Kjöt að klárast og engin teikn á lofti um að verkföllum næstu viku verði afstýrt

Engin teikn eru á lofti um að verk­falli Starfs­greina­sam­bands­ins í næstu viku verði afstýrt. Tíu þús­und manns munu leggja niður störf á mið­viku­dag og fimmtu­dag ef ekki verður samið fyrir þann tíma.

Björn Snæ­björns­son, for­maður Starfs­greina­sam­bands­ins, segir í sam­tali við RÚV að ekki sé boð­aður samn­inga­fundur í deil­unni fyrr en á þriðju­dag svo að reiknað sé með að verk­fallið standi. „Það kemur ekk­ert frá atvinnu­rek­endum þannig að málið er í rosa­legum hnút og sátta­semj­ari sjálf­sagt telur ekki ástæðu til að boða til fundar þegar mikið ber í milli eins og í okkar deilu.“

Björn gagn­rýnir líka ummæli Þor­steins Víglunds­sonar, fram­kvæmda­stjóra Samtaka atvinnu­lífs­ins, sem sagði í gær á RÚV að engin skyn­semi væri á bak við kröfur verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar. Þor­steinn tal­aði á sömu nótum í þætt­inum Sprengisandi á Bylgj­unni í dag. „Við vitum á end­anum að verka­lýðs­hreyf­ingin getur knúið hvaða vit­leysu í gegn í krafti verk­falla sem hún kýs að gera. Vegna þess að á end­anum stendur fyr­ir­tækið frammi fyrir val­kost­unum að ganga að þessum kröfum eða að fara ein­fald­lega á haus­inn.“

Ólafía B. Rafns­dóttir, for­maður VR, var í þætt­inum líka og mót­mælti þessum orðum Þor­steins. „Við vildum ekki vera í þess­ari stöðu sem við erum í í dag.“ Þá sagð­ist hún ótt­ast það að lög­bann verði sett á verk­föll. Þor­steinn hefur þó sagt að atvinnu­rek­endur muni ekki fara fram á lög­bann.

Þá greinir RÚV frá því að í Bónus sé ferskur kjúklingur upp­ur­inn og ferskt grísa­kjöt af nýslátr­uðu sömu­leiðis vegna verk­falls. Guð­mundur Mart­eins­son fram­kvæmda­stjóri segir að enn sé til nóg af lamba­kjöti og fiski, og eitt­hvað af nauta­kjöti, en hratt gangi á birgðir af frosnum kjúklingi.

Hjúkr­un­ar­fræð­ingar og sjúkra­liðar eru meðal þeirra stétta sem nú greiða atkvæði um verk­falls­boðun. Ef ekki semst á næst­unni er útlit fyrir að um 100 þús­und manns verði í verk­falli í lok mán­aðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár