Íran hættir samvinnu við kjarnorkueftirlit Sameinuðu þjóðanna

Íran hefur stöðvað sam­starf við Alþjóða­kjarn­orku­mála­stofn­un­ina eftir árásir Ísraela og Banda­ríkj­anna á kjarn­orku­mann­virki lands­ins. Þingið sam­þykkti lög þar um og for­set­inn stað­festi þau.

Staðfesti
Stað­festi Forseti Írans, Masoud Pezeshkian, stað­festi lögin sem áður höfðu verið sam­þykkt á íranska þing­inu og yfir­farin af hinu svo­kall­aða Vernd­ar­ráði. Mynd: Ayoub Ghaderi

Íran til­kynnti á mið­viku­dag að landið hafi hætt sam­starfi við Alþjóða­kjarn­orku­mála­stofn­un­ina (IAEA), aðeins nokkrum dögum eftir vopna­hlé í átökum þar sem Ísrael og Banda­ríkin réð­ust á kjarn­orku­mann­virki í Íran. Þessi for­dæma­lausa átök, sem hófust 13. júní og stóðu í tólf daga, hafa aukið á spennu milli stjórn­valda í Teheran og stofn­un­ar­innar. 

Daginn eftir að vopna­hlé tók gildi, þann 25. júní, sam­þykkti íranska þingið, með miklum meiri­hluta, frum­varp um að hætta sam­starfi við kjarn­orku­eft­ir­litið. Lög­gjöfin var síðar stað­fest af Vernd­ar­ráð­inu, sem hefur það hlut­verk að yfir­fara laga­setn­ingu, áður en for­set­inn stað­festi hana end­an­lega.

„Masoud Pezeshkian, for­seti Írans, stað­festi lögin sem stöðva sam­starf við Alþjóða­kjarn­orku­mála­stofn­un­ina ,“ sagði rík­is­sjón­varpið í gær.

Írönsk stjórn­völd hafa gagn­rýnt IAEA harð­lega fyrir það sem þau kalla „þögn“ stofn­un­ar­innar í kjöl­far árása Ísraela og Banda­ríkj­anna á …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár