Blátt flauel eldist vel: súrrealíska veislan þrjátíu ára

Kvik­mynda­hús út um allan heim hafa sýnt kvik­mynd­ina Blue Velvet í til­efni þrjá­tíu ára afmælis hennar á árinu. Kjarninn rifj­aði upp hvað gerði hana svona sér­staka og af hverju fólk muni eftir henni enn í dag.

Veggspjaldið fyrir þrjátíu ára afmælisútgáfu Blue Velvet.
Vegg­spjaldið fyrir þrjá­tíu ára afmæl­is­út­gáfu Blue Velvet.

Kvik­mynda­gerð getur oft verið list­form og upp­lifunin að vera áhorf­andi á það til að hreyfa við fólki og opna augu þess fyrir öðrum hliðum veru­leik­ans. Blue Velvet er ein þess­ara mynda sem kemur á óvart og kallar á að áhorf­and­inn vinni sjálfur úr reynsl­unni og túlki sjálfur. Hann er ekki mat­aður á hefð­bund­inn hátt, heldur þarf að hann að vinna úr því sem fyrir augu ber á eigin vegum.

Blue Velvet varð strax mjög umdeild þegar hún kom út og fékk hún ekki góða dóma til að byrja með. Sumir gagn­rýndu mynd­ina og töldu hana spila á lægstu hvatir manns­ins, hvatir kyn­lífs og ofbeldis. En þegar á leið og fólk fór að átta sig betur á mynd­inni fóru að heyr­ast aðrar raddir sem lofsungu hana og talað var um hana sem meist­ara­stykki. Hún er í dag til að mynda númer átta á lista American Film Institute yfir bestu kvik­myndir kenndar við ráð­gátu.

En hvað sem fólki finnst um þessa sér­stöku kvik­mynd þá verður ekki deilt um vin­sældir hennar og sjá má á þessu þrjá­tíu ára afmæli að enn er til fólk sem sæk­ist eftir þeirri reynslu sem áhorf hennar er. Rytminn og and­rúms­loftið sem leik­stjór­inn, David Lynch, skapar í Blue Velvet er ein­stakt og ein­kenn­andi fyrir öll hans síð­ari verk.

Hug­myndin að mynd­inni kemur frá lag­inu Blue Velvet með Bobby Vinton frá árinu 1963. Lynch sagði að við það að hlusta á lagið hefði hann fengið fjöl­mörg brot hug­mynda sem að lokum púsl­uð­ust saman í eina heild. Ferlið tók langan tíma og gerði hann fjögur upp­köst að hand­riti áður en kvik­myndin fór í fram­leiðslu.

Eyra úti á víðavangi

Sögu­sviðið er lít­ill bær í Banda­ríkj­unum sem ber nafnið Lum­berton. Jeffrey Beaumont snýr aftur heim til að sinna veikum föður sínum eftir heila­blóð­fall. Dag einn finnur Jeffrey eyra á afskekktri göngu­leið og fer með það til lög­regl­unnar. Þá upp­hefst atburða­rás þar sem hann kynn­ist dóttur lög­reglu­for­ingj­ans, Sandy Williams, og byrja þau að rann­saka upp á eigin spýtur þetta und­ar­lega mál.

Rann­sóknin leiðir þau í væg­ast sagt furðu­lega atburða­rás þar sem Jeffrey brýst inn í íbúð konu að nafni Dorothy Vallens sem þau telja tengj­ast mál­inu. Hann kemst að því að eig­in­manni hennar og syni hafi verið rænt og að hún sé nú kyn­lífs­fangi ill­menn­is­ins Franks Booth, sem svo eft­ir­minni­lega er leik­inn af Dennis Hopper. Þó má segja að sögu­þráð­ur­inn sjálfur skipti ekki höf­uð­máli heldur stemn­ingin, mynda­takan og ekki síst tón­listin sem er sköpuð fyrir áhorf­and­ann. Myndin endar síðan á ein­hvers konar upp­gjöri milli Jeffreys og Franks.

Misjafnir dómar

Eins og fyrr segir fékk kvik­myndin ekki góða dóma til að byrja með. Hún var sér­stak­lega gagn­rýnd fyrir eitt atriðið þar sem karakt­er­inn Dorothy Valles birt­ist nakin og blóðug úti á götu. Ekki þótti það sæma leikkon­unni Isabellu Rossell­ini en greini hún sjálf frá því í við­tali að hún hafi kennt sjálfri sér um hvernig fyrstu dómar voru.

En þrátt fyrir harða dóma vest­an­hafs þá virð­ast íslenskir gagn­rýnendur hafa tekið kvik­mynd­inni mun betur. Fjallað var um mynd­ina hér á landi en hún kom ekki til sýn­ingar fyrr en árið 1987 og í umfjöllun um mynd­ina í DV í febr­úar sama ár segir að hand­rit og leik­stjórn gefi mynd­inni sér­stakan blæ sem stundum virð­ist út úr fasa við raun­veru­leik­ann. Þar er farið fögrum orðum um leik­stjór­ann og þessa nýju teg­und af kvik­mynda­gerð.

Í umfjöll­un­inni er tölu­vert gert úr því að Isabella Rossell­ini sé dóttir Ingrid Bergman, kvik­mynda­leikkonu, en myndin opn­aði ýmsar dyr tæki­færa fyrir leikkon­una eftir frammi­stöð­una í Blue Velvet. Þetta var ein­ungis þriðja kvik­myndin sem hún lék í og í við­tölum hefur hún sagt frá þeirri van­mátt­ar­kennd sem hún fann fyrir vegna reynslu­leysis. Hún sagð­ist einnig hafa lært mikið af leik­stjór­anum, enda átti hún eftir að leika í fjölda kvik­mynda og þátta eftir þetta.

Byrjendur verða að stjörnum

Kyle MacLachlan, sem leikur Jeffrey Beaumont, öðl­að­ist frægð fyrir hlut­verkin í kvik­myndum Davids Lynch, Dune og Blue Velvet. Ekki má heldur gleyma einu minni­stæð­asta hlut­verki hans sem Dale Cooper í Twin Peaks en fyrir þann leik vann hann til Golden Globe verð­launa árið 1991. Hann hefur einnig leikið í þáttum á borð við Sex and the City, Desperate Housewives og How I Met Your Mother.

Isabella Rossell­ini er hvað þekkt­ust fyrir að vera dóttir leikkon­unnar Ingrid Bergman og leik­stjór­ans Roberto Rossell­ini. Hún starf­aði sem fyr­ir­sæta og leik­kona en hún vakti fyrst athygli fyrir að leika hlut­verk Dorothy Vallens í þrátt­nefndri Blue Velvet. Hún hefur leikið í mörgum kvik­myndum og þátta­röðum síðan þá, gefið út bækur og gerst aðgerð­ar­sinni.

Frægasti leik­ar­inn í Blue Velvet á þessum tíma var Dennis nokkur Hopper. Hann vakti fyrst athygli fyrir hlut­verk sitt í Easy Rider árið 1969 og fylgdi hann henni eftir með eft­ir­minni­legu hlut­verki sínu í Apocalypse Now. Frammi­staða hans sem vit­firr­ing­ur­inn Frank Booth í Blue Velvet fór ekki fram hjá þeim sem á horfðu og var honum veitt ýmis verð­laun fyrir hana. Hopper sagð­ist hafa verið þakk­látur Lynch fyrir tæki­færið, þar sem hann var nýkom­inn úr með­ferð á þessum tíma og búinn að brenna margar brýr í kvik­mynda­iðn­að­inum. Blue Velvet kom honum aftur á kortið og átti hann eftir að leika í fjöl­mörgum myndum eftir það. Hann lést árið 2010 úr krabba­meini aðeins 74 ára að aldri.

Síðast en ekki síst er vert að fjalla aðeins um Lauru Dern en hún túlk­aði Sandy Williams í Blue Velvet. Hún hefur leikið í ógrynni kvik­mynda og þátta síðan, til að mynda Wild at Heart, Jurassic Park, I am Sam og núna síð­ast vakti hún sér­staka athygli fyrir hlut­verk sitt í þátta­röð­inni Enlightened frá árinum 2011-2013. Hún var einnig til­nefnd til Ósk­arsverð­launa fyrir leik sinn í kvik­mynd­inni Rambling Rose. Skemmti­legt er að greina frá því að Dern og Lynch munu enn og aftur leiða saman hesta sína því hún fer með eitt hlut­verkið í þriðju þátta­röð Twin Peaks sem mun koma út á næsta ári.

Öðruvísi leikstjóri

Ekki er hægt að fjalla um Blue Velvet án þess að gefa gaum að leik­stjór­anum sjálfum, David Lynch. Hann fædd­ist í bænum Missoula í Montana-fylki í Banda­ríkj­unum árið 1946. Hann lærði mynd­list sem ungur maður en snéri sér fljót­lega að kvik­mynda­gerð. Hann byrj­aði að fram­leiða stutt­myndir en öðl­að­ist frægð þegar hann leik­stýrði kvik­mynd­inni Elephant Man árið 1980 með Antony Hopkins og John Hurt.

Ætla má að hann sé einna frægastur á Íslandi fyrir költ-þátta­röð sína, Twin Peaks, sem sýnd var á RÚV á fyrri hluta 10. ára­tugar síð­ustu aldar við miklar vin­sældir, ekki síst fyrir þær sakir að Öxar við ána hljómar svo eft­ir­minni­lega í einum þætt­inum. Hann hélt áfram að skrifa og leik­stýra súr­r­eal­ískum kvik­myndum á 9. og 10. ára­tugnum á borð við Lost Highway og Mul­hol­land Drive. Hann hefur þrisvar sinnum verið til­nefndur til Ósk­arsverð­launa fyrir leik­stjórn og unnið til verð­launa um allan heim.

Lynch er þekktur fyrir áhuga sinn á and­legum mál­efnum en hann kom til Íslands árið 2009 til að halda fyr­ir­lestur um inn­hverfa íhugun en hann taldi að slík hug­leiðsla myndi meðal ann­ars hjálpa Íslend­ingum eftir efna­hags­hrunið árið áður.

Mikil eft­ir­vænt­ing ríkir fyrir nýjasta verk­efni Lynch. Til stendur að þriðja þátta­röð Twin Peaks líti dags­ins ljós á næsta ári. Orðrómur hefur verið um gerð nýrra þátta um þó nokkurn tíma en nú er það stað­fest að hún muni koma út. Margir leik­arar snúa aftur í þess­ari þriðju þátta­röð. Sem dæmi má nefna Kyle MacLachlan sem lék lög­reglu­mann­inn Dale Cooper og Sherilyn Fenn sem túlk­aði Audrey Horne dóttur hót­el­eig­and­ans. Margir nýir munu bæt­ast í leik­ara­hóp­inn, til að mynda Laura Dern og Ashley Judd.

Hér fyrir neðan er áhuga­verð heim­ilda­mynd um gerð Blue Velvet frá árinu 2002, þar sem not­ast er við gömul við­töl við Lynch, auk þess sem tekin eru við­töl við leik­ar­ana og aðra sem komu að gerð mynd­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár