Mynd: Bára Huld Beck

Á heitum degi í hjarta kalda stríðsins

Auður Jóns­dóttir og Bára Huld Beck röltu á heitum sunnu­degi um sögu­frægt svæði í Berlín, Tempel­hof-flug­völl og nágrenni, áður hjarta kalda stríðs­ins en nú hjarta Berlínar-búa í sum­ar­skapi.

Berlín getur verið syfju­leg við fyrstu sýn á sunnu­dögum. En í nota­legu veðri fyll­ast almenn­ings­garðar og leik­svæði borg­ar­anna af lífi. Borgin státar af mörgum leik­flæmum fyrir almenn­ing, enda mikið sprengd í stríð­inu. Þessi svæði eru sum hver fút­úrísk að sjá, nýtt í bland við leifar af gömlum járn­braut­ar­teinum eða húsa­rústum – og sum hver borg­ar­búum ákaf­lega hjart­fólgin.

Þá ekki síst gamli Tempel­hof-flug­völl­ur­inn sem var nýttur sem alþjóða­flug­völlur þar til fyrir örfáum árum síðan en er nú flennistórt leik­rými í miðju borg­ar­innar þar sem fólk hleypur, leikur sér, grillar, fleytir flug­drekum, hjólar og þeysir um á línu­skautum.

Fjár­festar ætl­uðu að nota hluta vall­ar­ins undir bygg­ingar, m.a. var talað um lúxus­í­búðir, en úr því varð mikið póli­tískt þref í vin­sælli borg þar sem hús­næð­is­vandi er far­inn að gera vart við sig og endað með ástríðu­fullri atkvæða­greiðslu borg­ar­búa sem vildu margir hafa svæðið ósnortið, enda slíkt víð­áttu­svæði stór­borg­ar­búum kært.

Tempelhof-flugvöllurinn
Tempel­hof-flug­völl­ur­inn

Við einn enda vall­ar­ins er gríð­ar­stór bygg­ing sem til­heyrði á sínum tíma nas­istum, varð síðar flug­stöðv­ar­bygg­ing og hýsti nú síð­ast þús­undir flótta­manna frá Sýrlandi og fleiri löndum en þar geta jafn­framt lista­menn, fyr­ir­tæki og verk­takar leigt sér vinnu­að­stöðu, auk þess sem þar hafa bæði verið leik­hús og kab­ar­ett. Þetta verður að telj­ast nokkuð tákn­rænt að þessi gamla nas­ista­bygg­ing skuli hafa gegnt þessu hlut­verki, á svæði sem var væg­ast sagt umdeilt í borg­ar­skipu­lags­málum.

Tempelhof-byggingin
Tempel­hof-bygg­ingin

Flug­völl­ur­inn varð þó hvað frægastur þegar hann gegndi hlut­verki loft­brúar fyrir eyj­una Vestur-Berlín, umkringda rúss­neskum yfir­ráðum í Kalda stríð­inu, en þegar verst lét þurftu banda­menn, með­vit­aðir um mik­il­vægi vest­urs­ins, að flytja bæði vatn og brýn­ustu nauð­synjar til Vestur-Þjóð­verja og lentu þá flug­vélar á allt að þriggja mín­útna fresti þar, þegar verst lét (segir sagan) á níu­tíu sek­úndna fresti. Kannski ekki skrýtið að Tempel­hof-flug­völlur hafi verið kall­aður hjarta Kalda stríðs­ins.

Við hlið Tempel­hof-vallar er svo Hasen­heide-garð­ur­inn; feiki­stór, frekar villtur almenn­ings­garður þar sem dóp­dílerar brosa til barna­fjöl­skyldna, nakið fólk breiðir úr sér á nekt­ar­sól­baðs­spotta, ein­hverjir leika míní­gólf, gamlir tyrk­neskir karlar sötra te með teppi á hnjánum og stór­fjöl­skyldur grilla. Þar er líka úti­bíó, gam­al­dags veit­inga­sala, tveir leik­vellir og hús­dýra­garður.

Fyrir neðan Hasen­heide-garð endar hið víð­feðma Kreuzberg-hverfi. Við tekur Kreuz-Kölln og þar byrjar NeuKölln; gam­alt verka­manna­hverfi hverfi fullt af inn­flytj­endum, fjöl­mörgum af tyrk­neskum og arab­ískum upp­runa, en líka frá ótelj­andi löndum. Þangað sækja jafn­framt náms­menn, lista­menn og allir sem hafa gaman af mann­lífi. Á þessum myndum má sjá líf sunnu­dags­stemn­ing­una á þessu sögu­fræga svæði.

Tempelhof-garðurinn
Tempel­hof-garð­ur­inn
Gamlir lestarteinar
Gamlir lestar­teinar

Við fyrstu sýn virð­ist þetta vera venju­legur staður þar sem fólk safn­ast saman en þegar betur er að gáð má sjá leifar af gömlum tíma. Að rekast á gamla lestar­teina í miðjum garði vekur upp margar spurn­ingar. Eru þetta teinar sem not­aðir voru fyrr á síð­ustu öld, í stríð­inu eða hvað? Við fáum engin svör en það gerir þá enn for­vitni­legri fyrir vikið.

Trommuleikarar í stuði
Trommu­leik­arar í stuði
Trommað fyrir maraþonhlaupara
Trommað fyrir mara­þon­hlaupara

Á góðum degi má heyra tón­list og góðan trumbu­slátt. á Tempel­hof . Þarna var trommað fyrir mara­þon­hlaupara til þess að hvetja þá áfram. Ryþminn sest í blóðið og fylgir okkur það sem eftir lifir dags.

Hér er fýrað upp í grill­inu. Oft má sjá tyrk­neskar og arab­ískar stór­fjöl­skyldur grilla og hita te í kötlum meðan börnin leika.

Horft til himins í moskunni í Tempelhof.
Horft til him­ins í mosk­unni í Tempel­hof.
Rimlar nútímans eða ... ?
Rimlar nútím­ans eða ... ?
Það er ekki hægt að fara um án þess að rekast á pylsusala og nýttu greinarhöfundar sér það að sjálfsögðu.
Það er ekki hægt að fara um án þess að rekast á pylsu­sala og nýttu grein­ar­höf­undar sér það að sjálf­sögðu.

Annar grein­ar­höf­undur sá þátt á BBC þess efnis að bág lífs­kjör fylgi því að vera vöru­bíl­stjóri í ýmsum Evr­ópu­löndum. En þessir herra­menn kunna að lifa líf­inu og sögðu okkur að þeir væru að með sinn eigin tyrk­neska veit­inga­stað á trukknum. Við göt­una á milli Hasen­heide-garðs og Tempel­hof-vallar má oft sjá runu af kyrr­stæðum vöru­bílum.

Beðið í þungum þönkum eftir grænu.
Beðið í þungum þönkum eftir grænu.
Kaffihús í Hasenheide-garðinum
Kaffihús í Hasen­heide-garð­inum

Í góðu veðri allan árs­ins hring er þétt setið við kaffi­söl­una í Hasen­heide-garði og fólk fær sér ýmist kaffi eða bjór og krakk­arnir ís eða pylsu.

Það má endalaust leika sér í Hasenheide-garði.
Það má enda­laust leika sér í Hasen­heide-garði.
Tívolí í Hasenheide-garðinum
Tívolí í Hasen­heide-garð­inum
Aladdín glottir
Aladdín glottir

Fátt er eins drauga­legt eins og tómt tívolí en á sumrin fara flökku­tívolí á milli hverfa í Berlín og mis­jafnt eftir hverfum hvenær þau koma . Í byrjun maí er alltaf tívolí í Hasen­heide (Héra­heið­inni), garð­inum við hlið Tempel­hof, enda mikið er um dýrðir og líf­legar óeirðir þann 1. maí á þessu svæði. Í augna­blik­inu er engin starf­semi og tívolíið bíður eftir að stuðið hefj­ist.

Kona skokkar í pilsi og önnur hjólar í makindum með börnin í Kristjaníu-hjóli.
Kona skokkar í pilsi og önnur hjólar í mak­indum með börnin í Krist­janíu-hjóli.
Fátt þýskara en þessi mynd.
Fátt þýskara en þessi mynd.
Hjólreiðar eru vinsæll fararmáti umhverfismeðvitaðra Berlínarbúa en gott að halda í höndina á barninu sínu þegar hressustu hjólreiðamennirnir þjóta hjá, stundum utan hjólastíga. Hjólreiðamenningin er ennþá nokkuð villt í sumum hverfum.
Hjól­reiðar eru vin­sæll far­ar­máti umhverf­is­með­vit­aðra Berlín­ar­búa en gott að halda í hönd­ina á barn­inu sínu þegar hress­ustu hjól­reiða­menn­irnir þjóta hjá, stundum utan hjóla­stíga. Hjól­reiða­menn­ingin er ennþá nokkuð villt í sumum hverfum.
Leikvöllur í Hasenheide-garðinum
Leik­völlur í Hasen­heide-garð­inum

Fáar borgir státa af jafn mörgum fal­legum leik­völlum eins og Berlín en þá má nán­ast finna á hverju götu­horni. Þeir eru stíl­aðir inn á mis­jafnan aldur og eru flestir með ein­hvers konar þema. Þessi virð­ist vera inn­blás­inn af tyrk­neskri soldána­höll. Nánast allir eru þaktir með mjúkum hvítum sandi fyrir litlar táslur að leika sér í. Eitt sinn á þessum leik­velli varð annar grein­ar­höf­undur vitni að þegar nokkrir blóð­heitir fjöl­skyldu­ferðir misstu sig í slags­mál og kom fót­boltalið, sem var að æfa í nágrenn­inu, og stillti til friðar.

„Af hverju drápuð þið mig?“ spyr þessi látni póní-hestur að handan. Einhver með­vit­aður starfs­maður hús­dýra­garðs­ins í Hasen­heide-garði hefur hengt þetta upp til að hreyfa við með­fæddu sam­visku­biti Þjóð­verja.

Fundum einn asna í Berlín.
Fundum einn asna í Berlín.
Hér má fá sjúklega góða víetnamska kássu á 4.50 evrur og er alltaf þéttsetinn bekkurinn. Stundum mega gestir einungis sitja eins lengi og þeir eru að klára matinn. Staðurinn er hinum megin við innganginn á Hasenheide-garðinum.
Hér má fá sjúk­lega góða víetnamska kássu á 4.50 evrur og er alltaf þétt­set­inn bekk­ur­inn. Stundum mega gestir ein­ungis sitja eins lengi og þeir eru að klára mat­inn. Stað­ur­inn er hinum megin við inn­gang­inn á Hasen­heide-garð­inum.

Hundar eru ein­stak­lega vel upp aldir í Berlín. Stundum má sjá þá bíða óbundna fyrir utan mat­vöru­búðir eftir eig­anda sínum eða hlaupa á undan hjól­reiða­mönnum.

Fyrir áhugasama er einstakt úrval af brúðkaupsvörum á þessu svæði.
Fyrir áhuga­sama er ein­stakt úrval af brúð­kaups­vörum á þessu svæði.
Einhver týndi hattinum sínum.
Einhver týndi hatt­inum sínum.
Þeir eru góðir barirnir í Neukölln.
Þeir eru góðir bar­irnir í Neukölln.
Við myndum segja hvað stæði þarna ef við vissum hvað þetta þýðir. Getur einhver hjálpað okkur?
Við myndum segja hvað stæði þarna ef við vissum hvað þetta þýðir. Getur ein­hver hjálpað okkur?
Það er verið að hita sig upp fyrir 1. maí en eins og fyrr segir er mikið um fjör og óeirðir þennan dag í Kreuzberg og næsta nágrenni.
Það er verið að hita sig upp fyrir 1. maí en eins og fyrr segir er mikið um fjör og óeirðir þennan dag í Kreuzberg og næsta nágrenni.
Í Neukölln má finna ýmsan skemmtilegan varning.
Í Neukölln má finna ýmsan skemmti­legan varn­ing.
Auður Jónsdóttir í karlaveldi.
Auður Jóns­dóttir í karla­veldi.
Það er gaman hjá þessum að gæða sér á ávaxtatóbaki.
Það er gaman hjá þessum að gæða sér á ávaxta­tó­baki.

Það er hörku­vinna að starfa á kebabstað: Í Berlín – þessu Róma­veldi nútím­ans – er víða unnið frá morgni til kvölds fyrir lágt kaup. Tyrkir hafa gert hið safa­ríka Berlínar-kebab frægt en í Berlín eru gam­al­grónar Tyrkja­byggðir í gömlu Vestur-Ber­ín­ar­hverf­unum. Þegar var Vestur-Berlín var að bragg­ast veitti ekki af fleiri vinn­andi höndum...

Hurðir í Neukölln
Hurðir í Neukölln
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár