Útlit fyrir að sóttvarnalæknir leggi til hertar aðgerðir

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir er ekki ánægður með stöðu far­ald­urs­ins og ætlar að skila minn­is­blaði með til­lögum að breyttum sótt­varn­ar­að­gerðum til Svan­dísar Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra fljót­lega.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Almannavarnir

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir ætlar að skila minn­is­blaði til­lögum að breyttum sótt­varn­ar­að­gerðum til Svan­dísar Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra innan skamms.

Haft er eftir á honum á Vísi í dag að hann skoði að leggja til harð­ari aðgerðir af ein­hverju tagi og ein­hverja end­ur­skoðun á fyr­ir­komu­lag­inu á landa­mærum. Vís­bend­ingar séu um að smit á landa­mærum gætu verið að ber­ast inn í sam­fé­lagið.

Sótt­varna­læknir sagði sömu­leiðis við RÚV að það væri ekk­ert útlit fyrir að skyn­sam­legt yrði að aflétta þeim aðgerðum sem eru nú í gildi. Þróunin á far­aldr­inum væri áhyggju­efni og „rauð flögg“ á lofti víða.

Áttatíu og sex smit greindust inn­an­lands í gær og þar af voru 24 ein­stak­lingar ekki í sótt­kví við grein­ingu. Þórólfur sagði við Vísi að sá fjöldi sem væri að grein­ast utan sótt­kvíar væri ekki að minnka mikið og það væri á meðal þess sem hann hefði áhyggjur af.

Einnig væri áhyggju­efni að það væru enn margir að grein­ast sem hefðu ekki tengsl við þekktar hóp­sýk­ingar, eins og þá stóru sem spratt upp í kringum Landakot. Um 120 smit hafa verið rakin þangað.

Andlát á Landspítala

Ein­stak­lingur á níræð­is­aldri lést á Land­spít­ala á síð­asta sól­ar­hring eftir að hafa smit­ast af COVID-19. Er fjöldi þeirra sem lát­ist hafa eftir COVID-19 smit hér á landi því kom­inn upp í tólf frá því að far­ald­ur­inn hófst fyrr á árinu.

Yfir þúsund manns í einangrun

Alls eru 1.062 ein­stak­lingar nú í ein­angrun vegna sjúk­dóms­ins og í heild­ina eru 58 manns á sjúkra­húsi, þar af einn á gjör­gæslu, sam­kvæmt tölum á vefnum covid.is.

Far­ald­ur­inn hefur verið í vexti í lands­byggð­unum eftir að hafa verið að mestu bund­inn við höf­uð­borg­ar­svæðið í upp­hafi hinnar svoköll­uðu þriðju bylgju.

Núna eru 51 í ein­angrun á Norð­ur­landi eystra, 64 á Suð­ur­landi, 21 á Vest­ur­landi og 12 á Vest­fjörðum. Eini lands­hlut­inn þar sem eng­inn er með virkt smit svo vitað sé er Aust­ur­land.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár