Munu Rússar láta staðar numið við víglínuna í Úkraínu?

Við­ur­kenn­ing Rússa á sjálf­stæði tveggja yfir­ráða­svæða aðskiln­að­ar­sinna í Úkraínu hefur vakið upp hörð við­brögð og for­dæm­ingar vest­rænna ríkja. Óljóst þykir hvort Rússar muni taka undir kröfur aðskiln­að­ar­sinna um enn meira land­svæði í Dónetsk og Lúhansk.

Vladimír Pútín Rússlandsforseti talaði niður tilvistargrundvöll Úkraínu í sögulegri ræðu í gær, viðurkenndi yfirráðasvæði aðskilnaðarsinna sem sjálfstæði ríki og skipaði svo hermönnum sínum til friðargæslustarfa á svæðunum.
Vladimír Pútín Rúss­lands­for­seti tal­aði niður til­vist­ar­grund­völl Úkraínu í sögu­legri ræðu í gær, við­ur­kenndi yfir­ráða­svæði aðskiln­að­ar­sinna sem sjálf­stæði ríki og skip­aði svo her­mönnum sínum til frið­ar­gæslu­starfa á svæð­unum. Mynd: EPA

Mánu­dag­ur­inn 21. febr­úar 2022 hefur þegar öðl­ast sess í sögu­bókum fram­tíðar, en í gær ákvað Vladímir Pútín for­seti Rúss­lands að við­ur­kenna sjálf­stæði tveggja svæða í aust­ur­hluta Úkraínu sem eru undir yfir­ráðum aðskiln­að­ar­sinna. Hann seg­ist nú við­ur­kenna svokölluð alþýðu­lýð­veldi, Lúhansk og Dónetsk.

Í gær­kvöldi sendi Pútín svo út til­skipun þess efnis að rúss­neskar her­sveitir ættu að fara til þessa svæða og starfa sem „frið­ar­gæslu­liðar“. Við­brögðin við þessu hafa verið hörð.

Fordæmingar og hótanir

Á fundi Örygg­is­ráðs Sam­ein­uðu þjóð­anna, þar sem Rússar sitja fremur kald­hæðn­is­lega á for­seta­stóli þessa dag­ana, voru aðgerðir Rússa harð­lega for­dæmdar.

Diplómatar vest­rænna ríkja hétu því að það myndi hafa miklar afleið­ingar fyrir Rússa að brjóta með þessum hætti gegn sjálf­stæði Úkraínu og þeim frið­ar­sátt­málum sem gerðir voru undir lok Kalda stríðs­ins.[links]

Íslenskir ráða­menn hafa boðað að Íslandi muni taka þátt í refsi­að­gerðum vest­rænna ríkja gegn Rússum vegna þess­arar þró­unar mála í Úkraínu.

Þjóðverjar frysta Nord Stream 2

En hvert er fram­haldið? Í dag má búast við því að ríki Atl­ants­hafs­banda­lags­ins og Evr­ópu­sam­bands­ins til­kynni um efna­hags­legar refsi­að­gerðir gagn­vart Rússum vegna þeirra skrefa sem tekin voru í gær.

[adspot]

Þær kunna að verða nokkuð þungar, ef taka má mið af þeirri ákvörðun Þjóð­verja sem til­kynnt var í morgun, að setja gang­setn­ingu Nord Stream 2 gasleiðsl­unnar, sem flytur jarð­gas frá Rúss­landi til Þýska­lands um botn Eystra­salts­ins, á ís.

Þýskir stjórn­mála­menn höfðu áður forð­ast það að ræða um það sem raun­hæfan mögu­leika, en Olaf Scholz kansl­ari til­kynnti á blaða­manna­fundi í morgun að staðan væri „gjör­breytt“ og því hefðu Þjóð­verjar ákveðið að ráð­ast í þetta end­ur­mat á sínum aðgerðum.

Bretar hafa boðað að þeir hygg­ist beita fimm rúss­neska banka við­skipta­þving­unum og þrjá rúss­neska auð­menn til við­bótar.

Frá æðstu stöðum í Evr­ópu­sam­band­inu hafa svo borist þau boð að lagt verði fyrir aðil­ar­ríkin að grípa til við­skipta­þving­ana sem meðal ann­ars bein­ist gegn þeim 351 þing­manni á rúss­nesku Dúmunni sem sam­þykktu að við­ur­kenna sjálf­stæði svæð­anna, auk rúss­neskra banka. Þá er lagt til að aðgengi rúss­neskra yfir­valda að evr­ópskum mörk­uðum og að vöru­við­skipti við svæði aðskiln­að­ar­sinna verði heft.

Hvernig skilgreina Rússar Dónetsk og Lúhansk?

Alþýðu­lýð­veldin svoköll­uðu Dónetsk og Lúhansk eru í sam­nefndum hér­uðum í aust­ur­hluta Úkraínu, en svæðið í heild er oft­ast kallað Donbass. Aðskiln­að­ar­sinn­arnir, sem með stuðn­ingi Rússa hafa sölsað hafa undir sig land á þessum svæðum í átökum sem staðið hafa með hléum allt frá árinu 2014, stjórna þó ein­ungis land­svæði sem nær yfir hluta hér­að­anna.

Kröfur aðskiln­að­ar­sinna um land­svæði ganga þó enn lengra og vilja þeir líka ná undir sína stjórn því land­svæði sem er handan víg­lín­unnar sem sker Donbass-svæðið í tvennt, en hún hefur lítið hreyfst á und­an­förnum árum.

Óljóst þykir hvort Vladimír Pútín ætli sér að taka undir þær kröfur og hvort „frið­ar­gæslu­lið­unum“ rúss­nesku verði ætlað það hlut­verk að sækja fram gegn úkra­ínskum her­sveitum á víg­lín­unni til þess að tryggja að aðskiln­að­ar­sinnum full yfir­ráð yfir hér­uð­unum tveimur.

Slíkar aðgerðir myndu þýða hörð átök, sem sumir sér­fræð­ingar telja að gætu jafn­vel orðið upp­hafið að frek­ari stríðs­á­tökum í Úkraínu.

Fréttin hefur verið upp­færð..

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár