Fékk ekki upplýsingar um komu hælisleitenda hjá Útlendingastofnun

Samkvæmt Útlend­inga­stofnun, umsjón­ar­manni sótt­varn­ar­húss og lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fékk Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, ekki upp­lýs­ingar um komu hæl­is­leit­enda til lands­ins hjá þeim.

Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, fékk ekki tölur um komur hæl­is­leit­enda til lands­ins hjá Útlend­inga­stofnun, að því er fram kemur í svari stofn­un­ar­innar við fyr­ir­spurn Kjarnans. Útlend­inga­stofnun birtir á vef­síðu sinni tölur yfir umsóknir um vernd í kringum 15. hvers mán­aðar, fyrir mán­uð­inn á undan.

[links]Þing­mað­ur­inn hefur und­an­farnar vikur birt tölur á Facebook-síðu sinni yfir ein­stak­linga sem lent hafa á Kefla­vík­ur­flug­velli og sótt um alþjóð­lega vernd. Hann vill ekki greina frá því í sam­tali við Kjarnann hvaðan hann fær töl­urnar.

Í svari Útlend­inga­stofn­unar til Kjarnans segir að umsóknir um vernd séu lagðar fram hjá lög­reglu, flestar í flug­stöð­inni í Keflavík. „Um þessar mundir fara umsækj­endur þaðan í sótt­varn­ar­hús og dvelja þar þangað til nið­ur­stöður úr seinni skimun liggja fyrir en fyrst að því loknu koma þeir í búsetu­úr­ræði Útlend­inga­stofn­unar.“

Upplýsingarnar komu ekki frá sóttvarnarhúsi eða lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu

Gylfi Þór Þor­steins­son, umsjón­ar­maður sótt­varn­ar­húsa, segir þing­mann­inn ekki hafa fengið þessar upp­lýs­ingar hjá sér. Upp­lýs­ingar um fjölda hæl­is­leit­enda sem í húsin koma dag frá degi eru ekki gefnar utan­að­kom­andi, hvorki fjöl­miðlum, stjórn­mála­mönnum né öðrum.

Daglegar upp­lýs­ingar sem þessar séu aðeins gefnar rakn­ing­arteym­inu og COVID-göngu­deild­inni. Þetta kemur fram í svari Gylfa við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Halla Bergþóra Björns­dóttir, lög­reglu­stjór­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, seg­ist í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans ekki vita til þess að emb­ættið hafi fengið fyr­ir­spurnir um fjölda hæl­is­leit­enda sem komið hafa til lands­ins né kann­ist emb­ættið við að hafa veitt þær.

Segist hafa fengið símtal og skilaboð með upplýsingunum

Ásmundur vildi ekki gefa það upp hvaðan hann fær þessar tölur, eins og áður segir, en Útlend­inga­stofnun hefur stað­fest þær fyrstu sem hann birti í lok sept­em­ber í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans. „Ástæðan fyrir því að ég birti þessar tölur er sú að hringt var í mig og mér sagt hvað væri í gangi upp á flug­velli,“ sagði hann í sam­tali við Kjarnann.

Fyrst greindi Ásmundur frá því að 17 manns hefðu komið þann 25. sept­em­ber til lands­ins. Ásmundur sagði í sam­tali við Kjarnann að síðar hefði komið í ljós að fleiri hefðu komið um svipað leyti. „Ég var svo sem ekki að elta ólar við það því það kom nokkrum dögum seinna.“

Viku síðar komu 20 í við­bót og greindi Ásmundur einnig frá því á Facebook. Við færsl­una skrif­aði hann: „Fjöl­miðlar hér á landi flytja ekki fréttar af hingað komu hæl­is­leit­enda. Þeim til upp­lýs­inga komu 20 hæl­is­leit­endur um síð­ustu helgi til lands­ins. Um 40 síð­ustu tvær helgar.“

Ásmundur sagði við Kjarnann að það sama hefði verið upp á ten­ingnum þá; hann hefði fengið sím­tal og skila­boð þar sem honum var greint frá því hversu margir hefðu komið á þessum degi.

Sunnu­dag­inn 11. októ­ber greindi hann frá því að far­þega­vél hefði komið frá Ítalíu deg­inum áður en með flug­vél­inni hefðu verið 35 far­þegar. Þar af 14 hæl­is­leit­endur. „Mér er sagt að kostn­aður (óstað­ferst) vegna hvers hæl­is­leit­enda sé 6 millj­ónir og þessir 14 kosta rík­is­sjóð því 84 millj­ónir. Síðustu þrjár vikur hafa komið 54 hæl­is­leit­endur og kostn­að­ur­inn vegna þeirra fyrir rík­is­sjóð því 324 millj­ónir,“ skrif­aði hann á Facebook.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár