Hvað má valdstjórnin gera ef fólk harðneitar að fara í landamæraskimun?

Sann­fær­ing­ar­kraftur landamæra­varða um nauð­syn sýna­töku á landa­mærum hefur reynst nægur. Ekki hefur þurft að beita þving­unar­úr­ræðum eða vísa fólki rak­leiðis úr landi. Þær heim­ildir eru þó til staðar í sótt­varna­lögum og útlend­inga­lögum.

Ekki hefur enn komið til þess að einhverjir ferðamenn gjörsamlega harðneiti að fara í skimun.
Ekki hefur enn komið til þess að ein­hverjir ferða­menn gjör­sam­lega harð­neiti að fara í skimun. Mynd: Bára Huld Beck

Frá því reglur voru hertar á landa­mærum Íslands í síð­ustu viku og allir sem til lands­ins koma voru skyld­aðir til þess að fara í COVID-próf við kom­una hefur ekki enn komið til þess að ein­hver hafi gjör­sam­lega harð­neitað að und­ir­gang­ast sýna­töku.

Ef ein­hver neitar í fyrstu hefur verið rætt við við­kom­andi og upp­lýst um mik­il­vægi þess að hann veiti sýni. Sú aðferð hefur ekki klikkað til þessa, sam­kvæmt svari frá emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra við fyr­ir­spurn Kjarnans. Ein­hverjir hafa þó hugsað sig um klukku­stundum saman áður en þeir ákveða að und­ir­gang­ast skimun­ina.

Í kjöl­far þess að heil­brigð­is­ráð­herra boð­aði föstu­dag­inn 15. jan­úar að allir yrðu almennt skyld­aðir til að fara í tvö­falda skimun við kom­una til lands­ins óskaði Kjarninn eftir upp­lýs­ingum frá rík­is­lög­reglu­stjóra um það hvaða vald­heim­ildir lög­regla hefði gagn­vart þeim sem harð­neit­uðu skimun og á hverju þær vald­heim­ildir byggð­ust.

Efa­semdir höfðu verið uppi um það af hálfu heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins að laga­stoð væri fyrir þeim hertu aðgerðum sem Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir lagði til við Svandísi Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra, en síðan sam­þykkti rík­is­stjórnin á fundi sínum að gera tvö­falda landamæra­skimun með fimm daga sótt­kví á milli að skyldu.

„Neyð­ar­úr­ræði,“ sagði heil­brigð­is­ráð­herra, en sótt­varna­læknir hafði lýst yfir áhyggjum af nýjum og meira smit­andi afbrigðum kór­ónu­veirunnar og upp­gangi far­ald­urs­ins í flestum nágranna­ríkjum Íslands.

Útlendingalög og sóttvarnalög

Ef svo illa færi að sann­fær­ing­ar­kraftur landamæra­varða myndi ekki duga væri ýmist hægt að vísa fólki frá land­inu eða beita það þving­unar­úr­ræðum inn­an­lands, sam­kvæmt svari emb­ættis rík­is­lög­reglu­stjóra við fyr­ir­spurn Kjarnans.

[adspot]

Heimild er til þess að vísa útlend­ingum sem neita að fara í skimun frá land­inu á grund­velli ákvæða útlend­inga­laga. Í sótt­varna­lögum er svo heim­ild til þess að beita þving­unar­úr­ræðum á borð við sýna­töku, ein­angrun eða sótt­kví, sem sótt­varna­læknir myndi ákveða hver ættu að vera í hverju máli fyrir sig.

„Áður en gripið er til þving­un­ar­að­gerða skal ætíð reynt að leysa mál með öðrum hætti,“ segir í svar­inu frá emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra.

Bara hægt að vísa útlendingum úr landi

Eitt gildir um erlenda rík­is­borg­ara og annað fyrir Íslend­inga. Á landa­mærum hefur lög­reglan heim­ild til þess að beita frá­vís­unum gagn­vart útlend­ingum, meðal ann­ars á grund­velli almanna­heil­brigðis. Sú heim­ild er ekki til staðar gagn­vart Íslend­ingum, enda ná útlend­inga­lög ekki yfir þá.

„Þannig liggja fyrir verk­lags­reglur um frá­vís­anir á grund­velli útlend­inga­laga gagn­vart þeim útlend­ingum sem geta ekki eða vilja ekki fara eftir þeim sótt­varn­ar­reglum sem í gildi eru,“ segir í svari emb­ættis rík­is­lög­reglu­stjóra.

Þar segir enn fremur að áhersla sé lögð á að skoða hvert til­vik fyrir sig. Ein­stak­lingar séu upp­lýstir um gild­andi sótt­varna­reglur og aðgerðir stjórn­valda til að koma í veg fyrir að smit ber­ist til lands­ins. Túlkar eru kall­aðir til ef þörf krefur.

Sóttvarnalæknir myndi þurfa að leggja til þvingunarúrræði

Um heim­ildir til þess að beita þving­unar­úr­ræðum inn­an­lands er farið eftir ákvæðum sótt­varna­laga og reglu­gerðar heil­brigð­is­ráð­herra um sótt­kví og ein­angrun og sýna­töku við landa­mæri Íslands vegna COVID-19.

Neiti ein­stak­lingur að fara í sýna­töku eða sótt­kví, og und­an­þágu­skil­yrði eiga ekki við, getur sótt­varna­læknir leitað aðstoðar lög­reglu­yf­ir­valda vegna aðgerða til að varna smiti, s.s. sýna­töku, ein­angrun eða sótt­kví í sam­ræmi við 14. gr. sótt­varna­laga.

Í svari emb­ættis rík­is­lög­reglu­stjóra segir að ef ein­hver neiti að fara í sýna­töku og ljóst sé að við­kom­andi sé ekki und­an­þeg­inn skimun, hafi lög­regla sam­band við sótt­varn­ar­lækni sem taki ákvörðun um þving­unar­úr­ræði sem beita skuli gagn­vart við­kom­andi ein­stak­lingi í sam­ræmi við sótt­varna­lög.

Sótt­varna­læknir tekur ákvörðun um það hvar við­kom­andi á að dvelja á meðan hann er þving­aður í sótt­kví, til dæmis í far­sótt­ar­húsi, sam­kvæmt emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár