Ömurlegar aðstæður í grískum flóttamannabúðum

Flótta­manna­stefna Evr­ópu­sam­bands­ins hefur fært byrði hæl­is­leit­enda yfir til Grikk­lands frá öðrum sam­bands­löndum. Grískar flótta­manna­búðir hafa stækkað ört á síð­ustu árum, en starfs­menn þeirra segja að neyð­ar­á­stand blasi þar við í geð­heil­brigð­is­málum.

Geð­heil­brigðiskrísa vofir yfir í grískum flótta­manna­búðum sem stækkað hafa gíf­ur­lega á síð­ustu árum. Með samn­ingi Evr­ópu­sam­bands­ins við Tyrkland auk Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar hefur byrði Grikkja á flótta­manna­vand­anum auk­ist á sama tíma og önnur Evr­ópu­lönd finna minna fyrir honum. Þetta kemur fram í frétt The Economist sem birt­ist á fimmtu­dag­inn.

Í frétt­inni er vikið að samn­ingnum milli Evr­ópu­sam­bands­ins og Tyrk­lands árið 2016 í flótta­manna­málum, en með honum ákváðu Tyrkir að stöðva báts­ferðir hæl­is­leit­enda frá land­inu og taka á móti hæl­is­leit­endum sem vísað hefur verið frá Grikk­landi. Með samn­ingnum dró veru­lega úr báts­ferðum yfir Mið­jarð­ar­hafið og fjöldi hæl­is­leit­enda minnk­aði til flestra ríkja Evr­ópu­sam­bands­ins.

Hins vegar, þrátt fyrir að samn­ing­ur­inn hafi bundið enda á flótta­manna­vanda flestra Evr­ópu­ríkja, jók hann byrði Grikk­lands sem situr nú uppi með gíf­ur­legan fjölda hæl­is­leit­enda. Þeir sem koma frá Tyrk­landi enda oft­ast í flótta­manna­búðum á grísku eyj­unum Chios, Samos, Lesbos og Kos, en sam­kvæmt samn­ingnum er þeim skylt að bíða þar þangað til hæl­is­um­sókn­ar­ferli þeirra lýkur.

Dyflinnarreglugerðin

Samkvæmt samn­ingnum er öllum hæl­is­leit­end­unum komið fyrir í Grikk­landi þannig að auð­veld­ara sé að vísa þeim til Tyrk­lands aftur ef hæl­is­um­sókn þeirra er synjuð, en mörgum Grikkjum grunar að ákvæð­inu hafi verið bætt við til að fram­fylgja Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­inni.

Sú reglu­gerð þykir umdeild, en sam­kvæmt henni er hæl­is­leit­anda skylt að sækja um hæli í fyrsta Evr­ópu­landi sem hann kemur til. Þannig er meg­in­þorri umsókn­anna afgreiddur í þeim löndum sem næst eru Asíu eða Afríku: Grikk­landi, Ítalíu og Spáni.

Hælisumsóknir fjórfaldast í Grikklandi

Áður fyrr skráði stór hluti hæl­is­leit­enda sig ekki í Grikk­landi, heldur freist­uðu þeir gæf­unnar í öðrum Evr­ópu­löndum. Frá und­ir­ritun samn­ings­ins hefur hins vegar orðið erf­ið­ara fyrir þá að ferð­ast um Evrópu og sækja því mun fleiri um hæli í Grikk­landi. Sem stendur nemur heild­ar­fjöldi hæl­is­leit­enda í Grikk­landi 65 þús­undum manna, en 9 þús­und þeirra eru á eyj­unni Lesbos.

Það sem af er ári hafa grísk yfir­völd tekið á móti nær fjórum sinnum fleiri hæl­is­um­sóknum en þeir gerðu árið 2015. Þeir sem stand­ast umsókn­ar­ferlið mega svo setj­ast að í Grikk­landi sem flótta­menn, en fá ekki að fara til ann­arra Evr­ópu­landa þangað til þeir fá grískan rík­is­borg­ara­rétt.

Ömurlegar aðstæður

Evr­ópu­sam­bandið hefur varið yfir 1,6 millj­örðum evra í flótta­manna­hjálp á Grikk­landi til þess að mæta álag­inu, en sam­kvæmt frétt The Economist eru aðstæður í grísku flótta­manna­búð­unum samt sem áður mjög slæmar.

Sem dæmi nefnir tíma­ritið flótta­manna­búð­irnar Moria á eyj­unni Lesbos, en þar er lítið pláss eftir fyrir sívax­andi hóp hæl­is­leit­enda. Um 7,500 manns dvelja þar núna, en búð­irnar höfðu upp­runa­lega verið hann­aðar til að hýsa 2,500 manns. Hjálp­ar­sam­tök sem starfa á svæð­inu hafa einnig greint frá neyð­ar­á­standi í geð­heil­brigð­is­málum þar sem mikið bæri á sjálfs­vígstil­raunum ungra barna. Slagsmál í búð­unum séu einnig dag­legt brauð, en íbú­arnir þurfa stundum að bíða í röð í allt að tólf tíma til þess að fá mat.

Föst í kerfinu

[links]Kjarninn hefur áður fjallað um fall í fjölda hæl­is­um­sókna til Evr­ópu­sam­bands­ríkja, en í fyrra fækk­aði þeim um 44 pró­sent frá því árinu áður. Á sama tíma minnk­aði fjöldi umsókna einnig á Íslandi, þó aðeins um 15 pró­sent.

Þrátt fyrir mikla fækkun hæl­is­um­sókna sitja margar þeirra enn fastar í kerf­inu. Samkvæmt skýrslu Evr­ópu­sam­bands­ins bíður tæp milljón umsókna afgreiðslu í öllu sam­band­inu. Frétt Economist bendir einnig á sama vanda­mál í Grikk­landi, en þar eru stjórn­völd treg til þess að senda hæl­is­leit­endur aftur til Tyrk­lands þar sem landið þykir ekki öruggt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár