu ára­tugi sam­an­borið við aðra ald­urs­hópa. Eurobarometer könnun Fram­kvæmda­stjórnar ESB gefur til kynna að ungt fólk í Bret­landi taki lít­inn þátt í stjórn­málum miðað við jafn­aldra í öðrum löndum Evrópu.

Gæti fjölgað ungum kjósendum


Nýlegar skoð­ana­kann­anir sýna það skýrt að meiri líkur er á að ungt fólk gefi Verka­manna­flokknum eða Græn­ingjum atkvæði sitt og er talið að skóla­gjalda­málið muni ýta enn frekar undir þá þróun. Líklegt er að stuðn­ingur Frjáls­lyndra demókrata við núver­andi skóla­gjalda­kerfi muni fæla unga kjós­endur frá flokknum, en það er þó talið hafa minni áhrif á unga kjós­endur Íhalds­flokks­ins. Hug­myndir Miliband og Verka­manna­flokks­ins gætu drifið stærra hlut­fall ungra kjós­enda á kjör­stað, en ljóst má vera að atkvæði ungs fólks gætu haft nokkur áhrif á úrslit kosn­ing­anna í maí.

Vince Cable, viðskiptaráðherra Bretlands, gefur lítið fyrir hugmyndir breska verkamannaflokksins og segir núverandi námslánakerfi vera ásættanlegt.
Vince Cable, við­skipta­ráð­herra Bret­lands, gefur lítið fyrir hug­myndir breska verka­manna­flokks­ins og segir núver­andi náms­lána­kerfi vera ásætt­an­legt.

Þar gæti líka spilað inn í hvort stjórn­mála­menn nái að kynna fleiri mál sem höfða til þessa hóps kjós­enda á næstu vikum. Spurn­ingin er þó hvort það dugi til að hvetja ungt fólk til að skrá sig til kosn­inga og mæta á kjör­stað, og breyta þannig dræmri kosn­inga­þát­töku hóps­ins síð­ustu ára­tugi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár