Gauti mun ekki taka sæti á lista á eftir Eyfirðingunum tveimur

Gauti Jóhann­es­son for­seti sveit­ar­stjórnar í Múla­þingi sótt­ist eftir því að leiða lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi í haust, en hafn­aði í 3. sæti í próf­kjöri í gær. Hann seg­ist ekki ætla að taka sæti á lista flokks­ins.

Gauti Jóhannesson ætlar ekki að taka 3. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi.
Gauti Jóhann­es­son ætlar ekki að taka 3. sæti á lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi.

Gauti Jóhann­es­son, for­seti sveit­ar­stjórnar í Múla­þingi, ætlar ekki að sækj­ast eftir því að taka sæti á lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í alþing­is­kosn­ing­unum í haust. Hann hafn­aði í þriðja sæti í próf­kjöri flokks­ins sem fram fór í gær, en hafði sóst eftir odd­vita­sæt­inu, sem féll í skaut þing­manns­ins Njáls Trausta Frið­berts­sonar.

„Úrslitin eru mér von­brigði en vilji kjós­enda er skýr og við nið­ur­stöð­una verður að una. Ég sótt­ist eftir að leiða list­ann, það varð ekki og af þeim sökum mun ég ekki sækj­ast eftir að taka sæti á lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins við kosn­ingar til Alþingis í haust,“ skrifar Gauti í færslu á Facebook í dag.[adspot]

Berglind Ósk Guð­munds­dóttir lög­fræð­ingur og vara­bæj­ar­full­trúi á Akureyri hafn­aði í öðru sæti í próf­kjör­inu, en hún sótt­ist eftir því sæti og fékk fleiri atkvæði í efstu tvö sætin en Gauti.[links]

Hann vildi leiða list­ann og hafði lagt áherslu á það í próf­kjörs­bar­áttu sinni að mik­il­vægt væri að sjálf­stæð­is­menn á Aust­ur­landi ættu sér full­trúa í for­ystu­sæti í kjör­dæm­inu.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er með tvo þing­menn í kjör­dæm­inu eins og er, þá Kristján Þór Júl­í­us­son sem er að hætta í stjórn­málum og Njál Trausta.

Flokk­ur­inn fékk 20,3 pró­sent atkvæða þar haustið 2017 sem var tölu­vert undir heild­ar­kjör­fylgi hans sem var 25,2 pró­sent. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er samt sem áður stærsti flokk­ur­inn í Norð­aust­ur­kjör­dæmi eins og er þar sem hann fékk 88 atkvæðum fleiri en Vinstri græn þegar síð­ast var talið upp úr kjör­köss­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár