Sigmundur mun ekki biðjast afsökunar á þátttöku Íslands í Íraksstríðinu

Íslensk stjórn­völd íhuga ekki að biðj­ast afsök­unar á þátt­töku sinni í inn­rásinni í Írak, með því að vera á hinum svo­kall­aða lista hinna vilj­ugu þjóða. Þetta má lesa út úr svari Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn Svan­dísar Svav­ars­dóttur, þing­manns VG.

Svandís spurði Sigmund að því hvort hann hygð­ist biðj­ast afsök­unar í ljósi þess að Tony Blair, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, hafi beðist afsök­unar á rangri upp­lýs­inga­gjöf til bresks almenn­ings í aðdrag­anda stríðs­ins. Hún spurði hvort Sig­mundur ætl­aði að gang­ast fyrir sam­bæri­legri afsök­un­ar­beiðni stjórn­valda til Íslend­inga, sökum þess að sömu blekk­ingum hafi verið beitt til að skipa íslenska rík­inu í hóp stuðn­ings­ríkja stríðs­ins.

Sig­mundur segir í svari sínum að ekki verði séð af gögnum um málið að íslensk stjórn­völd hafi haft nokkra aðkomu að ákvörðun um árás Banda­ríkj­anna og banda­manna þeirra á Írak. Þvert á móti sýni gögnin að skrán­ing Íslands á lista hinna vilj­ugu hafi verið að frum­kvæði banda­rískra stjórn­valda, og að þeim hafi verið gert ljóst að Ísland væri her­laust ríki.

„Það er skoðun ráð­herra að ekki hefði átt að heim­ila banda­rískum stjórn­völdum að skrá Ísland á lista sem tengdur var við hern­að­ar­að­gerðir og að eftir birt­ingu list­ans hefði verið æski­legt að Íslend­ingar hefðu áréttað betur, opin­ber­lega, að vera á list­anum fæli ekki í sér stuðn­ing við hern­að­ar­að­gerðir eins og full­trúa banda­rískra stjórn­valda hafði verið gert ljóst þegar hann afhenti list­ann,“ segir í svari Sig­mundar. 

„Ljóst má vera að ef til greina kæmi, af hálfu íslenskra stjórn­valda, að biðj­ast afsök­unar á ein­hverjum þeim hern­að­ar­að­gerðum sem ráð­ist hefur verið í með það að mark­miði að steypa ein­ræð­is­herrum af stóli koma vart önnur átök til álita en árásin á Líbýu þar sem rík­is­stjórn Íslands var virkur þátt­tak­andi í ákvörðun um hern­að­ar­að­gerðir,“ sagði Sig­mundur einnig í svar­inu, og að árásin á Líbýu árið 2011 væri eina til­vikið þar sem Ísland hefði haft beina aðkomu að ákvörðun um hern­að­ar­í­hlutun. Hann ætl­aði þó ekki að leggja mat á hvort til­efni væri fyrir afsök­un­ar­beiðni vegna þess. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár